Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Klassísk og hlýleg hönnun í Keflavík

Hús og Híbýli heim­sóttu þau Viktoríu Hrund Kjart­ans­dóttur og Brynjar Guð­laugs­son í sumar í fal­lega nýupp­gerða íbúð í Keflavík. Íbúðin er 95 fer­metrar að stærð í húsi sem byggt var á átt­unda ára­tugnum. Íbúðin sam­anstendur af tveimur rúm­góðum her­bergjum, sam­liggj­andi opnu eld­húsi og stofu auk bað­her­bergis.

Klassísk og hlýleg hönnun í Keflavík

Viktoría var í sumar nýút­skrifuð með BA-próf í arki­tektúr frá Lista­há­skóla Íslands og Brynjar starfar sem fast­eigna­sali. Bæði eiga þau rætur að rekja til Kefla­víkur en Viktoría flutti þó ung til Hafn­ar­fjarðar og ólst þar upp að mestu leyti.

Viktoría beið lengi eftir rétta stofu­borð­inu en fann það í Seimei. Mottan er frá ILVA. Lista­verkið er eftir Línu Rut.

„Nú í seinni tíð hafa báðir for­eldrar mínir flutt aftur til Kefla­víkur og ætli það sé ekki alltaf þannig að maður vill vera sem næst sínum nán­ustu. Hér eigum við líka stóran og skemmti­legan vina­hóp, tengdó búa í næstu götu og amma og afi í göt­unni fyrir ofan okkur. Auk þess dreg ég það í efa að ég nái Brynjari nokkurn tíma út fyrir bæj­ar­mörk Kefla­víkur,“ segir Viktoría aðspurð að því hvers vegna þau hafi ákveðið að gera sér heim­ili í Keflavík.

Arco-lamp­inn frá Flos kemur vel út í stof­unni.

Að hugsa í lausnum

Þegar Hús og Híbýli kom í heim­sókn höfðu þau Viktoría og Brynjar búið í íbúð­inni í eitt ár og hafði þá á stuttum tíma náð að gera miklar breyt­ingar sem hafa aukið gæði íbúð­ar­innar veru­lega. Til að byrja með færðu þau eld­húsið í rými sem áður hafði verið stofa. Gamla eld­hús­inu breyttu þau svo í skrif­stofu.

„Húsið er byggt árið 1977 og þá tíðk­að­ist enn að hólfa öll her­bergi niður, þar á meðal eld­húsið. Eldhúsið finnst okkur vera hjarta heim­il­is­ins, þar njótum við þess að borða góðan mat í góðum félags­skap og því algjör synd að hafa eld­húsið í lok­uðu rými. Með þessum breyt­ingum tókst okkur líka að sam­tengja eld­húsið við stof­una,“ segir Viktoría um breyt­ing­arnar á eld­hús­inu.

Í kjöl­farið fylgdu fleiri breyt­ingar og bað­her­bergið var tekið í gegn, var stækkað tölu­vert og þannig tókst þeim á sama tíma að búa til góðan andyr­is­krók. Hjóna­her­bergið var einnig stækkað og skápa­plássið jókst veru­lega við þær breyt­ingar.

Vasarnir á borð­stofu­borð­inu hafa fylgt Viktoríu síða hún var 14 ára gömul.

„Auk þess breyttum við svefn­her­bergi í stofu, settum hita í gólf, bættum við lýs­ingu, skiptum um allar inn­rétt­ingar og hurðar svo eitt­hvað sé nefnt. Sér­stakar þakkir fær fóst­urpabbi minn fyrir að vera okkur til halds og traust í fram­kvæmd­unum en án hans værum við enn þá að,“  segir Viktoría.

Aðspurð segir Viktoría að námið í arki­tektúr hafi nýst henni afar vel í þessum fram­kvæmdum og hafi það kennt henni fyrst og fremst að hugsa í lausnum.

„Að vera í skap­andi námi eins og arki­tektúr kennir manni svo miklu meira en bara að hanna og teikna. Skapandi og fag­leg kennsla Lista­há­skóla Íslands hefur kennt mér mik­il­vægi þess að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð, hvatt mig til að þroskast og mótað mig sem betri ein­stak­ling,“  segir hún.

Rúm­gafl­inn gerðu Viktoría og Brynjar sjálf. Nátt­borðin eru úr Heima­hús­inu.

Reyna alltaf að vera útsjónarsöm

Sígilt, hlý­legt og stíl­hreint eru orð sem lýsa heim­il­inu vel. Viktoría segir að við val á hús­gögnum og hlutum reyni þau Brynjar að vera útsjón­ar­söm. Þau hafa gert mörg góð kaup á Netinu og finnst þeim skemmti­legt að gefa gömlum hlutum nýtt líf og blanda þeim saman við nýja hluti.

Þau kaupa það sem þeim finnst fal­legt hverju sinni óháð því frá hvaða merkjum vör­urnar koma og óháð þeim versl­unum sem selja hlut­ina. Hún seg­ist þó hafa meira um það að segja hvað sé valið inn á heim­ilið en Brynjar, alla­vega að lokum.

Þegar ég vel liti heima vel ég frekar hlýja jarð­liti sem eld­ast vel en það er þó alltaf gaman að nota aðra sterk­ari liti til þess að brjóta upp mynstrið.

„Brynjar segir oft að hann skilji ekki hvernig hann nennir að rök­ræða við mig um heim­ilið því ég ráði þessu hvort sem er undir lokin og ég held það sé alveg satt hjá honum,“  segir Viktoría en inn­blást­ur­inn sækir hún meðal ann­ars í fal­legar hönn­un­ar­bækur sem hún kaupir á ferðum sínum erlendis.

Instagram notar hún líka mikið og finnst henni gaman að deila myndum af eigin heim­ili þar undir eigin nafni. Upp­á­halds­lit­ur­inn er rauður en þar sem hann er sterkur og krefj­andi litur fær hann ekki mikið vægi á heim­il­inu. „Þegar ég vel liti heima vel ég frekar hlýja jarð­liti sem eld­ast vel en það er þó alltaf gaman að nota aðra sterk­ari liti til þess að brjóta upp mynstrið og þá skiptir ekki máli hver lit­ur­inn er,“ segir hún.

Hannar íbúðir fyrir aðra

Viktoría hefur ekki ein­ungis hannað eigin íbúð heldur hefur hún tekið að sér að hanna og inn­rétta íbúðir fyrir aðra. Hún segir að í slíkum verk­efnum sé mik­il­vægt að bera virð­ingu fyrir per­sónu­legum stíl eig­anda og að heim­ilið fái að end­ur­spegla per­sónu­leika við­kom­andi. Einnig er mik­il­vægt að koma með lausnir af vel úthugs­uðum rýmum sem eru í senn tíma­laus, hlý­leg og stíl­hrein. Algeng­ustu mis­tökin sem fólk gerir þegar það inn­réttar heim­ili sín segir hún vera að lausnir sem eiga að vera til bráða­birgða eigi það til að enda sem loka­nið­ur­staða ef of langur tími líður. Þá skipta vönduð vinnu­brögð miklu máli og því mik­il­vægt að fá fag­menn til aðstoðar og arki­tekt til þess að leið­beina.

Bað­inn­rétt­ingin er eld­húsinn­rétt­ing frá IKEA. Flís­arnar eru frá Flísa­búð­inni.
Baðspeg­ill­inn er frá Esja Dekor og ljósið fæst í Snúrunni.

Þess má geta að þegar við heim­sóttum Viktoríu og Brynjar höfðu þau nýlokið við að selja íbúð­ina sem gekk hratt fyrir sig enda virki­lega fal­leg og vel skipu­lögð eftir breyt­ing­arnar.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni