Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Guðmundur Jón um blóðmerarhald ,,Ekki hlusta á upphrópuð skellibjöllulæti!“

Athafna­maðurinn, hesta- og ferða­þjónustu­bóndinn Guðmundur Jón Viðarsson í Skálakoti í Rang­árvalla­sýslu er gestur Guðna Ágústs­sonar að þessu sinni.

Sonur Guðmundar heldur blóðmerar í Holti og aðspurður segist hann því þekkja vel til þess búskapar. Mikill hiti hefur verið í umræðunni um blóð­merarhald eftir að myndband fór á kreik sem sýnir ljóta mynd af blóð­merarhaldi.

Það er margt sem getur sært augað, sér­stak­lega ef þú leitar að því.

„Við megum heldur ekki gleyma því að þetta títt umtalaða myndband er afurð þriggja ára vinnu, mestmegnis með faldar mynda­vélar og verið að taka upp. Mér er það til efs að nokkurt dýrahald og alveg eins bara kattahald í blokk myndi þola það endalaust að vera með faldar mynda­vélar á sér endalaust. Og nú er ég ekki að mæla með dýrapla­geringu nema síður sé; að sjálfsögðu ekki.“

Útflutnings­tekjur af blóð­merarhaldi á síðasta ári voru um tveir milljarðar króna sem er svipuð upphæð og fékkst fyrir útflutning á lífhrossum.

Spurður nánar út í merar­blóðið segir Guðmundur að „þarna eru bændur viða um land með öfluga búgrein án ríkis­styrkja að stuðla að því samfélagi og nærumhverfi sem þeir lifa í. Dýra­læknar framkvæma blóð­tökuna og MAST annast eftirlit. Þetta er eins öruggt og það getur verið en það sárnaði mörgum að þegar þetta tiltekna myndband kom upp að þá var farið beint í bóndann en enginn krafinn ábyrgðar en þá er ég ekki að gera lítið úr hlut bóndans; enginn er yfir það hafinn að hafa á sér skoðun.“

Spurður út í hvaða álit hann hefði á því magni sem tekið er úr hverri hryssu segir hann ekki hafa neitt fræðilegt álit á því „það er örugglega gert að undirlagi þar til bærra manna. Við skulum snúa þessu við og segja að það væri tekin úr kapla­mjólk. Það koma meiri tilfinningar bara af því að það er verið að taka blóð. Ef hryssurnar væru mjólkaðar og þetta tekið úr kapla­mjólkinni, nú reikna ég með að það sé í kapla­mjólkinni þetta hormón þetta er bara í hryssunni yfir höfuð, þá væri ekki eins yfir­drifin umræða.“

Þá er mik­il­væg­ast í þessu að bíða þeirrar nið­ur­stöðu sem að nefndin sem land­bún­að­ar­ráð­herra skip­aði og standa hreint að þessu verk­efni haldi menn því áfram en ekki hlusta á upp­hrópuð skelli­bjöllu­læti ein­hver sem fara hvað hæst þessa dag­ana.

Guðmundur hefur setið um árabil í sveita­stjórn Rangar­þings Eystra og spurður út í baráttu­málin ber sameining sveitar­félaga hæst „allavega er það búið að vera þannig frá því að ég kom að þessu að það er gegnum gangandi að það er alltaf verið að setja á okkur meiri ábyrgð og okkur er ætlað meira jafnvel án fjárhags­aðstoðar til þess. Og að sjálfsögðu þá eru okkar þegnar í Rangar­þingi Eystra eins og út um allan borg og bý það krefst þeirrar þjónustu sem best er og að sjálfsögðu. Litlu einingarnar eiga erfiðara með að viðhalda topp þjónustunni eins og krafist er.“

Mat hans er að pólitíkina ætti ekki að setja í fyrsta sætið, öllu­heldur að skapa hagsæld með réttum vinnu­brögðum. Landsmála­pólitíkin eigi kannski ekkert svo mikið erindi inn í þessi minni sveitar­félög þar sem það er nógu erfitt að finna öflugt fólk sem er tilbúið að leggja þetta á sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt