Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Íslensk kona alvarlega slösuð eftir hnífaárás í Noregi – Fyrrum eiginmaður hennar í haldi lögreglu

Frá vettvangi.
Frá vett­vangi. Mynd: NRK-skjáskot

Íslensk kona á sjötugsaldri er alvarlega særð eftir að fyrrum eigin­maður hennar réðst að henni með hníf á veitinga­stað í bænum Karmoy í Noregi. Hafa þau bæði búið lengi í Noregi og eru bæði norskir ríkis­borgarar.

Rúv segir frá hnífa­árásinni en þar segir að maðurinn hafi játað á sig verknaðinn en það stað­festir lögreglan í Stavanger.

Samkvæmt frétt NRK um árásina, var lögreglan kölluð til um klukkan tvö eftir hádegi í gær og var maðurinn hand­tekinn við heimili sitt aðeins fimmtán mínútum síðar. Segist lögregla hafa yfirheyrt fjöldi vitna á veitinga­staðnum.

Konan, sem búsett er í bænum líkt og fyrrum eigin­maður hennar, er á sjúkra­húsi með áverka en lögreglan hefur ekki getað rætt við hana enn. Samkvæmt heimildum Rúv lagði eigin­maðurinn fyrir­verandi eld að heimili konunnar síðasta haust er hún var þar inni. Fékk hún nálgunar­bann á hann í kjölfarið. Höfðu þau verið gift í á fjórða áratug og eiga uppkomin börn.

Maðurinn, sem hefur verið í lögreglu­haldi síðan í gær, verður færður fyrir dómara eftir hádegi í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs