MannlífiðOpen Source húsgagnahönnun: Betra fyrir umhverfið og budduna Svokölluð opin hönnun verður sífellt meira áberandi.
MannlífiðSælkera perlubyggsbollur með grænmeti Í þennan rétt var notað perlubygg sem er lúxusútgáfan af bygginu. Suðutíminn er einungis 15 mínútur og því sniðugt að nota það í staðinn fyrir hrísgrjón eða kartöflur til tilbreytingar. Hér er byggið notað í bollur sem eldaðar eru með grænmeti í ofni. Rétturinn getur staðið einn sér en líka sem meðlæti t.d. með fiski.
MannlífiðBragðgóð blómkálsbaka Þegar hráefnið er fyrsta flokks er óþarfi að flækja hlutina mikið, yfirleitt er það einfaldasta best. Fátt jafnast á til dæmis á við ferkst grænmeti eins og sannast hér þar sem uppskrift er gefin að blómkálsböku frá Persíu.
MannlífiðUmhverfismálin eiga að vera í fararbroddi Batteríið Arkitektar er með stærstu arkitektastofum á Íslandi með vel menntaða og reynslumikla starfsmenn sem hafa tekið þátt í stórum og fjölbreyttum hönnunarverkefnum bæði innanlands og utan. Við báðum Sigurð Einarsson arkitekt, sem stofnaði fyrritækið árið 1988 ásamt Jóni Ólafi Ólafssyni og hefur starfað þar óslitið síðan, um að veita okkur innsýn inn í arkitektúr á Íslandi í dag og gefa okkur sýnishorn af verkum sem Batteríið arkitektar hafa hannað.
MannlífiðLangar að ganga Jakobsveginn Sólveig Baldursdóttir er myndlistamaður sem stundaði nám við skúlptúrdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands frá 1980-82. Ásamt því stundaði hún nám við myndhöggvaradeild Det Fynske Kunstakademi á árunum 1983-1988. Einnig starfaði hún í stúdíó Nicoli í Carrara frá 1990-1994 þar sem hún vann að eigin verkum. Í dag starfar Sólveig í DAM-teymi Hvítabandsins á geðsviði Landspítalans og sér þar um skapandi starf m.a. á leirverkstæði og í sköpun og tjáningu. Við spurðum Sólveigu hvað væri helst á óskalistanum hennar.
MannlífiðSjálfbær hönnun sem stenst tímans tönn Danska hönnunarfyrirtækið Gejst var stofnað í Óðinsvéum í Danmörku árið 2013 af hönnuðunum Søren Nielsen og Niels Grubak Iversen. Ástríða fyrir endingargóðri hönnun var kveikjan að stofnun fyrirtækisins en fyrirtækið einsetur sér að hafa sjálfbærni að leiðarljósi. Markmiðið var að skora á hefðbundna nálgun og hönnunaraðferðir og skapa vörur sem stæðust tímans tönn bæði hvað varðar hönnunina sjálfa og efnisval.
MannlífiðStærsta óskin að hafa heilsuna í lagi Söngkonuna Siggu Beinteins þekkja allflestir Íslendingar og hefur hún heillað okkur með smellum eins og Eitt lag enn, Vertu ekki að plata mig og Allt eða ekkert. Við forvitnuðumst um hvað er að óskalista söngkonunnar.
MannlífiðSpínatlasagna með haloumi-osti og basilíku Hér er ekki notað hefðbundið ferkantað lasagna-form sem gefur réttinum grófara og frjálslegra yfirbragð. Lasagna-blöðin eru ekki öll ofan í sósunni og brúnast flví aðeins í endanna og verða stökk. fyrir 4-6 4 hvítlauksgeirar, saxaðir 1 rauðlaukur, saxa›ður 800 g ferskir kirsuberjatómatar, skornir gróft 3 msk. balsamedik 2 msk. kaldpressuð ólífuolía sjávarsalt og nýmala.ur pipar hnefafylli fersk basilíka 500 g...
MannlífiðNýuppgerð 50‘s íbúð með upprunalegu eldhúsi Síðla nóvembermánaðar kíktum við í heimsókn til Hildar Rutar Ingimarsdóttur en hún býr í notalegri íbúð í Laugarneshverfinu ásamt unnusta sínum og tveim börnum.
MannlífiðBragðgóð baunabuff Baunabuff eru hollur og góður matur sem er t.d. gott að eiga í frysti og grípa til þegar lítill tími er til stefnu. Baunir hafa hátt prótínhlutfall og eru stútfullar af næringarefnum og trefjum. Þær eru ódýr matur og því vel til þess fallnar að drýgja t.d. pottrétti og súpur. Niðursoðnar baunir eru þægilegur kostur þegar tíminn er naumur en það er miklu ódýrara að leggja þurrkaðar baunir í bleyti, sjóða þær og skipta þeim niður í hæfilega skammta og frysta. Þannig er fljótlegt að grípa til þeirra þegar á þarf að halda. Linsubaunir þarf ekki að leggja í bleyti, þær eru því einskonar skyndibaunir sem er mjög hentugt að nota með litlum fyrirvara.
MannlífiðSjarmi í Vesturbænum Blaðamaður og ljósmyndari heimsóttu fallegt heimili í Vesturbæ Reykjavíkur á köldum degi í október. Þar búa þau Íris Ósk, flugfreyja og Fannar, íþróttastjóri Víkings. Húsið var byggt 1945, teiknað af Einari Sveinssyni arkitekt og hafa þau Íris og Fannar tekið íbúðina í gegn að miklu leyti.
MannlífiðShaker-hönnun í nútímalegum búningi The Shakers eins og þeir eru yfirleitt kallaðir hafa löngum verið skilgreindir sem fyrstu mínimalistarnir og hafa hönnuðir ósjaldan litið til þeirra í leit að innblæstri. Áherslur Shaker-trúarinnar voru einfaldleiki, skírlífi, heiðarleiki og vinna og var flokkurinn þekktur víðsvegar fyrir einstaklega mikla vandvirkni og fallegt handbragð í allri sinni smíði. Verkefnið Furnishing Utopia var sett á laggirnar árið 2017 og er einskonar óður til þessara fyrstu mínimalista.