Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Natalia komst frá Kyiv til Íslands, telur að Pútín muni ganga mjög langt: „Hann er verri en Hitler“

Natalia Hordikova
Natalia Hor­dikova

„Ég heyrði sprengingar snemma morguns 24. febrúar þegar var verið að varpa sprengjum á Boryspil-flugvöll nálægt Kyiv en ég bjó þar nálægt. Ég fór út úr húsinu á hádegi sama dag og hafði aðeins lítinn bakpoka meðferðis,“ segir Natalia Khordikova sem er nýkomin til Íslands og er þar með í hópi þeirra Úkraínu­manna sem hafa komið hingað til lands vegna stríðsins í heima­landinu. „Ég fór heim til dóttur minnar, Zoryana, vegna þess að það er kjallari í húsinu þar sem hún býr. Ég vonaði að við gætum verið þar öruggar fyrir sprengjunum.“

Við heyrðum enda­lausar spreng­ingar og jörðin og húsið skalf.

Natalia fæddist og ólst upp í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, þar sem hún starfaði sem grunn­skóla­kennari en hún lærði barna­sálfræði. Mæðgurnar og aðrir íbúar fjölbýlis­hússins söfnuðust saman í kjallaranum um kvöldið og voru þar næstu daga og nætur .„Fólk var í sjokki og börn grétu. Húsið er í úthverfi Kyiv og skammt frá borginni Irpin þar sem hörð hernaðar­átök áttu sér stað. Við heyrðum enda­lausar sprengingar og jörðin og húsið skalf. Við heyrðum í rússneskum flugvélum og féllu sprengjur á einbýlis­húsin rétt við húsið og við sáum eld og reyk. Fólkið í kjallaranum sagðist aldrei trúa því að stríð af þessari stærðar­gráðu myndi brjótast út þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. Við eigum öll ættingja og vini í Rússlandi.“

Við vorum hrædd við að fara úr kjall­ar­anum.

Fólk svaf og borðaði á gólfinu í kjallaranum. Natalia segir að þar hafi verið 30-40 full­orðnir og 15-20 börn. „Við vorum hrædd við að fara úr kjallaranum og inn í íbúðirnar til að elda mat en við heyrðum endalaust í sírenum og sprengjum sem féllu. Allir trúðu á úkraínska hermenn og fólk bað fyrir þeim og lífi okkar.“

Natalia segir að þær mæðgur og hundur Zoryana, sem er af tegundinni Golden Retriever, hafi dvalið í kjallaranum í 12 sólar­hringa frá stríðs­byrjun 24. febrúar.

„9. mars fórum við mæðgurnar og hundurinn í bíl frá Kyiv og ókum til borgarinnar Lviv. Við keyrðum í tvo daga á slæmum vegum á milli þorpa og við dóttir mín vorum hrædd um að Rússar myndu varpa sprengjum á vegina og að skotið yrði á bílana. Það var fullt af bílum; það voru börn, gamalt fólk og jafnvel dýr í öllum bílunum. Zoryana og hundurinn urðu eftir í Lviv þar sem hún starfar sem sjálfboða­liði á lestar­stöðinni í borginni og aðstoðar flótta­fólk.“

Konur og börn í lestinni

Natalia tók lest 13. mars frá Lvov til að fara til Póllands.

Margar konur voru ekki með far­angur með sér.

„Á friðar­tímum tekur ferðin með lest um tvær klukku­stundir en að þessu sinni tók ferðin um 13 klukku­stundir. Það voru margar mæður, ömmur og börn í lestinni – en úkraínskum körlum á aldrinum 18 til 60 ára var bannað að fara úr landi – og fólk sat ekki bara í sætunum heldur líka á bakpokum á göngunum á milli sætarað­anna og margar konur stóðu. Margar konur voru ekki með farangur með sér. Enga auka­fatnað. Þær töluðu um hversu erfitt það væri að yfirgefa heimili sín og hvað þær væru hræddar þegar þeir heyrðu sprengingar og skothríð.“

Lestin stoppaði svo loksins á lestarstöð í Przemysl í Póllandi.

„Ég er þakklát sjálfboða­liðunum í Przemysl. Við fengum strax að borða og útskýrðum hvernig og hvert við værum að fara næst. Ég er mjög þakklátur vinum mínum í Póllandi en tvær úkraínskar flótta­fjölskyldur búa í íbúðinni þeirra. Ég gisti þar í eina nótt og síðan fóru vinir mínir með mig út á flugvöll en ég flaug til Íslands 15. mars.“

Reiði og hatur

Natalia segist varla hafa trúað því að hún væri að fljúga til friðsæls lands þar sem ekkert stríð geisar.

Ég fann fyrir reiði og hatri í garð óvin­anna.

„Eftir innrás Rússa í Úkraínu var ég undrandi og langaði að spyrja hvers vegna Rússar gerðu þetta. Svo var ég reið þegar ég frétti af voða­verkum þeirra, sá myndir af rústum borga sem áður höfðu blómstrað og frétti af dauða óbreyttra borgara. Ég fann fyrir reiði og hatri í garð óvinanna sem leyfðu ekki íbúum að yfirgefa borgir og bæi og margir full­orðnir og börn voru drepin. Ég gat hvorki borðað né sofið en þegar ég sofnaði vaknaði ég tveimur eða þremur tímum síðar.“

Natalia hefur liðið betur eftir að hún kom til Íslands. „Það sem ég upplifi á Íslandi er að ég er í friðsælu landi, það er þögn og engar sprengjur falla. Okkur var vel tekið og ég vil þakka stjórn­völdum og lands­mönnum fyrir aðstoðina sem við höfum fengið. Mig langar að finna vinnu og mig dreymir um að kynnast fegurð Íslands: Að skoða til dæmis fossa og hveri.“

Dóttir Natalia er í Lviv eins og hefur komið fram og sonur hennar er í Kyiv.

„Systir mín og faðir, sem er 86 ára, eru enn í Kyiv. Pabbi er veikur og getur ekki farið. Ég hef miklar áhyggjur af öryggi fjöl­skyldu minnar en þau eru ánægð fyrir mína hönd vegna þess að ég er örugg. Þau sögðu mér að fara til Íslands svo að ég yrði örugg.“ Guðdóttir Natalia býr á Íslandi og aðstoðar hana.

Virðist vilja þriðju heimsstyrjöldina

Natalia segist aldrei hafa trúað því að Rússar myndu hefja stríð í Úkraínu og það hafi komið sér á óvart þegar þeir réðust inn í landið í síðasta mánuði.

„Þegar ég var yngri dáðist ég að rússneskum lista­mönnum eins og rithöfundum og skáldum og þegar ég var fullorðin fór ég til St. Péturs­borgar og Moskvu og fór í frábær söfn og leikhús. En það var sárt þegar Rússar innlimuðu Krím­skagann árið 2014 og hófu stríð í Donbass. Í kjölfarið hófst áróður í Rússlandi um að Úkraínu­menn væru óvinir Rússlands.“

Hann virð­ist vilja þriðju heims­styrj­öld­ina.

Natalia segist halda að Pútín muni ganga mjög langt. „Hann er verri en Hitler. Pútín getur fyrir­skipað notkun kjarnorku­vopna eða hann getur fyrir­skipað að sprengja Tsjernobyl-kjarnorku­verið í loft upp. Honum er sama þótt fólk verði drepið; hann virðist vilja vald yfir öllum heiminum. Rússnesk stjórn­völd hafa áhuga á hagsmunum rússnesku olígarkanna en virðast ekki hafa áhuga á óbreyttum borgurum. Undan­farna daga og vikur hef ég komist að því að hetjur úkraínska hersins og Úkraínu­menn eru sterk þjóð. Úkraínu­menn trúa á sigur í Úkraínu. Allur heimurinn styður Úkraínu í barátt­unni gegn Pútín. Markmið Pútíns er ekki aðeins að vinna stríðið í Úkraínu. Ef Pútín vinnur stríðið í Úkraínu mun hann ekki hætta. Hann mun berjast við önnur Evrópu­lönd. Pútín virðist vilja búa til sitt eigið heims­veldi. Hann virðist vilja þriðju heims­styrjöldina. Litla Úkraína heldur aftur af her Pútíns og kemur í veg fyrir að hann ráðist inn í önnur Evrópu­lönd. Alþjóða­samfélagið ætti að vera meðvitað um þetta. Fáir Rússar skilja frelsi, vilja­frelsi, hugsana- og tjáningar­frelsi. Ég bjó í Sovét­ríkjunum í 27 ár og veit hvað falskur áróður er. Ég man hvernig fólk trúði áróðri. Þannig að þótt Rússland sé þræll áróðurs Pútíns virðist hann hata ekki aðeins Úkraínu heldur allan heiminn. Rússar virðast vilja leggja undir sig Evrópu og Banda­ríkin og vilja völd yfir öllum heiminum. Fólk í Evrópu og Banda­ríkjunum býr í lýðræðis­ríkjum, það er húmanistar og skilur ekki illskuna sem býr að baki Rússlandi og Pútín.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá