Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Albert féll útbyrðis í ískaldan sjó: „Maður er bara þakklátur fyrir lífið“

Mynd/skjáskot RÚV
Mynd/skjá­skot RÚV

Sjómaðurinn Albert Páll Albertsson segir frá lífsraun sinni í viðtali við Gunnlaug Snæ Ólafsson á Mbl.is í dag. Albert meiddist og lenti útbyrðis í ískaldan sjó. Blessunar­lega var Alberti bjargað af skips­félögum sínum og hann lýsir í viðtalinu skjótum viðbrögðum þeirra og því krafta­verki að hafa lifað af.

Stutt er síðan atburðirnir áttu sér stað en Albert réði sig á loðnu­vertíðina 2021/2022 á Víking AK-100 í janúar. Slysið varð í lok mars. Þennan dag var kalt en ekki mikill vindur, fremur góð skilyrði til veiða. Skipið var þá úti fyrir Sandvík á Reykjanesi. Albert var að sinna störfum sem hann er vel kunnugur, en slysin gera stundum ekki boð á undan sér. Hann lýsir því í viðtalinu hvernig hann, með einhverjum hætti sem erfitt er að útskýra, flæktist í svokallaðri fallhlíf sem kastað er í sjóinn á eftir loðnu­nótinni. „Maður pass­ar sig alltaf á að flækj­ast ekki í þetta en ein­hvern veg­inn gerðist það, ég veit ekki hvernig. Ég sé bara allt í einu að fót­ur­inn er kom­inn í einn hring og ég næ ekki að losa mig.

Um leið og búið er að sleppa eru bara nokkr­ar sek­únd­ur þar til þetta er farið og ég fór með. Mér skilst á fé­laga mín­um sem var við hliðina á mér að ég hafi farið ein­hverja átta metra út frá skip­inu og fjóra metra niður.“

Albert segist hafa haldið að hann væri að deyja. Þarna var komið undir kvöld og rökkur eftir því. Fyrir hálfgert krafta­verk tókst Alberti að losa stígvél sitt. „Ég hugsaði bara að ég væri ekki að fara að láta son minn verða föður­laus­an og að ég væri að fara að bjarg­ast.“

Á þessum timapunkti var Albert í kafi í ísköldum sjónum. Hann náði að komast upp á yfir­borðið og blása lofti í björgunar­vestið.

Sem betur fer var Albert með skærgulan hjálm á höfði og gátu félagar hans því komið auga á hann í sjónum, jafnvel þegar hann tók að reka frá þeim.

Pabbi Alberts var skip­stjóri á skipinu. „Hann miss­ir aldrei aug­un af mér og sér alltaf gula hjálm­inn í sjón­um þó að ég sé kom­inn svo­lítið langt frá þeim.“

Það var tæki í vesti Alberts sem gaf upp staðsetingu hans. „Sem bet­ur fer eru nokk­ur skip í kring og pabbi nær að leiðbeina fær­eysku skipi sem heit­ir Høga­berg. Það kom til mín og náði að kasta björg­un­ar­hring. Þeir kasta nokkr­um sinn­um og ég náði hon­um fyr­ir rest. Það var rosa­lega góð til­finn­ing.“

Þegar færeysku skip­verjarnir voru að fara að hífa Albert um borð komu félagar hans þjótandi á létta­bátnum og tóku hann til baka á Víking. Hann hafði verið í um 20 mínútur í ísköldum sjónum. Hann hlaut þónokkra áverka, brotnaði og fór úr lið.

„Ein­hvern veg­inn gekk allt eins og það átti að ganga – all­ir þekktu sitt hlut­verk. Maður er bara þakk­lát­ur fyr­ir lífið og þakk­lát­ur skips­fé­lög­un­um mín­um.“

Viðtalið við Albert, þar sem hann segir ítarlega frá atburðunum má lesa á Mbl.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá