Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Bjarni Ben um kaup föður síns í Íslandsbanka: „Var honum bannað að kaupa?“

Salan á hlut í Íslands­banka nýverið hefur valdið gríðar­lega miklum deilum í íslensku samfélagi, og afar mikill þrýstingur hefur verið á formanni Sjálfstæðis­flokksins og fjármála­ráðherra, Bjarna Benedikts­syni, vegna kaupa föður hans á hlut í bankanum. Bjarni var í viðtali við í útvarps­þættinum á Sprengis­andi á Bylgjunni í dag þar sem hann sagði meðal annars þetta um banka­söluna:„Ég held að það sé margt í upplifun okkar, sem eru á bak við þá ákvörðun að selja eignar­hluti í bankanum, að það hafi skort á upplýsinga­gjöf og gegnsæi í aðdrag­anda og framkvæmd útboðsins; svona ákveðnir grundvallar­þættir sem geta gert ríkis­stjórnum, og í þessu tilfelli, kannski fyrst og fremst mér, erfitt fyrir. Og við viljum fara betur í það hvort að við getum ekki fundið annað fyrir­komulag sem betur getur tryggt þessa þætti. En við ætlum fyrst að fá úttekt sem er í gangi, og ég stend alveg með Banka­sýslunni; hef ekki komið auga á lögbrot, og við erum ekki heldur að halda því fram.“Bætir við:„Menn eru að gera ágreining um það að mögulega hafi starfs­maður í einhverjum sjóði látið maka sinn kaupa: Segi þá bara, endilega skoðum það. Það er gott að Seðla­bankinn fer ofan í það, en það verður að sjá skóginn fyrir trjánum. Við erum með eftirlits­stofnanir, fjármála­eftirlit Seðla­bankans, sem ég vænti þess að séu að skoða hvort hæfir fjár­festar eingöngu hafi tekið þátt, og önnur atriði sem þeir hafa fengið ábendingar um. Það verður skoðað.“Bjarni gefur lítið fyrir gagnrýni stjórnar­andstöðunnar á málinu:„Röksemda­færslur stjórnar­andstöðunnar eru komnar í hringi; fyrst var sagt að við hefðum handvalið kaupendur, en þegar það var hrakið þá koma aðilar og segja að fjármála­ráðherra hefði átt að fara yfir listann og handvelja kaupendur. Menn eru komnir út í skurð með svona röksemdar­færslur,” sagði Bjarni og bætti við að „það breytir ekki hinu að Banka­sýslan hefur ekki einu sinni heimildir til að kafa ofan í þessa hluti. En Fjármála­eftirlitið hefur það. Ég er í engum vafa að þeir munu fá að finna fyrir því sem hafa farið á svig við þessar reglur.”Hann ljær einnig máls á því að „Banka­sýslan hefur frumkvæði að því að leggja til að við förum í þennan leiðangur sem endar í ráðherra­nefnd: Í ríkis­stjórn, og fer svo fyrir tvær þing­nefndir. Þar mætir Banka­sýslan og útskýrir hvernig þetta muni gerast, og mjög augljóst að þetta gerist snögglega, á einum degi frá því markaðir opna, á einum degi en margir þeirra sem sátu þessa fundi segja núna: „Ég kem af fjöllum, það sagði mér þetta enginn.“ Jafnvel fólk hér á Alþingi.”Spurður um kaup föður síns í bankanum svaraði Bjarni að bragði með spurningu: „Var honum bannað að kaupa?”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá