Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kim tjáir sig um sambandið við Pete og deilurnar við Kanye: „Við erum alltaf fjölskylda“

Kim Kardashian.
Kim Kar­dashian. Mynd: Instagram

Kim Kardashian, raun­veruleika­stjarna, frumkvöðull og lögfræðingur, hefur nú í fyrsta sinn tjáð sig opinber­lega um samband sitt og Pete Davidson. Hún gefur meðal annars í skyn að samband þeirra muni koma fyrir og verða rætt í nýjustu þáttaröð Kardashian-fjöl­skyldunnar á streymis­veitunni Hulu. Sömuleiðis segir hún að aðdáendur geti átt von á einhverju „mjög spennandi á næstunni“ og að hugsanlegt væri að Pete tæki þátt í því.

Hafa ekki enn verið í tökum saman

Þau Kim og Pete hafa verið að hittast frá því í október á síðasta ári, en neistar milli þeirra eru sagðir hafa kviknað þegar Kim var gestur í þættinum Saturday night live, en Pete er einn af þátta­stjórn­endunum þar.

Kim segir þau skötuhjú enn ekki hafa verið í neinum tökum saman fyrir nýja þáttinn en að það sé ekki útilokað að svo verði. „Ég er ekkert á móti því. Það er bara ekki eitthvað sem hann gerir,“ segir hún í samtali við Variety. „En ef það væri viðburður í gangi sem hann væri staddur á, þá myndi hann ekkert reka mynda­vélarnar í burtu.“

Kim segir að þrátt fyrir að parið hafi vissulega ekki enn verið í neinum tökum saman, haldi hún ekki aftur af sér þegar kemur að því að ræða samband þeirra; hvernig þau kynntust, hver átti fyrsta skrefið og öll þau smáatriði sem aðdáendur þyrstir í.

„Ég er algjör­lega opin fyrir því að tala um hlutina og ég mun útskýra þá,“ segir Kim.

Nýleg mynd af Kim Kar­dashian og Pete Davidson.

Hefur ekki viljað gagnrýna Kanye

Þegar Kim er innt eftir upplýsingum um deilurnar undan­farið milli hennar og fyrrum eigin­manns hennar, Kanye West, vill hún lítið tjá sig um þær en segir þó að eitthvað af ferlinu sé hægt að sjá í þátta­röðinni. Henni þyki þó best að fara í gegnum þau mál í einrúmi.

Kim segir að vissulega væri ekki auðvelt að leysa mál af þessu tagi opinber­lega. Þrátt fyrir að Kanye hafi farið mikinn undan­farið á samfélags­miðlum í rógs­herferð gegn bæði Pete og henni, þar sem hann tjáir sig einhliða um skilnaðinn og hefur uppi ýmis meiðandi ummæli, hefur Kim ekki viljað gagnrýna hann opinber­lega, hvorki á samfélags­miðlum sínum né öðrum vettvangi.

„Ég held að ég myndi aldrei gagnrýna pabba barnanna minna í mínum eigin sjónvarps­þætti,“ segir Kim. „Ég er bara ekki þannig og ég held að það myndi aldrei láta mér líða vel.“

„Ég vanda mig alltaf og sýni virðingu í því sem börnin munu koma til þes að sjá. Raun­veruleikinn er sá að við erum alltaf fjöl­skylda,“ segir Kim og tekur það fram að þau Kanye munu ávallt bera bæði ást og virðingu til hvors annars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt