Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Skandinavískur bóhemstíll heima hjá Linneu

Í hádeg­inu á rólegum og björtum mið­viku­degi banka blaða­maður og ljós­mynd­ari upp á í fal­legu rað­húsi í Foss­vog­inum. Til dyra kemur hin glæsi­lega Linnea, en hér býr hún ásamt fót­bolta­mann­inum Gunnari Þór og börnum þeirra, þeim Þóru og tví­burunum Viðari og Elvari. „Ég er fegin að þið eruð örlítið sein, en ég náði að skjót­ast í sturtu á meðan!“ segir Linnea, nýböðuð og fersk.

Skandinavískur bóhemstíll heima hjá Linneu

Húsið er byggt árið 1970, er rúmir 220 fer­metrar að stærð, það stendur á tveimur hæðum og er á pöllum eins og svo mörg hús frá þessum tíma og þá sér í lagi í þessu hverfi. Á efri hæð húss­ins er for­stofa, eld­hús, gesta­bað­her­bergi ásamt sam­liggj­andi stofu og borð­stofu og á þeirri neðri er vinnu­rými með beint aðgengi út í garð, svefn­her­bergin, bað­her­bergi og þvotta­her­bergi.

Hvernig líkar ykkur hérna í Foss­vog­inum? „Við höfum búið hér í hverf­inu síðan dóttir okkar fædd­ist, en áður bjuggum við í íbúð í grennd­inni og fluttum í þetta hús fyrir einu og hálfu ári. Gunnar ólst upp hér í hverf­inu og for­eldrar hans búa rétt hjá – svo stað­setn­ingin er mjög góð fyrir okkur og krakk­arnir elska að vera hér! En ég held að það sé fullt af öðrum æðis­legum hverfum, eins og til dæmis Mos­fells­bær­inn, en þar gætir þú fengið nýtt hús með betra útsýni á svip­uðu verði.“ Linnea bætir einnig við að veðrið sé oft mjög gott í Foss­vogs­dalnum og það sé auð­vitað mik­ill plús.

Hús­ráð­andi segir frá hús­inu og talar um að all­flestir hlutir hafi verið komnir á tíma og þurft á lag­fær­ingu að halda þegar þau tóku við því. „Við lýstum gólfið og mál­uðum pan­el­inn í loft­unum, við reyndum að nýta það sem fyrir var eins og við gátum. Hand­riðið í stig­anum létum við hækka og pólý­húða, ásamt því fjar­lægja úr því mynstur sem var á milli riml­anna í stað þess að kaupa bara nýtt.“

Hún bætir því við að nokkrir veggir hafi fengið að fjúka til að opna rýmið, en áður var húsið tölu­vert nið­ur­hólfað. „Upp­á­halds­her­bergið mitt er her­bergi strák­anna, það er svo nota­legt – mér finnst það rými hafa lukk­ast mjög vel.“ Hún bætir við að með því að mála vegg­ina upp til hálfs í barna­her­bergj­unum geti maður látið rýmið virð­ast stærra og opn­ara en það er í raun.

Okkur fannst betra að kaupa eitt­hvað sem ekki hafði verið end­ur­gert.

En hvað ætli það hafi verið sem heill­aði við þetta til­tekna hús? „Ég held við höfum skoðað tíu hús, okkur fannst þau of hátt verð­lögð en við fengum þetta hús á flottu verði. Öll hin húsin sem við skoð­uðum höfðu verið tekin í gegn nokkuð nýlega, en ekki eins og við hefðum gert sjálf. Okkur fannst betra að kaupa eitt­hvað sem ekki hafði verið end­ur­gert, á lægra verði, og fá að gera það algjör­lega eftir okkar höfði.“

Eru ein­hverjar frek­ari fram­kvæmdir í kort­unum? „Já, á næsta ári langar okkur að taka eld­húsið og baðið í gegn … og jú, garð­inn líka!“ segir Linnea. Það er auð­vitað alltaf nóg að gera þegar maður flytur og þá sér­stak­lega inn í eldra hús sem þarf örlitla ást og alúð.

Dugleg að ganga í öll verk

Stíll heim­il­is­ins er í grunn­inn léttur og skand­in­av­ískur, sem kemur ekki á óvart enda er Linnea ættuð frá Svíþjóð. Það má sjá mikið af tré, basti og nátt­úru­legum efnum í bland við grænar plöntur og vel úthugs­aða lita­tóna, þar sem grænn, bleikur og grár eru áber­andi.

Ég er ansi lunkin í því að finna fal­lega hluti sem kosta lítið.

Hefur þú alltaf haft áhuga á inn­an­húss­hönnun? „Mamma mín er inn­an­húss­arki­tekt, svo ég hef alist upp við þetta og hef lík­lega fengið mikið af áhug­anum frá henni.“

Linnea seg­ist vera dug­leg að kaupa eitt­hvað fal­legt fyrir heim­ilið þegar hún ferð­ast utan land­stein­anna, enda sé svo gaman að eiga slíka minja­gripi.

„Ég er ansi lunkin í því að finna fal­lega hluti sem kosta lítið og er dug­leg að fara bæði á flóa­mark­aði og finna ger­semar í versl­unum eins og Bauhaus – ódýr­ari hluti sem eru samt sem áður vand­aðir. Ég er stolt að segja fólki frá því að ég hafi gert góð kaup“! Hún seg­ist vera dug­leg að fara eigin leiðir til að ná fram þeim stíl sem hún vill hafa á heim­il­inu og nefnir meðal ann­ars mott­una í stof­unni, en hún ein­fald­lega pant­aði teppi ætlað á stiga­ganga í fjöl­býli sem búið var að skera í þá stærð sem hent­aði.

Gráa mottan í stof­unni er úr Parket og gólf og púð­arnir frá bisou.is

Hvernig gengur að hafa svona hvítan sófa með þrjú börn?

„Hah, þú sérð kannski lita­mis­mun­inn á sófa­p­ull­unum og rest­inni af áklæð­inu? Það er búið að þvo þær mjög oft, en fyrir nokkrum dögum mál­uðu strák­arnir mínir einmitt á einn púð­ann! Það þarf allt að vera vegg­fast hérna heima, en átján mán­aða tví­bura­strák­arnir mínir eru gjör­sam­lega út um allt og í öllu!“ segir Linnea og skellir upp úr. Í stof­unni hangir fal­legt og lit­ríkt mál­verk sem Linnea fékk í þrí­tugs­af­mæl­is­gjöf frá Gunnari, en hann keypti það á upp­boði í Gallerí Fold.

„Mál­verkið er af Þing­völlum en er ekki alveg þessi hef­bundna lita­pal­letta, það er málað á svip­uðum tíma og húsið er byggt svo það passar vel hér inn.“

Við rekum augun í glæsi­legt borð­stofu­borðið og for­vitn­umst aðeins um það. „Ég er mjög stolt af borð­inu, en við bjuggum það til sjálf og völdum okkur hnotu í stíl við glugga­syll­urnar og eld­hús­bekk­inn. Við keyptum við­inn í Efn­is­söl­unni sem við svo pússuðum og olíu­bárum og létum síðan smíða lappir undir það í stál­smiðju. Ef ég get gert eitt­hvað sjálf kýs ég það alltaf fram yfir að borga iðn­að­ar­manni fyrir það. Við Gunnar film­uðum til dæmis allt eld­húsið svart í gær og náðum að klára það á einum degi!“ Það má með sanni segja að þau Linnea og Gunnar séu hörku­dug­leg en það er ekki á allra færi að gera upp heilt hús, ásamt því að reka verslun og ala upp þrjú ung börn á sama tíma!

Ef ég get gert eitt­hvað sjálf kýs ég það alltaf fram yfir að borga iðn­að­ar­manni fyrir það.

Petit og Bisou

Linnea hefur starf­rækt barna­versl­un­ina Petit í rúm fimm ár, versl­unin hefur vaxið hratt og örugg­lega og í dag starfa þar fimm manns í fullu starfi. Ævin­týrið hófst þegar Linnea var ólétt að dóttur sinni og flutt­ist til Íslands, en hún starf­aði áður sem mark­aðs­stjóri Volvo í Svíþjóð.

Himna­sængin og flest­öll leik­föngin í her­bergi Þóru, dóttur Linneu, fást í verslun Linneu, Petit.

Þegar hingað var komið stefndi hún á starf á svip­uðum vett­vangi, en seg­ist hafa komið að lok­uðum dyrum – enda stutt síðan efna­hag­skreppan gekk yfir. Hún tók þá ákvörðun um að skapa sína eigin atvinnu og opn­aði vef­versl­un­ina Petit, með áherslu á líf­rænar og vand­aðar barna­vörur. Versl­unin er í dag til húsa í Ármúla 23 og segir Linnea rekst­ur­inn ganga vel, það sé alltaf brjálað að gera enda er þessi flotta kona greini­lega með mörg járn í eld­inum. Nú í nóv­em­ber opn­aði Linnea einmitt nýja vef­verslun sem ber nafnið Bisou, þar sem seldir eru fal­legir munir fyrir heim­ilið ásamt fatn­aði og húð­vörum.

„Bisou er fyrir nútíma­konur sem hafa lít­inn tíma til að versla að degi til, en hafa frekar tíma á kvöldin þegar húsið er komið í ró og „ég-tím­inn“ hefst,“ segir Linnea.

Við kveðjum hina athafna­sömu og jarð­tendgu Linneu að sinni og þökkum fyrir kaffi­sopann og hlý­legar mót­t­tök­urnar.

Ljós­myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni