Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sjarmi í Vesturbænum

Blaða­maður og ljós­mynd­ari heim­sóttu fal­legt heim­ili í Vesturbæ Reykja­víkur á köldum degi í októ­ber. Þar búa þau Íris Ósk, flug­freyja og Fannar, íþrótta­stjóri Víkings. Húsið var byggt 1945, teiknað af Einari Sveins­syni arki­tekt og hafa þau Íris og Fannar tekið íbúð­ina í gegn að miklu leyti.

Sjarmi í Vesturbænum

Íbúðin er á þriðju hæð með útsýni til allra átta; að Esjunni, Keili og Bessa­stöðum og það er þetta fal­lega útsýni sem fangar athygl­ina sam­stundis þegar inn er komið. Hún er um 90 fer­metrar að stærð og Íris og Fannar fengu hana afhenta í júní­mán­uði árið 2017. Þau segj­ast hafa byrjað á því að rífa allt út nema gól­f­efni í stofu og fata­s­kápa í svefn­her­bergi. „Íbúðin varð nán­ast fok­held,“ segir Íris og bætir við: „Við tókum niður vegg sem var milli eld­húss og gangs og annan sem var á milli stofu og borð­stofu því við vildum hafa íbúð­ina bjarta og opna.“

Þegar þau fluttu inn var strax haf­ist handa og öll fjöl­skyldan lagð­ist á eitt við að hjálpa. „Pabbi er þús­und­þjala­smiður, hann getur allt!“ segir Íris. „Við áttum ótrú­lega góðar stundir saman og þarna bætt­ust við margar góðar minn­ingar í minn­inga­bank­ann. Þol­in­móð­ari maður en pabbi minn er vand­fund­inn, held ég,“ segir Íris og hlær. „Við ætl­uðum ekki að gera of mikið til að byrja með, heldur gera þetta smátt og smátt þar sem við vorum ekki búin að ákveða hvað við vildum. Bað­her­bergið tók lengstan tíma, mig lang­aði að hafa það öðru­vísi en ekki þannig að ég yrði leið á því.

Pabbi er þús­und­þjala­smiður, hann getur allt!

Ég sá gólf­flísar sem heill­uðu mig mikið og sendi hinum ýmsu fyr­ir­tækjum mynd af þeim til að reyna að fá eins, og þeir hjá Agli Árnasyni fundu loks­ins það sem við leit­uðum að,“ segir Íris ánægð og þegar hún er spurð hvar hún sæki sér inn­blástur fyrir heim­ilið seg­ist hún hafa legið yfir tíma­ritum og Instagram til að fá hug­myndir þegar þau stóðu í þessum miklu fram­kvæmdum.

Er fram­kvæmdum þá lokið? „Nei, ekki alveg, næst á dag­skrá er að skipta út gól­f­efnum á stofu og svefn­her­bergi, lakka ger­eft og hurðir og hengja upp ljós. Annað er nokkuð til­búið,“ segir Íris sátt.

Blaða­maður heill­að­ist af fal­legum glugga á bað­her­berg­inu sem er hring­laga og setur skemmti­legan svip á rýmið.

Sjarminn sem fylgir erfðagripum

Fag­ur­fræðin er Írisi ofar­lega í huga þegar kemur að því að inn­rétta heim­ilið. Hún segir að sér finn­ist skemmti­leg­ast að blanda saman gömlu og nýju og að hlutir sem hún hafi fengið gef­ins séu þýð­ing­ar­meiri fyrir hana. „Það gerð­ist þegar ég bjó í Noregi, mér finnst gaman að nýta gam­alt og blanda því við nýtt. Borð­stofu­borðið okkar og stól­arnir eru frá ömmu og afa Fannars.

Við gerðum borð­stofu­settið upp, afi minn spraut­ulakk­aði borðið svart og amma hjálp­aði okkur að pússa og mála stól­ana. Afi er afar hjálp­samur og hand­lag­inn, hann hjálp­aði mér meðal ann­ars að búa til ljós í eld­húsið ásamt því að gera sófa­borð eftir mínum hug­myndum þar sem við fundum ekki hið eina rétta í versl­unum,“ segir hún.

Mér finnst gaman að nýta gam­alt og blanda því við nýtt

Hansa­hillan í stof­unni hafði verið á verk­stæði hjá ömmu og afa Írisar ansi lengi áður en hún fékk nýtt hlut­verk heima hjá unga par­inu, ásamt gömlum skálum og vösum sem eru í miklu upp­á­haldi hjá Írisi. „Ég er líka ansi stóla­sjúk, eins og sést, ég elska þessa gömlu stóla og finnst þeir hafa svo mik­inn sjarma,“ segir hún.

Upp­á­halds­hönn­uðir Írisar eru Louis Poulsen, Georg Jensen og Arne Jacobsen en hver ætli sé upp­á­halds­hlut­ur­inn á heim­il­inu? „Ætli það sé ekki speg­ill­inn sem afi smíð­aði fyrir mig ásamt Georg Jensen-kerta­stjak­anum og vas­anum í stof­unni sem ég fékk í afmæl­is­gjöf,“ segir Íris. Henni þyki skemmti­legt að blanda þessu saman, ekki halda sér í einum stíl.

„Ég er ein af þeim sem geymi alltaf eitt­hvað af dóti í kassa og skipti svo út annað slagið.“

Texti / Svava Marín Ósk­ars­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni