Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sonur Ingu Sæland kominn í stjórn ríkisfyrirtækis: „Frændhygli hefur ráðið miklu um þessa skipun“

Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson
Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson

Stjórn Íslands­pósts tók miklum stakka­skiptum á dögunum en nánast öllum stjórnar­mönnum ríkis­fyrir­tækisins var skipt út.

Vakið hefur athygli á að Baldvin Örn Ólason, sonur Ingu Sæland, þingmanns og formanns Flokks fólksins er kominn í stjórn Íslands­pósts.

Á veraldar­vefnum finnast engar upplýsingar um menntun eða starfs­reynslu hans, að undanskildri einni frétt frá árinu 2018 þar sem hann er titlaður verkefna­stjóri Flokks fólksins, segir í grein Innherja í dag.

Þar kemur fram að Auður Björg Guðmunds­dóttir, framkvæmda­stjóri fjár­tækni­félagsins Two Birds, muni halda sæti sínu í stjórninni en Halldóra Lóa Þorvalds­dóttir, Gísli Sigurjón Brynjólfsson, Guðný Hrund Karls­dóttir og Baldvin Örn Ólason koma í stað þeirra sem skipt var út.

Baldvin Örn var á lista Flokks fólksins í þing­kosningum árið 2016, hann var í 5. sæti flokksins í Reykja­víkur­kjördæmi suður. Á upplýsinga­síðu RÚV um Baldvin fyrir kosningarnar er ekki miklar upplýsingar að finna. Hann er titlaður sem ráðgjafi en ekkert er sagt um fyrri störf eða menntun hans. Þá fylgir ekki með mynd af Baldvini eins og sjá má á skjáskotinu hér fyrir neðan.

Ekki verður betur séð enn að frændhygli hafi ráðið miklu um þessa skipun enda er sægur af þraut­reyndu fólki í atvinnu­lífinu sem unnt hefði verið að leita til. Þetta er þörf áminning um að eigenda­stefnu ríkisins sé ábótavant. Ótrúlegt en satt vantar enn lýsingu á faglegu ferli við tilnefningu einstaklinga í stjórn ríkis­fyrirtækja á borð við Íslands­póst sem veltir 7,5 milljörðum króna á ári.

Stjórnar­laun hjá Íslands­pósti eru 177 þúsund krónur á mánuði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá