Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hrátt og heillandi

Þor­steinn Eyfjörð Jónsson, eig­andi Hand­verks­húss­ins, og gull­smið­ur­inn Lovísa Hall­dórs­dóttir Olesen búa í fal­legu ein­býl­is­húsi í Garða­bænum ásamt börnum þeirra beggja og hund­inum Myrru.

Ein­býl­is­hús þeirra Þor­steins og Lovísu var byggt árið 1968 og eru rúmir 240 fm að stærð. Húsið er vel skipu­lagt á einni hæð og er rýmið tölu­vert opið og flæðir skemmti­lega. Þau fluttu inn sum­arið 2017 og bjuggu þar á undan í lít­illi íbúð í næsta nágrenni. „Við kunnum mjög vel við okkur hérna í Garða­bænum og ákváðum bara að halda okkur í hverf­inu.“  Áður en þau fluttu inn hafði tölu­vert mikið verið end­ur­nýjað, svo þau þurftu ekki að fara í miklar end­ur­bætur.

Handverkshúsið

Þor­steinn stofn­aði Hand­verks­húsið fyrir um 20 árum, en Lovísa starfar einnig þar hluta dags þar sem hún er yfir gull­smíða­deild­inni. Hún útskrif­að­ist sem gull­smiður frá Iðn­skól­anum árið 2007 og er með skart­gripa­merkið by lovisa. Hún með verk­stæðið sitt heima og segir það algjöran lúxus. „Ég get verið að vinna heima á kvöldin og börnin að leika frammi, en þau vita bara af mér hér inni.“

Stofu­borðið er útbúið úr vörum frá nýrri deild Hand­verks­húss­ins: Home og ljósið er frá House Doctor úr Fakó. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Þosteinn talar um nýj­ung hjá Hand­verks­hús­inu, en þau séu að koma á lagg­irnar Home Decor-deild. „Við fundum fyrir ákveð­inni vöntun á mark­að­inum fyrir þann hóp sem vill skapa, smíða og græja sjálfur heima fyrir. Fólk getur þá fengið smá­vegis þjón­ustu og aðstoð í kringum það og keypt hrá­efni eða harð­við til að smíða hillur, borð og fleira inn á heim­ilið.“

Flotað gólf lætur húsgögnin poppa

Hvaðan koma hús­gögnin og hvar verslið þið aðal­lega inn á heim­ilið? „Þetta er algjört sam­bland hjá okkur en við finnum hitt og þetta sem okkur þykir passa inn, sama hvort það er úr Ikea, Pennanum eða Lumex.“

Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Þegar þau tóku við hús­inu var gólfið flotað og var á dag­skrá að velja annað gól­f­efni. „Svo erum við bara algjör­lega að fíla gólfið svona flotað, hús­gögnin fá að njóta sín svo vel, en þessi grái bak­grunnur virkar vel með eldri hús­gögnum.“

Stíllinn okkar er frekar ein­faldur, nýtt í bland við hlý­leg eldri hús­gögn með karakter, nátt­úru­legur hrár viður og dökkir tónar.

Aðspurð um stíl­inn segj­ast þau aðal­lega vera að reyna að skapa hlý­legt heim­ili og láta hlut­ina virka í rým­inu. „Stíllinn okkar er frekar ein­faldur, nýtt í bland við hlý­leg eldri hús­gögn með karakter, nátt­úru­legur hrár viður og dökkir tónar. Bæði horn­skáp­ur­inn í stof­unni og skenk­ur­inn í for­stof­unni eru dönsk smíði og hefur hefur hvort tveggja fylgt Þor­steini í 25 ár. „Ég hef oft reynt að reynt að losna við horn­skáp­inn í gegnum tíð­ina því hann er fyr­ir­ferða­mik­ill og passar ekki inn alls­staðar, en nú er hann loks­ins kom­inn á réttan stað.“

Persónuleg list á veggjum

Aðspurð um upp­á­halds­hlut­ina eru þau Þor­steinn og Lovísa sam­mála um að það séu þau verk eða myndir sem börnin hafa búið til og gefið þeim. Á veggj­unum má sjá mörg per­sónu­leg verk, inn­ram­mað ljóð sem er í sér­stöku upp­á­haldi, myndir eftir dóttur Lovísu, mál­verk eftir Arnþór Þor­steins­son, afa Þor­steins, og hin ýmsu verk sem hafa ratað með þeim heim eftir ferða­lög.

Er ein­hver hönn­uður í upp­á­haldi? „Karl Lag­erfi­eld stendur upp úr hvað varðar fata­hönnun, en hvað varðar inn­an­húss­hönnun erum við mikið fyrir þetta skand­in­av­íska og svo­lítið að vinna með „less is more“.“

Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Parið seg­ist safna fal­legum bókum, en Þor­steinn seg­ist hafa frels­ast úr viðjum þess að sanka að sér hlutum fyrir um tveimur árum – hann safnar þó enn sjald­gæfum hrá­efnum sem er hægt að nýta í ein­hvers­konar sköpun þegar tími gefst.

Aðspurð um hvað sé á döf­inni tala þau um að næst á dag­skrá hvað varðar húsið sé að taka garð­inn í gegn og smíða harð­við­ar­pall. „Við fluttum inn síð­asta sumar og þurftum auð­vitað tíma til að gera nota­legt og koma okkur fyrir, en garð­ur­inn var eins og Amazon-frum­skóg­ur­inn og það þarf að taka hann í gegn,“ segir Lovísa og skellir upp úr. En þau hlakka til að gera nota­legt í garð­inum þegar að því kemur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni