Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fjöldi skotvopna fluttur til landsins með ólöglegum hætti – Stórhættuleg vopn ganga kaupum og sölum

Fjölmörg skotvopn eru flutt inn til landsins í hverjum mánuði samkvæmt heimildar­manni Mannlífs. Innflutningurinn nær allt frá sexhleypum yfir í fjölskota skamm­byssur og hríð­skotabyssur. Eru þær seldar á svörtum markaði, meðal annars með hjálp samskipta­forrita á borð við Signal og Telegram, með gríðar­legum hagnaði. Samkvæmt heimildar­manni Mannlífs koma þær nær allar frá Austur-Evrópu, en þar eru skotvopn víða aðgengileg almenningi. Leiðirnar sem notaðar eru til þess að flytja inn skot­vopnin eru jafn ólíkar og þær eru margar, en heimildar­maður Mannlífs talar þó einna helst um eina aðferð og þau skotvopn sem flutt eru inn með þeim hætti eru oftar en ekki nefndar „lyklakippu­byssur“. 

„Þetta er í raun mjög sniðug aðferð og nánast ómögulegt fyrir tollverði að koma í veg fyrir þennan innflutning,“ segir heimildar­maður Mannlífs, sem ekki vildi láta nafns síns getið af ótta við hefndar­aðgerðir þeirra sem flytja inn skot­vopnin. Hann segist sjálfur hafa staðið í slíkum innflutningi í tæpt ár, en hætt því þar sem hann hefði nýverið stofnað fjöl­skyldu og vildi ekki eiga á hættu að verða tekinn og þannig missa af því tækifæri að sjá barn sitt stíga sín fyrstu skref.

„Ég er ekki sá fyrsti sem talar um þetta en blaða­maðurinn Atli Már ræddi þetta til að mynda í útvarps­þætti hjá Harmageddon fyrir ekki svo löngu,“ segir heimildar­maðurinn, en þar vísar hann til hlaðvarps Mána og Frosta sem aðgengilegt er á Tal.is. Þar ræddi Atli Már Gylfason við þá félaga en sá fyrr­nefndi var staddur í Búdapest þegar viðtalið átti sér stað og lýsti þar meðal annars umræddri aðferð.

„Í grunninn er þetta mjög einfalt. Það eina sem þú þarft er að þekkja einhvern í undir­heimum Austur-Evrópu og það er ekki mikið mál. Það eru svo margir glæpamenn frá þessum löndum sestir að hérna á Íslandi og ef þú hefur eitthvað verið viðriðinn fíkniefni eða glæpi hérna á klakanum, þá þekkir þú einhvern Litháa eða Pólverja. Það eru þeir sem redda þessu. Reyndar eru Rússarnir líka ansi úrræða­góðir þegar það kemur að því að redda skot­vopnum. Skamm­byssa kostar kannski tuttugu þúsund íslenskar krónur þarna úti og sama skamm­byssa, komin hingað til lands, hækkar í verði um að minnsta kosti eitt núll,“ segir heimildar­maðurinn sem heldur áfram og tekur dæmi: „Ef ég kaupi eina skamm­byssu þarna úti á tuttugu þúsund krónur, þá er hún færð byssusmið þarna úti sem tekur 200 evrur eða um það bil þrjátíu og tvö þúsund krónur fyrir að taka hana í sundur. Þarna er kostnaðurinn kominn upp í tæpar fimmtíu þúsund krónur. Þessi byssu­smiður tekur hana alveg í sundur, hvern einasta part sem hægt er að taka í sundur og vittu til að það kemur manni á óvart hvað hægt er að taka þessar helvítis byssur mikið í sundur, og hefst þá áhuga­verða vinnan sem gerir toll­vörðum algjör­lega ómögulegt að átta sig á þessu,“ segir heimildar­maður Mannlífs.

„Í alla þessa parta sem eru teknir í sundur er borað pinkulítið gat með eins litlum bor og mögulegt er. Þetta er í raun eins lítið gat og hægt er að gera, svo lengi sem lítill lyklakippu­hringur kemst í gegnum það. Af hverju lyklakippu­hringur? Jú, því þegar þetta litla gat er komið þá er litlum lyklakippu­hring komið fyrir. Þegar upp er staðið þá ertu með kannski þrettán parta af skamm­byssunni sem einir og sér líta bara út eins og lykla­kippur. Þetta er svo sent til landsins í pósti, hver og einn partur sér og yfir eitthvert ákveðið tímabil. Þannig lítur þetta bara út eins og lykla­kippa og toll­vörðurinn hefur ekki hugmynd um það,“ segir heimildar­maðurinn.

Jónas Hafsteinsson, lögreglu­fulltrúi í leyfa­deild Lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu, sagði í viðtali við Reykjavík síðdegis, í fyrra, að lögreglan yrði ekki mikið vör við smygl á skot­vopnum til landsins. RÚV greindi frá því í fyrra að fjögur þúsund skamm­byssur væru í einkaeigu á Íslandi, en áður hefur komið fram að skotvopn á landinu séu rúmlega 70 þúsund talsins.

Samkvæmt könnun sem gerð var í Sviss árið 2017, og bar yfir­skriftina Small Arms Survey, er Ísland númer 12 í heiminum yfir byssur á hverja 100 íbúa, miðað við höfðatölu eða 31,7 á hverja 100 íbúa, en könnunin gerir ráð fyrir óskráðum sem og skráðum skot­vopnum.

Jónas sagði í viðtalinu að svokallaðar kinda­byssur væru rúmlega þúsund talsins hér á landi, en langflestar skamm­byssurnar séu notaðar til íþrótta­iðkunar.

Sagði hann einnig ómögulegt að segja til um fjölda óskráðra skotvopna á Íslandi.

„En ég held að við sleppum ekkert við það frekar en aðrar þjóðir, að vera með eitthvað af slíku,“ segir hann. „Það er þó þannig að í húsleit og heim­sóknum til góðkunningja okkar þá erum við ekki að leggja hald á óskráðar, smyglaðar byssur, það eru frekar stolnar byssur sem hefur þá verið stolið hérna heima.“

Bætti hann því við að það væri sjaldfgæft að toll­gæslan legði hald á skotvopn.

Mannlíf hafði samband við Toll­gæsluna og spurði hvort hún hefði tekið eftir aukningu á skotvopna­smygli undan­farið og var svarið stutt og skorinort. „Tollgæsla hefur ekki fundið fyrir aukningu á smygli á skot­vopnum eða íhlutum skotvopna til landsins.“

Einnig fékk Mannlíf upplýsingar frá Ríkis­lögreglu­stjóra um tíðni skotárása á Íslandi síðustu ár. Eftir­farandi svar barst:

„„Skot­árásir“ eru ekki skráningar­flokkur í málaskrár­kerfi lögreglu og eru ekki skráðar með þeim hætti að hægt sé að skoða fjölda þeirra út með einföldum hætti.

Meðfylgjandi eru tölur yfir hversu oft sérsveit Ríkis­lögreglu­stjóra hefur verið kölluð út á tíma­bilinu 2014-2021, vegna skotvopna. Það getur verið vegna þess að tilkynnt er um að skotvopn sé á staðnum, skot­hvellur hafi heyrst eða annað sem gefur til kynna að skotvopn geti verið á staðnum. Sérsveitin er ávallt kölluð til þegar um slík mál er að ræða.“

Eins og sjá má á tölfræðinni hefur tilkynningum um vopn á vettvangi fjölgað um 469% á síðustu sjö árum. Þá hefur tilkynningum um skotvopn á vettvangi fjölgað um 234% síðan 2014.

Mannlíf bað Ríkis­lögreglu­stjóra einnig um tölfræði yfir vopna­árásir á lögreglu­menn síðustu árin.

„Það sama á við um ofbeldi gegn lögreglu­mönnum, ekki er hægt með einföldum hætti að taka út tölfræði yfir þessi tilvik sem óskað er eftir. Ofbeldi gegn lögreglu­mönnum er ekki skráð eftir verknaðar­aðferð.

Meðfylgjandi eru tölur yfir brot gegn vald­stjórninni, nánar tiltekið ofbeldi gegn lögreglu­mönnum (óháð verknaðar­aðferð). Einnig fylgja með tölur yfir fjölda manndrápa þar sem skotvopni var beitt.“

Líkt og sjá má á tölunum fyrir ofan má sjá að tilfelli brota gegn lögreglu­mönnum rokka svolítið upp og niður á milli ára. Meðaltal árása gegn vald­stjórninni á síðustu tuttugu árum er 92,35 tilfelli. Manndráp þar sem skot­vopnum er beitt eru ekki mörg eða fjögur frá árinu 2000.

Umfjöllun þessi er að finna í nýjasta tölublaði Mannlífs sem finna má ókeypis í verslunum Bónus, Hagkaupa og á N1. Einnig má lesa það á vefnum. Hér má sjá blaðið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá