Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Rússnesk kona í Moskvu segir ástandið grafalvarlegt: „Aftur á bak þróun og gegn siðmenningu“

Rauða Torgið í Moskvu
Rauða Torgið í Moskvu Mynd: kuhnmi á Flicr.com

Rússnesk kona sem býr í útjaðri Moskvu segir í samtali við Mannlíf að refsiaðgerðir þjóða heims gegn Rússlandi séu farin að bíta á hina venjulegu Rússa. Af öryggis­ástæðum vill hún ekki koma fram undir nafni. Verður hún kölluð Ekaterina í fréttinni.

Ekatarina býr í útjaðri Moskvu ásamt eigin­manni og tveimur sonum. Hún er í vel borgaðri vinnu í útibúi hjá alþjóð­legu fyrirtæki sem hefur höfuð­stöðvar erlendis en fyrir­tækið selur heimilis­tæki ásamt fleirum vörum.

„Helmingur af vörunum sem fyrir­tækið pantar úti og selur hér, fellur undir innflutnings­bannið og fæst ekki hér lengur. Hinn helmingurinn verður 50% dýrari í rúblum talið, fyrir viðskipta­vini okkar hér þar sem kosnaðarverðin eru gefin upp í evrum. Þetta þýðir að heildar­sala í Rússlandi mun sennilega minnka um 50-70%. Ég giska á að það sem við munum horfa fram á næstu mánuðum er að tölur uppsagna í fyrir­tækinu munu hækka samsvar­andi, þ.e. ef útibúinu verður ekki lokað alfarið, segir Ekaterina áhyggju­full.

Og það er ekki hlaupið að því að finna nýja vinnu í Rússlandi að sögn Ekaterinu en hún er gríðar­lega áhyggju­full um fram­tíðina.

„Það verður erfitt að finna vinnu í þessum aðstæðum. Upphæðir sem fólk fær vegna barna- og atvinnu­leysis­bóta eru mjög langt frá því að duga til að lifa af. Eins og er nemur kosnaður vegna einka­skóla sem börnin mín ganga í og tónlistar­skóla um helming launa minna. Við munum alls ekki hafa efni á því ef ég missi vinnuna. Þannig að, lífskjör fjöl­skyldunnar munu hraðlækka strax á næstu mánuðum. Allt þetta mun gerast einungis vegna refsiaðgerð­anna.“

Ekaterina segir að innrás Vladimir Putin forseta sé utan allrar skynsemi og á erfitt með að ræða þetta við blaðamann Mannlífs.

„Ég sé ekki einu sinni tilgang að ræða þetta. Það sem er að gerast er utan allrar skynsemi, þetta er aftur á bak þróun og gegn siðmenningu. Á svip­stundu stukkum við frá stafræns ríkis og aftur í tímann, í stein­öldina, þar sem er mikilvægt að eiga pening í seðlum, birgir af mat og lyfjum til margra daga. Ávextir hafa hækkað í verði um 50% . Verð á erlendum vörum og tæki hafa stig­hækkað líka,“ sagði Ekaterina og á greini­lega erfitt með að ræða þetta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá