Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lilja sáli undirbýr fólk fyrir tripp: „Við erum búin að byggja dýragarð utan um okkur“

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarps­þættinum Þvotta­húsið er sálfræðingurinn Lilja Sif Þorsteinssdóttir. Lilja sem stendur á bakvið sálfræði­þjónustuna Heilshugar hefur fengist við ýmislegt innan hefð­bundinnar sálfræði. Heilshugar virðist samt sem áður bjóða upp á nýjunga­gjarnar aðferðir hvað varðar andlega heilsu og heilun.

Lilja Sif Þor­steins­dóttir

Tjáskipti trjáa

„Heilshugar er svona batamiðað rými með skaða­minnkandi áherslum þar sem að ég er að blanda saman þessum top down aðferðum og bottom up aðferðum,“ sagði Lilja aðspurð um fyrirtæki hennar, Heilshugar.

Sem dæmi um aðferðir má nefna trommuhringiHún Lilja vill meina að takturinn sé gífurlega áhrifaríktverkfæri þegar kemur að andlegu heil­brigði. Að beina athygli að trommu­slætti eins og um ákveðna möntru eða endur­tekningu sé að ræða, segir hún hjálpa okkur að komast í svokallað „flow state“, sem er það ástand sem við þjálfum upp í hugleiðslu.

Hún vildi meina að allt þetta flæði upplýsinga og hraði samfélagsins sé í raun aðeins að auka á fjar­lægðina á milli okkar og meðbræðra og -systra í samfélagi. Í trommu­hringjunum skapast vettvangur fyrir fólk til þess að leika af fingrum fram og leyfa sköpunar­kraftinum að flæða, í hópi fólks, sem stuðlar að ákveðinni samstillingu og tengingu milli þátt­takenda. Segir hún ennfremur að nútíma­maðurinn lifi í samfélagi sem hann hafi ekki verið hannaður fyrir og auðvitað líði honum því ekkert vel. Svo spyr hún bræðurna hvort þeir kannist við hugtakið „Wood wide web“ sem hún líki þessu við. Þegar þeir neita því svarar hún þeim. „Wood wide web vísar til þess að ef þið horfið á skóg af trjám þá lítur þetta út fyrir að vera samansafn af einstaklingum en ef að þið kíkið undir svörðin ofan í moldina komist þið að því að öll þessi tré eru rosalega tengd í rótar- og sveppaþráða­kerfi. Þar í gegnum tala þau saman, þau senda næringu og skilaboð til vina. Þau gera ekki mannamun heldur trjáamun, þau senda næringu mest til foreldra og svo til systkina,“ segir Lilja og bætir svo við: „Ef að þau fá pest í sig geta þau sent til vina ekki bara að þau séu með pest heldur hvers­konar pest þau eru með svo þau geti myndað mótefni. Það eru heilu stríðin sem eru háð þarna á milli tegunda í formi efna­vopnaárása, alveg rosalega mikil tjáskipti í trjám. Mér finnst þetta svo góð líking fyrir okkur því við mann­fólkið erum eins og trén. Tengingin á milli okkar, hún sést ekki en hún er ofboðs­lega mikið til staðar og þarf ekki nema eitt neikvætt eða jákvætt orð og það fer allt af stað inni í okkur. Þetta er allt það sama, ef ég fer aftur að líkja okkur við plöntur, ef þú ert ekki með rétta jarð­veginn og réttu næringuna til þess að þrífast þá þrífstu ekki. Samfélagið er ekki hannað fyrir okkur,“ segir Lílja og þegar hún segir okkur, þá meinar hún fyrir okkur manneskjur sem heild.

Áföll eru áverkar á taugakerfið

Gunnar spurði Lilju út í það sem hann telur að sé grunnur alls ásetnings í hvers­konar leit að hjálp í þessum efnum en það eru einfald­lega áföll eða áfalla­eindirnar sem sitja innra með okkur vegna óuppgerðrar fortíðar. Fortíð sem svo mótar okkur og öll okkar viðhorf til lífsins og samferða­fólks okkar. Lilja vildi meina að áföll sem mikið er talað um í dag í hinu og þessu samhengi sé í raun ekkert annað en áverki, áverki á tauga­kerfi sem svo fram­kallar áfram­haldandi skaða á flestum ef ekki öllum sviðum líkama og hugar. Minningar sem við berum innra með okkur í ár eða áratugi geta orðið að einskonar stafrænum truflunum og er í raun baneitrað og þá oft í formi einskonar rang­hugmynda því sagan einfald­lega breytist með tímanum ásamt því að vera filteruð í gegnum ófull­komið tilfinningalíf. Einn stór hræri­grautur óuppgerða sagna og atburða sem móta okkur miklu meira en hver og einn oftast gerir sér grein fyrir.

„Það sem ég meina með áverka er að bara einfald­lega það að það sem við erum að vinna með er ekki hluturinn sem gerðist heldur sporin sem sitja eftir í líkama og heila viðkomandi.“

Sagði hún að með því að vinna rétt úr minningum, reynslu sem við höfum orðið fyrir, náum við stað þar sem minningin sem slík er aðeins innra með okkur sem reynsla og stundum dýrmæt reynsla en ekki eitthvað sem við upplifum sem óþægilega og hræðilega, þannig að við þurfum ekki lengur að upplifa sársauka í hvert skipti sem minningin kemur upp.

„Það sem þetta snýst um er svolítið að taka þessa tilfinninga­hleðslu úr minningunni, þú getur svolítið fundið hver hleðslan er með því að hugsa til baka. Færðu ennþá þessi líkamlegu viðbrögð, kjána­hrollinn eða skelfinguna eða ógeðið eða hvað sem er? Þá þýðir það að eitthvað tauganet veit ekki að þetta er búið.“

Lilja sagði að oft átti fólk sig ekki strax á því að það hafi orðið fyrir áfalli.

„Það er oft sem fólk er kannski ekki átta sig á fyrir en löngu seinna að það hafi lent í einhverjum erfiðum hlutum, en það er að bregðast við fortíðinni í nútíðinni. Það kannski gerist eitthvað smávægilegt en það springur upp í tilfinningu sem er kannski ekki alveg í samræmi við það sem gerðist og þá er það oft að atvikið hefur triggerað tauga­kerfið og við förum beint í varnar­kerfið.“

Lilja Sif Þor­steins­dóttir

Hugvíkkandi efni ofmetin í meðferðum

Úr þessari umræðu um heilun áfalla og úrvinnslu á reynslum, barst talið að námskeiðum sem sálfræði­þjónusta hennar, Heilshugar bíður upp á. Eitt slíkt námskeið ber heitið Stuðnings­námskeið fyrir ferða­langa. Gunnar spyr Lilju hverjir þessir ferða­langar eru og hvert ferðinni sé heitið. Námskeiðið er undir­búnings- og úrvinnslu­vinna fyrir einstaklinga sem leggja af stað í einskonar ferðalög með hjálp hugvíkkandi efna. Þau hugvíkkandi efni sem um ræðir eru öll ólögleg og því undir­strikaði Lilja að aldrei undir neinum kringum­stæðum mælir hún með notkun þessara lyfja eða efna við neinn mann né hefur nein tengsl við þá aðila sem framkvæma svo sjálfa athöfnina. Hún aðeins undirbýr í samtali viðkomandi eins vel og hún getur undir ferða­lagið sem framundan er og tekur svo við viðkomandi að ferðalagi loknu þar sem hjálp frá fagaðila er oft bráð­nauðsynleg og oft á tíðum vanmetin í þessum málum.

„Oft er það þannig að shamanar eru að vinna með eitt eða tvö efni, þannig er svona traditional en svo á Vestur­löndum er fólk kannski meira allt í blandi í poka. Þá erum við komin aðeins úr þessari þúsunda ára notkun þar sem að shamaninn virkilega þekkir sitt efni og vinnur með sitt efni. Sambýli við þann anda sem býr í efninu.“

Gunnar taldi upp þau hugvíkkandi efni sem um ræðir í þessum meðferðum hér á landi. LSD, MESCALIN (PAJOTE EÐA KAKTUS), DMT (AYAHUASCA), PSILOCYBIN (SVEPPIR), KETAMIN og MDMA, svo eitthvað sé nefnt. Lilja segir að auðvitað út í heimi séu efnin meira einangruð við einhver ákveðin svæði eða mörg þúsund ára hefðir þess vegna en á Vestur­löndunum sé oft mun meiri flóra og úrval þessara efna, því hefðin er einfald­lega ekki með okkur og því bara allt tekið. Hún vildi meina að í mjög mörgun tilfellum þar sem fólk er að fara aftur og aftur á hin og þessi tripp með hinum og þessum aðilum og hinum og þessum efnum sé fólk í raun ekki að vinna vinnuna sem þarf til ef raun­veruleg úrvinnsla eigi að eiga sér stað. Hún vill meina að þessi efni séu gríðar­lega öflug og geti unnið mikið gagn en ef þau séu ekki notuð rétt þá geti þau alveg eins unnið mikinn skaða.

„When you get the message, hang up the phone, og ef að fólk er að fara aftur og aftur í þessar serómóníur þá hef ég það svolítið á tilfinningunni að fólk sé ekki að vinna vinnuna því þessi lyf eru ekki töfralyf. Þau geta sýnt þér hvar þú átt að vinna og svo byrjar ferða­lagið.“ Þess vegna er það sem meðferðar­vinnan fyrir og eftir ferðalag skiptir ekki minna máli, og í raun meira máli, en ferða­lagið sjálf. 

Lilja segir bræðrunum frá upphafi MDMA í para­meðferðum.
„Það er gaman frá því að segja varðandi MDMA að þetta var notað í para­meðferðum í mörg ár áður en þetta var bannað og þegar þetta var bannað árið 1985, þá var fimm dómara panill og það voru allir sammála um það að banna þetta til afþreyingar en leyfa þetta áfram í meðferðar­tilgangi en það var einn dómari sem beitti neitunar­valdi. Þess vegna höfum við ekki geta haft aðgang að þessu efni í meðferðum síðan.“

Höfum byggt dýragarð í kringum okkur

Lilja vonar að notkun og beiting hugvíkkandi efna í heilunar­tilgangi verði á endanum raunhæfur valkostur og viðbót við hefð­bundin geðlyf. Lyf á borð við SSRI, ADHD lyf, róandi og kvíða­stillandi segir hún að geti alveg gert eitthvað gagn í einhverjum tilfellum en eins og allt annað eru þau engin töfra­lausn ef úrvinnslan á sér ekki stað. Hún sagði í viðtalinu að lyfja­iðnaðurinn hafi í raun ekki sýnt fram á mikla framþróun í þessum efnum síðustu hálfa öld hér um bil.

„Það sem að þyrfti að gerast til að losna við alla þessa lyfjagjöf þá þyrftum við nýja samfélags­gerð, við erum í dýragarði bókstaf­lega, við erum búin að byggja dýragarð utan um okkur.“

Lilja vonast eftir áfram­haldandi vitundar­vakningu í málum hugvíkkandi efna og að notkun þeirra fari smátt og smátt að koma inn sem raunhæfur möguleiki fyrir þá sem kjósa að fara þá leið. 

„Það er verið að afglæpa­væða þetta á mörgum stöðum í heiminum. Sko, þegar þetta er gert á réttan hátt þá er þetta að gefa miklu meira en þetta er að taka,“ sagði Lilja um fram­tíðina er snertir lögleiðingu á hugvíkkandi efnum í meðferðar­tilgangi. „Ég hef þá trú að með fleiri rann­sóknum og með fleiri laga­breytingum úti í heimi, þá verði Ísland að fylgja með.“

Gunnar spyr hana Lilju hvort hún telji að lyfja­fyrirtækin vilji raun­verulega lækna sjúklinga sína og hvort hugvíkkandi efni séu að fara að leysa almenn geðlyf af hólmi.

„Til að svara þessari spurningu bara beint þá held ég að lyfja­fyrirtækin vilji bara alls ekki missa kúnnana sína,“ svaraði Lilja og bætir svo við:

„Yfirleitt í rann­sóknum er þetta talið sem eitt af mikil­vægustu augna­blikum lífs þíns og jafnvel ofar fæðingu fyrsta barns að taka svona efni, þetta er rosalega stór lífs­reynsla en þetta er ekki töfra­pilla. Ef að þú breytir engu í umhverfinu þínu og ef að þú breytir engu í hegðun þinni… ég meina, það sem þessi efni gera er að þau leyfa heilanum að tala meira saman og allt í einu getur þú farið að sjá hluti frá fleiri sjónar­hornum en þú hefur aðgang að í venjulegu vitundar­ástandi. Það koma fleiri tengingar á milli tauga­fruma, það er í rauninni það sem nám er, þegar nýjar tengingar verða. Ef þú svo ekki viðheldur þessum nýju tenginum með allskonar leiðum, festir þessar breytingar í sessi, jú þá bara rýrna þær aftur.

Lífið fyrir og eftir „ferðalagið“

Gunnar spurði hana hvað hafi ollið því að hún hafi ákveðið að fara þessa leið sjálf sem lærður sálfræðingur, leið sem oft innan hins akademíska heims hefur mætt vissum fordómum. Hún segir að útslagið hafi verið þegar hún sjálf fór í svokallað ferðalag og að í hennar tilfelli upplifir hún eins og hægt sé að tala um líf hennar fyrir og eftir ferða­lagið, svo mikil áhrif hafði það á hana. Hún hafi í kjölfarið sökkt sér í lestur á bókum og rann­sóknum á þessum lyfjum ásamt því að sækja sér námskeið og reynslu frá fleiri stöðum. Út frá þessari reynslu ásamt greinilegri þörf sem er að skapast með auknum fjölda ferða­langa innan hins hugvíkkandi heims hafi hún ákveðið að taka þessi skref af hugrekki en með fagmannlegri nálgun þar sem engin afsláttur er gefin hvað varðar lög og siða­reglur.

„Til að svara því hve langt ég má ganga þá þarf ég að halda mig innan ramma laganna og ég þarf að halda mig i innan ramma siða­reglnanna og það er einmitt þetta, ég get komið að því sem gerist á undan og ég get komið að því sem gerist á eftir en allt sem hefur með efnin sjálf að gera er bara lokuð bók fyrir mig.“

Viðtalið má sjá í heild sinni á spil­aranum hér fyrir neðan ásamt því að finnast á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt