Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Guðmundur í Kjötmarkaðnum: ,,Við eigum að framleiða helling af öndum“

Guðmundur Gíslason matreiðslu­maður og eigandi Kjöt­markaðsins á Smiðju­vegi er gestur Guðna Ágústs­sonar að þessu sinni.

Guðmundur fullyrðir að Íslendingar eigi að stórefla matvæla­framleiðslu. „Við eigum að stórefla matvæla­framleiðslu á Íslandi á öllum sviðum. Það eru ekki til dæmis fram­leiddar endur á Íslandi; það er til dæmis einn af mínum uppáhalds mat. Við eigum að framleiða helling af öndum. Og allt sem heitir kornrækt, árið í fyrra var met ár í kornrækt. Við þurfum að stórauka kornrækt. Svín og kjúklingar, endur og kalkúnar fyrir utan að það er hægt að nota þetta til manneldis. Allt grænmeti, sérstak­lega útigrænmeti. Þar sem ég versla núna þar er varla boðlegt úrvalið af gulrótum. Þær líta bara illa út og það sem er innflutt er bara vont á bragðið. Það þarf að stórauka fram­leiðslu á útiræktuðu grænmeti og það þarf að auka gæðin í leiðinni. Gæði í kartöflum og fjöl­breyttara úrval af kartöflum. Það er hægt að framleiða þetta allt á Íslandi. Menn þurfa bara að hafa skynsemina að leiðar­ljósi þegar kemur að verð­lagningu og menn þurfa að sætta sig við að það sem framleitt á Íslandi er örlítið dýrara.“

Nýverið hefur verið farið í að rækta Angus naut á Íslandi og segir Guðmundur að það séu gríðarleg tækifæri í að efla nautakjöts­framleiðslu með þessari tegund þar sem gæði kjötsins sem fást af Angus kyninu séu mun meira en fæst af Galloway kyninu sem hér hefur verið ræktað undan­farna áratugi. Galloway þykir ekkert sérstakt kyn til fram­leiðslu á kjöti enda hafi mjólkur­fram­leiðslan alltaf verið númer eitt og nautakjöts­fram­leiðslan verið einskonar hliðar­afurð.

Það sem hefur svo­lítið haldið uppi gæða­fram­leiðslu í nauta­kjöti eru feitar kýr sem falla til því þær henta ekki til mjólk­ur­fram­leiðslu.

Guðmundur telur að það sé svo skynsamlegt að borða lamb því það er framleitt uppi á heiðum og fjöllum. Það þarf ekki að flytja inn fóður fyrir dýrin, þau heilbrigð og í sátt við umhverfið og landið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt