Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Erlendum sjómanni bjargað úr sjálfheldu á Hólmatindi – Þyrla Landhelgisgæslunnar mætti á vettvang

Frá björgunaraðgerðunum í gær. Ljósmynd: Björgunarsveitin Gerpir
Frá björg­un­ar­að­gerð­unum í gær. Ljósmynd: Björg­un­ar­sveitin Gerpir Mynd: Trausti Hafsteinsson

Erlendum manni var bjargað úr sjálf­heldu hátt í hlíðum Hólmatinds í gær­kvöldi.

Helj­ar­innar björg­un­ar­að­gerð var fram­kvæmd í hlíðum Hólmatinds í Eski­firði í gær­kvöldi. Aust­ur­frétt segir frá því að björg­un­ar­sveit­ar­menn frá Ársól á Reyð­ar­firði og Brimrún frá Eski­firði, auk þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar hafi í gær­kvöldi tekið þátt í að bjargar erlendum manni sem hafði komið sér í sjálf­heldu hátt í hlíðum Hólmatinds. Tóku aðgerð­irnar alls sex klukku­stundir og lauk í nótt.

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu kemur fram að um hafi verið að ræða mann af erlendu skipi sem hafði lagst að í Eski­fjarð­ar­höfn fyrr um dag­inn. Hrein til­viljun réði því að til manns­ins sást en björg­un­ar­sveit­ar­menn Brim­rúnar voru akkurat á báta­æf­ingu í firð­inum er þeir tóku eftir ljósi hátt í hlíðum hins bratta og tign­ar­lega fjalls, um klukkan 20:30 í gær­kvöldi. Undir eins var aðgerð­ar­stjórn virkjuð og óskað eftir aðstoð þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar.

Fljótt kom í ljós að mað­ur­inn var í hættu­legum aðstæðum í um fimm hund­ruð metra hæð og myrkri en með hjálp dróna var unnt að greina að við­kom­andi væri í sjálf­heldu í fjall­inu. Samband var haft við mann­inn og hann beð­inn um að halda sér kjurrum á sínum stað. Tók það björg­un­ar­sveit­irnar fimm klukku­stundir að kom­ast til manns­ins enda fjallið bratt og hált og að auki var niða­myrkur á svæð­inu, en not­ast var þó við öfl­uga ljós­kast­ara.

Lög­reglan segir að mað­ur­inn hafi verið orð­inn kaldur og þreyttur en við sæmi­lega heilsu að öðru leiti. Björg­un­ar­sveit­ar­fólkið beið með mann­inum þar til þyrlan komst á stað­inn um klukkan 02:15 í nótt og flutti mann­inn til aðhlynn­ingar á Eski­firði en hann þurfti ekki inn­lögn á sjúkra­hús.

Í byrjun des­em­ber fjall­aði Mannlíf um það þegar hundi var bjargað af Hólmatindi en fjallið er afar erfitt yfir­ferðar þeim megin sem snýr að bænum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Fimm ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur á Bústaðarvegi.
Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Landið

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Tuttugu ár eru liðin frá því að vatni úr fossaröðinni í Fljótsdal var veitt inn í Hálslón
Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu