Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Risarnir í Basel

Herzog & de Meuron – ein stærstu nöfnin í arki­tekta­heim­inum í dag.

Risarnir í Basel

Arki­tekta­stofan Herzog & de Meuron hefur hannað margar af stærstu og þekkt­ustu bygg­ingum heims á síð­ari árum og er því óhætt að segja að stofn­endur hennar, Jacques Herzog og Pierre de Meuron, séu ein stærstu nöfnin í arki­tekta­heim­inum í dag. Herzog & de Meuron stund­uðu báðir nám við ETH í Zürich og hafa kennt við Harvard og ETH. Stofuna stofn­uðu þeir í Basel árið 1978.

Í dag eru eig­endur hennar fimm og starfs­menn rúmir 400 tals­ins í heild­ina sem starfa víðs­vegar um Evrópu, Ameríku og Asíu. Verk þeirra spanna allt frá ein­býl­is­húsum upp í borgar- og deiliskipu­lag en mörg af stærri verkum þeirra eru orðin helstu kenni­leiti þeirra borga sem bygg­ing­arnar eru stað­settar í. Stofan hefur unnið mörg af virt­ustu verð­launum heims á sviði arki­tekt­úrs.

Fíl­harm­ón­ían í Hamborg.

Hefðir og nýsköpun
Margar af þeirra þekkt­ustu bygg­ingum eiga það sam­eig­in­legt að hafa verið umdeildar í upp­hafi og fengið mis­jöfn við­brögð en stefna Herzog & de Meuron er einmitt sú að skapa sam­tal og hafa áhrif. Þeir vilja ekki ein­ungis hanna það sem telst fal­legt heldur vilja hafa áhrif á ein­stak­ling­inn og fá hann til þess að upp­lifa eitt­hvað stór­feng­legt. Þeir hafa verið lof­aðir fyrir það að halda í hefðir en á sama tíma verið tals­menn nýsköp­unar.

Þetta hljómar þver­sagna­kennt en það sem gerir verk þeirra áhuga­verð er sam­spil þess­ara þátta, hefða og nýsköp­unar, sem vega hvor annan upp. Verk þeirra örva skiln­ing­ar­vitin og eru bæði heill­andi og spenn­andi og mörg þeirra eru unnin í sam­starfi við lista­menn en með þeirri sam­vinnu segj­ast þeir fá nýja sýn á veru­leik­ann þar sem lista­menn séu eðli máls­ins sam­kvæmt van­ari að hugsa út fyrir rammann.

Nýr leik­vangur Stamford Bridge tekur 60.000 manns í sæti.

Fjaðrafok, fugla­hreiður og fíl­harm­ónía
Und­ir­rituð heim­sótti stof­una haustið 2017 í Basel sem var væg­ast sagt mikil upp­lifun. Nýr leik­vangur Chelsea, Stamford Bridge, í Englandi var þá í brennid­epli en ekki lá þá ljóst fyrir hvort bygg­ing hans yrði að veru­leika. Teikn­ing­arnar voru afhjúpaðar árið 2015 og bygg­ing­ar­leyfi fékkst snemma árs 2017 en í kjöl­farið hófst mikið fjaðrafok. Mörgum þótti bygg­ingin taka of mikið pláss í umhverf­inu og íhalds­mönnum þótti hún of nýstár­leg og ekki falla að enskum bygg­ing­ar­hefðum.

Stefnt var að því að bygg­ingu leik­vangs­ins ætti að ljúka árið 2021 en verk­efnið var alger­lega sett á ís á síð­asta ári og mun fram­tíðin ein leiða það í ljós hvernig þessum málum lyktar.
Í hópi þeirra þekkt­ustu verka að með­töldu íþrótta­leik­vang­inum Fugla­hreiðr­inu í Peking er Vitra-húsið í Þýska­landi á Vitra-reitnum svo­kall­aða sem sam­anstendur af ráð­stefnu­húsi, sýn­ing­ar­rýmum fyrir Vitra-safnið, verslun, mót­töku­svæði og veit­inga­húsi og er stað­sett í Weil am Rhein við landa­mæri Þýska­lands, Sviss og Frakk­lands.

Vitra-safnið er aðeins eitt af mörgum verkum sem Herzog & de Meuron hafa hannað í Þýska­landi en það nýjasta er Fíl­harm­ón­ían í Hamborg. Hönn­un­ar­ferlið spann­aði um það bil 10 ár og er útkoman glæsi­leg. Fíl­harm­ón­ían er byggð ofan á vöru­hús við Ham­borg­ar­höfn sem nefn­ist Kaispeicher og var vöru­húsið byggt á árunum 1963-1966, ósköp venju­legt vöru­hús sem fáir veittu eft­ir­tekt. Í dag er bygg­ingin eitt helsta kenni­leiti Ham­borgar og mikið aðdrátt­ar­afl fyrir ferða­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni