Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Shaker-hönnun í nútímalegum búningi

The Shakers eins og þeir eru yfir­leitt kall­aðir hafa löngum verið skil­greindir sem fyrstu mínima­list­arnir og hafa hönn­uðir ósjaldan litið til þeirra í leit að inn­blæstri. Áherslur Shaker-trú­ar­innar voru ein­fald­leiki, skír­lífi, heið­ar­leiki og vinna og var flokk­ur­inn þekktur víðs­vegar fyrir ein­stak­lega mikla vand­virkni og fal­legt hand­bragð í allri sinni smíði. Verk­efnið Furn­is­hing Utopia var sett á lagg­irnar árið 2017 og er eins­konar óður til þess­ara fyrstu mínima­lista.

Shaker-hönnun í nútímalegum búningi

Það var unnið í nánu sam­starfi við tvö vel varð­veitt Shaker-sam­fé­lög í Banda­ríkj­unum, Mt. Lebanon Shaker Museum í upp­sveitum New York ríkis og Hancock Shaker Village í Berks­hires-hálend­inu í Massachusetts. Þeir hönn­uðir og hönn­nun­arteymi sem valin voru til þátt­töku í verk­efn­inu hófu ferlið á viku­langri vinnu­stofu á svæðum fyrr­nefndra Shaker-sam­fé­laga. Þar höfðu hönn­uðir ótak­mark­aðan aðgang að gagna­grunni sem inni­heldur alla skrá­setta hluti smíð­aða af Shaker­unum, og gátu þeir jafn­framt átt mik­ils­verðar sam­ræður við sýn­ing­ar­stjóra safn­anna sem búa yfir mik­illi þekk­ingu um sögu og menn­ingu trúflokks­ins.


Í fram­haldi vinnu­stof­unnar bjuggu hönn­uð­urnir til hvers­dags­lega hluti, allt frá kústum og körfum yfir stærri muni eins og stóla, borð og bekki. Leitast var svara við því hvernig Shaker­arnir þró­uðu svo tíma­lausa, aft­ur­halds­sama og nútíma­lega hönnun á blóma­tíma sínum og reyndu hönn­uðir að túlka hug­vit­semi og sið­fræði Shaker-stíls­ins í hlutum sem myndu passa inn í dag­legt líf í nútím­anum.


Þrjár sýn­ingar undir for­merkjum Furn­is­hing Utopia hafa verið haldnar nú þegar og hefur mark­mið verk­efn­is­ins verið að skapa nútíma­lega inn­an­stokks­muni inn­blásna af hinum upp­runa­legu Shaker-munum, sem og að varpa ljósi á þau áhrif sem Shaker-trúflokk­ur­inn hefur haft á sam­tíma­hönnun. Hver sýn­ing hefur haft sitt þema eða ramma sem hönn­uðir vinna út frá og í þeirru nýj­ustu, „Furn­is­hing Utopia 3.0: Hands to work“, var unnið með hús­verk og þá muni sem þeim tengj­ast.


Verk­efnið hefur vakið gríð­ar­mikla athygli og verið sýnt á Stockholm Furnit­ure & Light Fair, Sight Unseen Offsite á tísku­vik­unni í New York og í Hancock Shaker Village í Massachusetts í sam­hengi við hina upp­runa­legu Shaker-hluti. Meðal þeirra hönn­uða sem tekið hafa þátt í Furn­is­hing Utopia má nefna; Andersen & Voll, Hallgeir Hom­st­vedt, Ladies & Gentlemen Studio, Studio Gorm, Norm Architects, Pat Kim, Bertjan Pot, Earnest Studio og svo lengi mætti telja. Hver ein­asti hlutur sem sýndur hefur verið á Furn­is­hing Utopia varpar ljósi á þau áhrif sem Shaker-trúflokk­ur­inn hefur haft á sam­tíma­hönnun.

Shaker-trúin náði hápunkti á árunum 1820-1860
Shaker-trúflokk­ur­inn var fyrst um sinn þekktur undir nafn­inu „Shaking Quakers“ og var það til­komið vegna tryll­ings­legs dans sem stund­aður var við athafnir þeirra. Saga flokks­ins hófst snemma á 18. öld og á rætur sínar að rekja til Englands. Stuttu fyrir alda­mótin 1800 flutti hann og sett­ist að í efri byggðum New York-ríkis. Shaker-trúflokk­ur­inn breiddi úr sér og árið 1826 var vitað um 18 Shaker-sam­fé­lög í átta ríkjum Banda­ríkj­anna en í dag er aðeins vitað um tvo eft­ir­lif­andi með­limi trú­ar­innar. Shaker-trúin náði hápunkti sínum á árunum 1820-1860 og var það þá sem hús­gagna­hönnun þeirra og -smíði fór að vekja athygli. Hús­gögnin áttu það sam­eig­in­legt að vera með­færi­leg og lát­laus, þá helst úr ljósum og léttum við eins og hlyn eða furu. Fúnk­sjóna­l­ism­inn var í hávegum hafður og var ávallt leitað sniðugra lausna til að sníða hús­gögnin eftir þörfum hverju sinni. Mik­il­vægt var að sem flestir inn­an­stokks­munir gætu verið hengdir upp á eins­konar sna­ga­bretti sem lágu um vegg­ina endi­langa og voru ein­kenn­andi í híbýlum þeirra, en það að hengja hlut­ina upp á þennan hátt spar­aði bæði pláss og auð­veld­aði þrif. Fjöl­margar upp­finn­ingar hafa verið kenndar við Shaker­ana, m.a. fyrsta þvotta­vélin, hring­sög, flatur kústur og þvottaklemman. Stól­arnir þeirra voru þekkt­astir og vin­sæl­astir en þeir eru til­tölu­lega auð­þekkj­an­legir; setan ofin og bakið svipar til stiga enda kall­aðir „ladderback chairs“. Áhrif Shaker-stíls­ins má greina víða, t.d. í skand­ína­vískum við­ar­hús­gögnum eft­ir­stríðs­ár­anna. Það má með sanni segja að þessi litli trúflokkur hafi haft veru­leg og langvar­andi áhrif á hönn­un­ar­sög­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni