Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Björn Leví þreyttur á svörum Bjarna: „Að Lyf og heilsa geti keypt banka á afslætti er bara rugl!“

Björn Leví Gunnarsson Pírati
Björn Leví Gunn­ars­son Pírati

Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata er afar ósáttur við það hvernig staðið var að kaupum á hlut ríkisins í Íslands­banka. Telur hann svör Bjarna Benedikts­sonar fjármála og efnahags­ráðherra, sem Björn segir hann tönglast á, vera röng.

„Það eru settar þarna upp nokkrar aðferðir til þess að selja, þrjár mismun­andi aðferðir. Þarna var verið að nota þessa „lokuðu tilboðs­leið“,“sagði Björn Leví í samtali við Mannlíf og hélt áfram: „Það bárust athuga­semdir frá umsagnar­aðilum þar sem sú leið var gagnrýnd en það var ekkert hlustað á það. Forsendurnar sem liggja fyrir þegar það er notast við þetta fyrir­komulag eru til þess að fara að finna langtíma­fjárfesta, þeir sem vilja taka áhættuna og verða eigendur. Allir sem þekkja til svona mála vita þetta. Þú notar ekki þetta tilboðs­ferli til þess að sópa upp einhverjum sem eru að bjóða 1, 2 eða 3 milljónir eða eitthvað þvíumlíkt.

Og sérstak­lega af því að, og þetta er alveg lykil­atriði, að til þess að fá inn þá sem eru tilbúnir að taka ákveðna rekstrar­áhættu og stíga inn í það félag sem verið er að bjóða út en það má svo sem deila um áhættuna en hvað um það, þá er gefinn afsláttur. Og þetta er það sem fjármála­ráðherra og þau eru alltaf að tönglast á að sé fullkomlega eðlilegt og það er alveg satt en það er enginn að tala um það gagnvart stóru aðilunum vegna ferlisins yfirleitt heldur að það sé verið að gefa þessum litlu aðilum. Þetta tilboðs­ferli er ekki notað til þess að safna til sín einhverjum gaurum sem að eru að bjóða milljón í þetta, að Lyf og heilsa geti keypt banka á afslætti er bara rugl!“ sagði Björn Leví augljós­lega pirraður.

„Annars er almennt séð, afsláttur fyrir stóra fjárfesta sem ætla að vera eigendur, bara í fínu lagi, enginn kvartar undan því. En fjármála­ráðherra og allir sem apa eftir honum, halda því fram að það sé verið að kvarta yfir því að gefinn hafi verið afsláttur en það er bara rangt, alveg rosalega pirrandi rangt.

Þau tönglast bara á þessu, gjör­samlega óþolandi! Það er verið að gagnrýna að það sé verið að gefa pínu­litlum kaupendum afslátt. Þeir eru að kaupa fyrir það lágar upphæðir að þeir eiga að geta keypt þetta á almennum markaði án afsláttar. Að þeim hafi verið sópað inn í þetta. Meira að segja voru stóru kaupendurnir skertir, þeir fengu ekki að kaupa eins mikið og þeir vildu. Og þessu litlu fengu að kaupa í staðinn á afslætti. Þetta er gjör­samlega fáránlegt!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá