Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Tveggja ára stúlka á Þórshöfn lést úr Covid: „Við margsögðum að hún ætti erfitt með andardrátt“

Arnar og Petra með börnin sín
Arnar og Petra með börnin sín

Foreldrar tveggja ára stúlku sem lést eftir að hafa fengið Covid-19 telja læknis­þjónustu víða á lands­byggðinni óásættanlega en eru þau búsett á Þórshöfn í Langa­nesbyggð í Norður-Þing­eyjarsýslu ásamt börnum sínum. Þá segja þau heilbrigðis­kerfið hafa brugðist og velta því fyrir sér hvort það hefði verið hægt að bjarga dóttur þeirra ef hlustað hefði verið á þau.

hún er að reyna að gráta og hún getur það ekki

Þau Arnar Þór Ómarsson og Petra Bergrún Axels­dóttir foreldrar Berg­lindar Bjargar lýstu því í kvöld­fréttum Stöðvar 2 hvernig heilbrigðis­kerfið brást þeim þegar Berglind,dóttir þeirra, veiktist fyrsta sunnudag í mars.

Fyrr um daginn segja þau að Berglind hafi verið með tiltölu­lega lítil einkenni, smá kvef, hálsbólgu og hæsi. Það breyttist skyndi­lega um kvöldið þegar henni versnaði hratt og hringdu þau þá á Lækna­vaktina til þess að leita ráða en þá var hún með 38,8 stiga hita.

Ráðleggingarnar sem þau fengu var að vera með hana við opinn glugga en þegar þau sjá að það ber ekki árangur hringja þau aftur á vaktina og óska eftir að ræða við lækni.

„Ég fæ að tala við lækninn. Hann talar um það að það séu 70 kíló­metrar að keyra til mín og hvort það megi ekki koma hjúkrunar­fræðingur til mín,“ segir Arnar.

Læknirinn hringir þá út hjúkrunar­fræðing sem er starfs­maður á dvalar­heimili á Þórshöfn og mætir hann til fjöl­skyldunnar í kjölfarið.

„Hún kemur til okkar og stoppar stutt. Hún hlustar á henni bakið og segir að þetta sé bara eiginlega í nefinu á henni. Hún reynir að taka súrefnis­mettun á puttanum á henni sem að gengur ekki af því hún er með svo lítinn putta, þannig að hún sleppir því bara alfarið,“ segir Arnar og bætir við að þau hafi nú heyrt að það eigi að mæla súrefnis­mettun á stóru tá á litlum börnum.

„Hún er með Covid-test sem hún segir að þurfi ekki að taka. Ég spyr þá hvort hún vilji ekki taka Covid-test á okkur en henni finnst það líka bara vera óþarfi.“

Hjúkrunar­fræðingurinn ráðleggur þeim að gefa henni Nezeril og hita­lækkandi en þar með lýkur heim­sókninni.

Petra segir að Berglind hafi ekkert talað eftir að hjúkrunar­fræðingurinn fór og átti hún erfitt með andadrátt. „Svo gef ég henni hita­lækkandi þannig ég finn að hitinn lækkar. Hún sofnar og sefur svo á bringunni á mér. Ég treysti mér ekki til þess að fara að sofa því ég vildi bara fylgjast með henni,“ segir hún.

Berglind svaf illa og vaknaði upp aftur og aftur um nóttina en þegar Petra stendur upp með hana sér hún að varirnar eru farnar að blána.
„Þá sé ég að hún er að reyna, að hún getur ekki, hún er að reyna að gráta og hún getur það ekki. Þá fara varirnar að blána. Þá vek ég pabba hennar og segi honum að hann verði að hringja á Neyðar­línuna,“ segir Petra

„Ég legg hana bara strax niður á gólfið og byrja að blása og hnoða. Hún deyr bara hjá mér meðan ég er að reyna að blása í hana lífi,“ segir Arnar og bætir við að sjúkra­flutninga­mennirnir hafi komið og barist og gert allt sem þeir gátu.

„Hún kemur hálf tíu, tíu, hjúkrunar­fræðingurinn og hún er dáin um þrjú leytið,“ segja Arnar og Petra en Berglind var úrskurðuð látin um klukkan fimm um nóttina.

Úr frum­niðurstöðu krufningar kom í ljós afgerandi niður­staða en var það Covid-19 sem hafði lokað barkanum á Berglindi. Arnar og Petra segja að Berglind hafi alltaf verið hraust. Hún var ákveðin, stjórnaði eldri bræðrum sínum og fékk þá til þess að leika við sig.

„Það eru foreldrar sem að þekkja börnin sín best. Við marg­töluðum um að þetta væri í barkanum á henni og marg­sögðum að hún ætti erfitt með andar­drátt og það er bara hundsað,“ segja Petra og Arnar sem hafa nú ákveðið að flytja til Akureyrar þar sem þau dvelja núna. Ástæðan sé sú að þau hreinlega treysti sér ekki til þess að búa með syni sína eins langt frá spítala og þau hafa gert hingað til en ljóst er að heilbrigðskerfið  brást fjöl­skyldunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá