Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Tískuvikan í París – reykvélar, snjóstormur, súrrealismi og sokkar – Upplifun fyrir öll skynfærin

Stíl­stjörnurnar flykktust á tísku­vikuna í París og kepptust við að sýna sig og sjá aðra í heimsins flottustu hátísku. Hér eru nokkur trend sem við lofum að verða mjög áberandi á komandi misserum.

Louis Vuitton


Tísku­sýningin fór fram í safnarhúsinu Musee d’Orsay í París. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem tísku­sýning er haldin á safninu. Nicolas Ghesquiere, aðal­hönnuður tísku­hússins Louis Vuitton tileinkaði sýninguna ungmennum og: „von um framtíð og betri heim“. Það mátti sjá útprentaðar 90s myndir af David Sims á peysunum og á póló­skyrtunum. Og þú heyrðir það fyrst hér, háls­bindin eru komin aftur í tísku.

Balenciaga

Demna, tísku­stjórinn sem flúði Georgíu sem flótta­maður árið 1993, merkti hvert sæti með áberandi miða á Balenciaga sýningunni (ásamt stuttermabol í úkraínsku fána­litunum). Á miðanum stóð: „Sýningin táknar óttaleysi, andspyrnu og megi ást og friður sigra.“ Leik­myndin var mjög óvenjuleg þar sem settur var upp snjó­stormur á sviðið á bak við gler. Áhorf­endur sáu módelin berjast við storminn og mætti túlka tísku­sýninguna sem list­gjörning út frá atburðum í Úkraínu.

Dior


Nýjasta lína Dior tísku­hússins ber titilinn „Næsta tímabil.“ Stíllinn er klæðskera­sniðin ásamt kvenlegum siffon­kjólum og köflóttum tweeds saman við smáatriði, eins og hlífar og axlapúða í anda ameríska fótboltans. Áberandi prjóna­fatnaður, blúndu­bolir og töfrandi siffon fyrir kvöld­klæðnað. Fata­hönnunin var unnin í samstarfi við D-Air Lab, sprota­fyrirtæki sem fram­leiðir sérhæfð tækniefni fyrir íþróttir.

The Row


Mary-Kate og Ashley Olsen systurnar sýndu Row tísku­merkið í fyrsta skipti í París nú á dögunum. Ákveðin snið hafa lengi verið kjarninn í þeirra vörumerki. Á þessari tísku­sýningu mátti sjá dragsíðar flíkur langar og grannar – aðsniðið og slæður með. Mörg lög af fatnaði og fatnaðurinn mótaður að líkamanum. Þær voru greini­lega að leika sér að hlut­föllum og krögum með dempaðri lita­pallettu.

Issey Miyake


Nýjasta lína tískuhönnuðurins Satoshi Kondo heitir: ‘Sow it and let it Grow.’ Línan er hönnuð með innblástri úr villtri náttúru plantna og útliti þeirra. Allt frá því að vera fræ þar til það verður að plöntu. Tísku­sýningin byrjaði á því að sýna einlita kjóla út frá jarðlitum. Hugmyndin þróðaðist svo yfir í fallegt prjón sem var vafið um líkamann í sterkari litum. Þessi lína gæti vel gengið í íslenskri veðráttu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt