Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Vítalía: „Um daginn fannst mér ég sjá einn af þessum mönnum og fékk bara hálfgert kvíðakast“

Vítalía Lazareva
Vítalía Lazareva Mynd: Instagram-skjáskot

„Ég hef alveg fengið að heyra að ég sé skrýtin, frá fólki sem þekkir mig ekki, því ég hef kannski ekki endilega áhuga á sömu hlutum og allir aðrir á mínum aldri. En mér finnst fólginn styrkur í því að vera aðeins öðruvísi en aðrir. Það hræðir mig ekkert að vera öðruvísi,“ segir Vítalía Lazareva, í nýju forsíðu­viðtali Vikunnar.
Vítalíu þekkja flestir landsmenn en má segja að hún hafi orðið þjóðþekkt á einum degi í upphafi árs. Þá steig Vítalía fram í viðtali í hlaðvarps­þættinum Eigin konur og sagði frá reyslu sinni þar sem þjóð­þekktir menn brutu á henni kynferðis­lega. Vítalía er prýðis kokkur og sýnir hún reglulega frá kræsingum sem hún bæði, eldar og bakar, á Instagram síðu sinni.

Aðspurð hvernig lífið hafi breyst eftir viðtalið segir hún fyrstu dagarnir hafi verið erfiðir.
„Ég viðurkenni að fyrst var þetta bara frekar erfitt og dagarnir dimmir og þungir. Ég er vön að vera í góðri rútínu með lífið mitt en þarna datt öll rútína út og ég átti bara erfitt með að halda mér gangandi. Mig langaði varla að fara út úr húsi, gat ekki að borðað, vildi bara sofa og datt í einhvers konar þunglyndi. Við skulum bara orða það þannig að það hafi verið mikið myrkur í janúar en ég tók þetta í litlum skrefum og mér þótti vænt um að finna stuðninginn og skilninginn frá samnemendum mínum og kennurum í Háskólanum. Mér fannst auðvitað erfitt að opna mig um þetta og segja frá þessu en á sama tíma fannst mér ég líka verða að gera það, fyrir sjálfa mig fyrst og fremst. Málið varð stórt af því að þetta voru þessir menn og fékk mikla athygli, sem ég fann líka fyrir dálítilli sektar­kennd yfir þar sem mér fannst leiðinlegt að það sem kom fyrir mig skyldi einhvern veginn fá meira vægi í umræðunni en það sem hafði komið fyrir einhverja aðra,“ segir hún.

Vítalía segist vita að hún muni þurfa að mæta mönnunum sem brutu á henni einn daginn. Atvikið er þó enn ferskt í minni hennar.
„Um daginn fannst mér ég sjá einn af þessum mönnum og ég fékk bara líkamleg einkenni; byrjaði að svitna og ofanda og fékk bara hálfgert kvíðakast. Síðan var þetta ekki hann. En ég veit að ég er alls ekki búin að jafna mig þótt mér líði að vissu leyti betur en fyrir nokkrum mánuðum síðan.“

Þrátt fyrir erfiða tíma segist Vítalía, um leið, hafa gengið í gegnum mikið þroska­ferli og mótast sem manneskja.
„Í dag veit ég klárlega hvað ég vil og hvað ekki. Svo veit ég líka fyrir hvað ég vil standa og að ég vil aldrei falla í sömu gryfjuna aftur. Maður byggir ekki eigin hamingju á óhamingju annarra,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá