Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Olga Druyanova: „Við berjumst til að stöðva útbreiðslu krabbameins alræðis yfir til Vesturlanda“

Golda Druyanova
Golda Dru­ya­nova

„Ég virkaði róleg út á við, en líkami minn sýndi streitu­merki jafnvel þótt ég viðurkenndi það ekki. Ég gat ekki sofið í meira en tvo tíma á sólar­hring, ég borðaði næstum ekki neitt og ég var með skjálfta í hand­leggjum og fótum,“ segir Olga Druyanova, úkraínsk kona sem kom hingað til lands eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu.

Olga segir að hún sé ekki týpa sem gráti og sýni sorg og hræðslu. „Ef upp koma vandamál þá einbeiti ég mér að lausninni. Vanda­málið í þessu tilviki er stríð sem kom inn í líf mitt þannig að ég leitaði að upplýsingum varðandi það hvað ég gæti gert í fram­haldinu og hvort eitthvað benti til þess að stríðið myndi ekki standa lengi yfir. Það virkaði þannig fyrstu vikurnar. Ég reyndi einnig sjálf að gera það besta úr hlutunum. Þar sem ég vann sem sérfræðingur í upplýsinga­tækni fylgdist ég meðal annars með spjall­síðum á svæðinu, fylgdist með upplýsingum og hjálpaði fólki við að komast í samband við rétta aðila varðandi brott­flutning.“

Olga segir að það hafi verið sárs­auka­fullt að sjá rústir bygg­inga.

Olga segist ekki hafa séð sært eða látið fólk með berum augum, en hún fylgdist með fjöl­miðlum og sá þar myndir af látnu fólki í borginni sem hún bjó í, Kharkiv, sem rússneskir hermenn höfðu skotið þegar það stóð í biðröð og var að bíða eftir matar­úthlutunum.

Olga segir að það hafi verið sársauka­fullt að sjá rústir bygginga sem voru svartar eftir eldtungurnar sem höfðu gleypt þær eftir sprengjur Rússa. „Stuttu áður hafði ég gengið þarna um götur og farið á kaffihús og veitingahús og hitt vini mína.“

Olga segist hafa heyrt um mögulega innrás rússneskra hersveita nokkrum vikum áður en stríðið hófst, en hún hélt að það kæmi aldrei til þess. Hún var á Íslandi í janúar og febrúar og segir að vinir hennar hefðu ráðlagt henni að fara ekki aftur til Úkraínu fyrr en kvitturinn um mögulega innrás væri liðinn hjá. Hún fór hins vegar til Úkraínu 21. febrúar – þremur dögum áður en stríðið hófst.“

Góðvild fólks á Íslandi

Og Olga ákvað að yfirgefa borgina.

„Þegar ég var að fara frá Kharkiv varð ég að komast á járn­brautarstöð til að komast svo í lest sem færi með flótta­fólk til Lviv. Rússneskir hermenn fóru suma daga inn fyrir varnar­línuna og upphófust þá bardagar á götum úti og þá var hættulegt að fara úr sprengju­skýlunum. Ég beið eftir tækifæri til að geta tekið leigubíl að járn­brautar­stöðinni; almennings­samgöngur voru úr skorðum, en ég bjó ein með syni mínum og á ekki bíl.“

Fólk sat og svaf líka á gólfi lest­ar­innar.

Það kom að því að Olga og sonur hennar komust á lestar­stöðina og tóku lest til Lviv. Lestin var full af fólki og í fjögurra manna svefn­klefanum sem þau voru í, voru 10 manns og köttur. Fólk sat og svaf líka á gólfi lestarinnar meðan á ferðinni stóð, u.þ.b. 22 tíma.

Mæðginin stuttu áður en þau fóru í lest­ina áleiðis til Póllands.

Olga keypti rútumiða til Varsjár í Póllandi og loks sátu þau mæðginin í rútu og þegar þangað var komið dvöldu þau í nokkra daga á heimili pólskrar fjöl­skyldu í Varsjá. Ísland var þó loka­ákvörðunar­staðurinn, en Olga hafði áður komið til Íslands.

Olga segist hafa undirbúið son sinn fyrir ferðina til Íslands. Hún sagði við hann að núna væru þau orðnir hælis­leitendur og að þau myndu ekki búa á eins fallegu og hlýlegu heimili eins og þau áttu í Kharkiv. Þau gætu átt von á að þurfa að búa hvar sem er á Íslandi þar sem þau fengju inni og að þau fengju lágmarks­nauðsynjar svo sem mat og föt, en að þau þyrftu að láta sér það nægja þangað til þau hefðu efni á meiru. „Ég tók með mér pening sem ég hafði safnað til að geta keypt mat til að byrja með. Ég tók fleiri nauð­synjar með mér, svo sem lyf og föt sem henta íslenskri veðráttu. Ég hugsaði með mér að við gætum séð fyrir okkur sjálf og að enginn þyrfti að hjálpa okkur.“

Íslend­ingar hafa tekið okkur með mik­illi hlýju og hjálpað okkur með margt.

Olga segist ekki hafa búist við svona mikill aðstoð eins og þau mæðgin fengu eftir komuna til Íslands. „Íslendingar hafa tekið okkur með mikilli hlýju og hjálpað okkur með margt. Ég grét ekki vegna stríðsins, en þetta snart mig og ég grét næstum því vegna þessa.“

Við berjumst fyrir tjáningarfrelsi

Ástandið í Kharkiv hefur versnað mikið og segir Olga að nú sé borgin eitt helsta skot­markið. „Það er búið að eyði­leggja um 1.500 byggingar í borginni. Opinberir starfs­menn borgarinnar eru hetjur, en þeir sjá til þess að íbúar fái til dæmis heitt vatn og rafmagn. Þeir vinna stans­laust í þessum aðstæðum við að gera við skemmdar lagnir og víra og fjarlægja grjót­mulning úr húsa­rústum.“

Foreldrar og bróðir Olgu eru enn í Kharkiv og ætla þau að fara í þorp nokkurt þar sem öruggara er að vera. „Þau eru mjög hrædd af því að sprengjum er varpað í nágrenninu og ég bið þess að þau komist í þorpið heilu og höldnu.“

Olga fæddist í Sovét­ríkjunum og hún segist hafa alist upp í umhverfi þar sem Rússar voru sagðir „bræðra­þjóð“, „besti vinur“ og jafnframt „leiðtogi bræðra­lýðveldis­bandalags“. Ég á ættingja í Rússlandi. Þá bjó ég í austur­hluta Úkraínu þar sem stór hluti þjóðarinnar talar rússnesku og móðurmál mitt er rússneska. Núna er það „móðir“ tungumáls okkar sem er að drepa okkur.

Úkraína er síð­asta hindrun þessa hættu­lega sam­fé­lags­sjúk­dóms.

Við berjumst núna fyrir landinu okkar og frelsi og þar af frelsi til að tala hvaða tungumál sem við viljum tala og við berjumst fyrir rétti okkar til að segja hvað sem okkur býr í huga, en ekki bara segja það sem er leyft að segja; við berjumst fyrir tjáningar­frelsi. Við berjumst fyrir frelsi og lýðræðis­legum gildum sem eru ekki leyfileg í Rússlandi. Við berjumst ekki bara fyrir okkur sjálf. Við berjumst til að stöðva útbreiðslu krabba­meins alræðis yfir til Vestur­landa. Úkraína er síðasta hindrun þessa hættulega samfélags­sjúkdóms.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá