Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Þekktum rússneskum söngvara slaufað: „Villimennskan! Ljótleikinn! Svikin!“

Þekktur rússneskur söngvari á það á hættu að verða slaufað vegna mynd­skeiðs sem birtist á samfélags­miðlum. Þar virðist hann styðja málstað Úkraínu í stríðinu við Rússland.

Valery Meladze er gríðar­lega vinsæll í Rússlandi þar sem hann býr en hann er hefur þann heiður að vera „verðugur lista­maður rússneska ríkisins.“ Fram kemur á hinum rússneska vefmiðli Medusa að myndskeið hafi birst á samfélags­miðlunum um helgina sem sýndi Meladze bregðast við orðunum „dýrð sé Úkraínu“ þar sem hann skemmti á gamlárskvöldspartýi í Dubai. Í mynd­skeiðinu sést Meladze halda ræðu en maðurinn á bakvið síma­upptökuna kallar til hans „dýrð sé Úkraínu (Úkr. Slava Ukraine)“. Söngvarinn dró þá hljóð­nemann frá andliti sínu og virðist mynda orðin „dýrð sé hetjunum!“ með vörum sínum. Fagnar þá mynda­véla­maðurinn en Meladze biður hann þá að róa sig og segir svo „við erum ópólitísk hér í dag.“

Stuttu eftir innrásina í Úkraínu fordæmdi Meladze framferði Rússlands og var fjöldi áætlaðra tónleika hans innan Rússlands aflýst í kjölfarið.

Ráðamenn í Rússlandi voru fljótir að bregðast við nýja mynd­skeiðinu. Yelena Afanasyeva, þingkona frá Orenburg-héraði Rússlands skrifaði færslu á samfélags­miðli þar sem hún lét eftir­farandi orð falla:

„Villimennskan! Ljót­leikinn! Svikin! Vegna stuðning hans við Banderítanna ætti Meladze að missa ríkis­borgararétt sinn. Á meðan þegnar okkar deyja fyrir rússneskan almenning með því að verja rússnesk svæði, leyfir sumt fólk sér að gefa nasista­kveðjur með úkraínskum nasistum. Þetta er óásættanlegt.“

Formaður Sann­gjarnt Rússland-flokksins, Sergey Mironov sagði:

„Í veislu utan landsteinanna lýsti söngvarinn Valery Meladze yfir stuðningi við slagorð úkraínskra þjóðernis­sinna. Jájá, hann afsakaði sig eftir á. En að vera í veislu í útlöndum og taka þátt í að söngla glæp­samleg slagorð – er það eitthvað ópólitískt?“

Hegðun hans er vítaverð. Sannur rússneskur lista­maður getur ekki og ætti ekki að hegða sér svona. Hann er að reyna að fá bæði, halda kökunni og borða hana líka. Það er kominn tími til að velja hlið. Það má reyndar sjá á hegðun hans, að þessi „lista­maður“ er nú þegar búinn að velja sér hlið. Ég sting upp á að Meladze verður sviptur öllum verð­launum sínum. Það er sann­gjarnt og rétt að gera.

Þá tjáði sig einnig Yelena Drapeko, þingmaður frá St. Péturs­borg:

„Ég styð það að lýsa honum sem „erlendum njósnara.“ En það væri betra fyrir hann að fara úr landi og vera bannaður í gjörvöllu Rússlandi.“

Samkvæmt Telegram-rásinni Mash, hafa samtökin Her verjenda föður­landsins (e. Army of Father­land Defenders), tilkynnt Meladze til rann­sóknar­nefndar Rússlands og til ríkis­saksóknara og krefjast þess að söngvarinn fái ekki að snúa aftur til Rússlands. Samtökin vilja einnig að alríkis­yfirvöld landsins rannsaki hvort Meladze hafi hlotið rússneskan ríkis­borgararétt á löglegan máta en söngvarinn er fæddur í Georgíu á Sovíet-tímanum.

Meladze brást við viðbrögðunum í gær á Telegram:

„Fólk, ég vil vera viss um að þið heyrið í mér og skiljið mín orð. Eins og margir aðrir hef ég burðast með þunga þanka og sorg, síðustu 10 mánuði. Það vill svo til að tvær þjóðir sem ég elska innilega, eiga í útistöðum þar sem fólk er að deyja. ÉG GET EKKI OG VIL EKKI HATA NOKKURN OG ÉG ER EKKI AÐ REYNA AÐ KOMA TIL MÓTS VIÐ NEINN. Ég vil bara að þessar deilur endi og að samkomulag náist milli þessara ríkja. Og svo það megi gerast, er ég tilbúinn að gefa allt sem ég get.“

Hér fyrir neðan má hlusta á stærsta smell Meladze:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs