Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Dómsmálaráðuneytið fór ekki að lögum í umgengnismáli

Umboðs­maður Alþingis telur að úrskurður dómsmála­ráðuneytisins í umgengnis­máli hafi ekki verið í samræmi við lög. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun Sýslu­mannsins á höfuð­borgar­svæðinu um að vísa frá beiðni föður um að úrskurðað yrði um umgengni hans við börn hans, eins og fram kemur í frétt á Rúv í gær.

Freyr Gígja Gunnarsson, frétta­maður á RÚV tekur saman í frétt sinni að umboðs­manni sé ljóst af gögnum málsins að börnin eigi fasta búsetu hjá móður sinni og eigi þar af leiðandi rétt á að umgangast föður sinni með reglu­bundnum hætti. Það er því mat hans að sýslu­manninum hafi borið að úrskurða um umgengni og að úrskurður dómsmála­ráðuneytisins hafi ekki verið í samræmi við lög.

Skoða þurfi verklag í umgengnismálum

Mælst er til þess að ráðuneytið taki málið til nýrrar efnis­meðferðar. Umboðs­maður segir jafnframt að sýslu­maðurinn þurfi að taka afstöðu til þess hvort skoða þurfi verklag embættisins í umgengnis­málum.

Faðirinn kvartaði til umboðs­manns í mars á síðasta ári. Hann hafði árinu áður óskað eftir því við sýslumann að embættið úrskurðaði um umgengni við börn hans eftir sambúðar­slit.

Sýslu­maðurinn vísaði beiðninni frá þar sem hann taldi vafa vera um hjá hvoru foreldrinu börnin væru búsett og þá við hvort foreldrið börnin skyldu njóta reglulegrar umgengni.

Við fyrirtöku á málinu tók sýslu­maður fram að ekki hefði verið leyst úr ágreiningi foreldranna um forsjá og lögheimili barnanna. Þau væru enn skráð í sambúð og hefðu lögheimili á sama stað. Þá greindi þeim á um hjá hvoru þeirra börnin væru búsett og hefðu ekkert samráð um dvalar­stað barnanna hverju sinni.

„Í óþökk föður“

Faðirinn kærði niður­stöðuna til dómsmála­ráðuneytisins. Hann lagði áherslu á að þótt foreldrarnir væru með skráð lögheimili á heimili barnanna væri ágreinings­laust að hann hefði ekki dvalist þar lengi. Börnin væru því búsett hjá móður „í óþökk föður“ og því væri ekki rétt að ágrein­ingur væri um hvar börnin væru búsett.

Ráðuneytið staðfesti ákvörðun sýslusmannsins með þeim orðum að til þess að sýslu­maður tæki fyrir beiðni um umgengni við barn yrðu foreldrar að hafa leitast við að koma ágreinings­málinu til úrlausnar hjá dómstólum.

Umboðs­maður segir að foreldrar eigi að geta krafist úrskurðar sýslu­manns um umgengni óháð hjúskapar-eða sambúðar­stöðu sinni þegar þeir búa ekki lengur saman. Önnur niður­staða væri í andstöðu við ákvæði barnalaga um að gera verði ráðstafanir til þess að tryggja umgengni barns við foreldri sitt við þessa aðstæður.

Þá bendir hann á að þótt foreldrar séu enn í hjúskap eða skráðri sambúð beri sýslu­manni að úrskurða um umgengi ef ljóst er að búsetu­staður foreldranna er ekki lengur sá sami og barn hefur fasta búsetu hjá öðru hvoru þeirra.

Hér er hægt að sjá álit umboðs­manns í máli nr. 11017/2021

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá