Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Þorbjörg um Bjarna: „Eftirlitsstofnun sem heyrir undir hann rannsakar mál sem hann ber ábyrgð á“

Þorbjörg Gunnlaugs­dóttir, þingmaður Viðreisnar, veltir fyrir sér stöðu fjármála­ráðherra gagnvart rannsókn Fjármála­eftirlitsins á sölu Íslands­banka á Twitter í dag. Hún bendir á ákveðna mótsögn sem henni þykir bersýni­lega nokkuð undarleg.

„Í hvaða stöðu er ráðherra þegar eftirlits­stofnun sem heyrir undir hann rannsakar mál sem hann ber ábyrgð á?“ spyr Þorbjörg. „Opinbert eftirlit með fjármála­starfsemi heyrir undir fjármála­ráðuneytið. Fjármála­ráðherra er skv. því æðsti yfirmaður Fjármála­eftirlits sem rannsakar þætti banka­sölunnar.“

Konráð S. Guðjónsson, aðal­hagfræðingur Stefnis og fyrrum aðstoðar­framkvæmda­stjóri Viðskipta­ráðs Íslands, telur að þarna fari Þorbjörg ekki með rétt mál og segir Fjármála­eftirlitið ekki heyra undir fjármála­ráðherra. „FME er reyndar hluti af Seðla­bankanum og heyrir undir forsætis­ráðherra,“ segir Konráð í athugasemd við færslu Þorbjargar.

„Sýnist eftirlits­þátturinn heyra undir fjármála­ráðherra, af forseta­úrskurði. Skiptist milli þessara tveggja ráðuneyta,“ svarar Þorbjörg þá.

Fyrir­komulagið virðist snúið, því eins og sést á skjáskoti sem Konráð birtir af vefsíðu Seðla­banka Íslands heyrir bankinn sannarlega undir forsætis­ráðuneytið, þótt Fjármála­eftirlitið geri það ekki. „Kannski er búið að fenna eitthvað yfir, en þetta er vægast sagt ruglingslegt.“

Þorbjörg bendir á að þáttur fjármála­eftirlits virðist heyra undir fjármála­ráðuneytið, þrátt fyrir að Seðla­bankinn heyri undir forsætis­ráðuneytið.

„Eins og ég segi þá virðist þáttur fjármála­eftirlits undir fjármála­ráðuneyti, sbr. t.d. vefsíða ráðuneytisins og lög um opinbert eftirlit með fjármála­starfsemi,“ segir Þorbjörg.

Þorbjörg hefur verið beitt á Twitter í gagnrýni sinni á ríkis­stjórnina í tengslum við söluna á Íslands­banka. Í gær birti hún til að mynda eftir­farandi færslu:

„Ríkis­stjórnin lokar páskunum með því að kross­festa Banka­sýsluna. Halda svo áfram í páska­fríinu og sleppa ríkis­stjórnar­fundi í dag.“

Í gærkvöldi birti hún síðan eftir­farandi færslu:

„Forsætis­ráðherra vill bíða niður­stöðu rann­sóknar áður en dómar eru felldir um hvernig útboð í Íslands­banka gekk. Beið samt ekki niður­stöðu neinnar rann­sóknar áður en hún kynnti að leggja á Banka­sýsluna niður. Meanwhile Fjármála­ráðherra: Í heildina heppnaðist salan bara vel.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá