Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Seyðfirðingar móðgaðir yfir aprílgabbi, eða hvað? „Þetta er besta, langbesta apríl gabb ever!

Seyðfirðingar brugðust sumir hverjir ókvæða við frétt sem birtist á heimasíðu Múlaþings í gærmorgun. Í fréttinni stóð að til stæði að taka fyrstu skóflu­stunguna að nýjum íbúðar­kjarna fyrir eldri borgara á gamla íþrótta­vellinum. Um aprílgabb var að ræða en spurningin er, hver gabbaði hvern?

Samkvæmt Austur­frétt birtist frétt rétt fyrir klukkan tíu í gærmorgun, um að nú ætti að taka fyrstu skóflu­stunguna fyrir nýjum íbúðar­kjarna sem byggja á á gamla íþrótta­velli bæjarins. Seyðfirðingar voru hvattir til að mæta í búningum við hæfi og helst með fána og freyðivín. Þá var sennilegast verið átt við hinn gula búning Hugins Seyðis­firði.

Ekki var fréttin búin að vera lengi inni þegar hún var merkt sem aprílgabb enda var 1. apríl einmitt í gær. Í hádeginu var fréttin svo fjarlægð. Í yfir­lýsingu sem birtist á Facebook-síðu Múlaþings í gær biðst starfs­fólk skrif­stofunnar á Seyðis­firði afsökunar á athæfinu og kveðst vera leitt að hafa sært eða móðgað íbúa bæjarins með gríni sem sett var fram í góðri trú.

Samkvæmt heimildum Austur­fréttar tóku að berast athuga­semdir á skrif­stofu Múlaþings, skömmu eftir að fréttin fór í loftið. Íbúða­kjarninn sem vissulega mun rísa á gamla íþrótta­vellinum er ætlaður fyrir eldra fólk á Seyðis­firði en hópur þess hefur nú þegar fest sér íbúðir í nýja kjarnanum.

Ef athuga­semdir við afsökunar­beiðninni á Facebook-síðu Múlaþings eru skoðaðar er ekki að finna einn móðgaðan Seyðfirðing enda annálaðir húmor­istar. Einn þeirra segir að þau einu sem hafi látið gabbast hafi verið frétta­smiðirnir sjálfir: „Þetta er besta, langbesta apríl gabb ever! Það er að segja að þykjast móðgast yfir gabbinu. Og að biðjast afsökunar á því. Kæru vinkonur. Þið hlupuð 1. Apríl. Þetta gabb var svo saklaus að það er ekki möguleiki að móðgast yfir því. Nema sveitar­stjórinn kannski, það er hann sem fær pillu.“

Í frétt Austur­fréttar kemur fram að húsnæðis­skortur sé talsverður á Seyðis­firði en skriðu­föllin í desember 2020 gerðu illt verra. Í kjölfar þeirra þurfti að finna nýtt land undir íbúabyggð og varð gamli íþrótta­völlurinn fyrir valinu. En þrátt fyrir að skipulagning sé hafin og úthlutun íbúa hefur átt sér stað, hafa framkvæmdir látið standa á sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ