Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Upplifun samkynhneigðra karla: „Þú þarft að vera hvítur til að vera gay á Íslandi“

„Þú þarft að vera hvítur til að vera gay á Íslandi“. Upplifun samkyn­hneigðra karla af asískum uppruna af stöðu sinni sem hluti af tveimur jaðar­hópum er heitið á fyrir­lestri Hjörvars Gunnars­sonar og Jóns Ingva Kjarans í fyrirlestrarröð Hinsegin Ísland í alþjóð­legu samhengi sem var haldin í samstarfi RIKK – Rannsókna­stofnunar í jafnréttis­fræðum við Háskóla Íslands og Jafnréttis­skólans (GRÓ-GEST) nú á vormisseri 2022.

Í kjölfar umræðu undir merkjum #BlackLivesMatter hefur hörunds­dökkt hinsegin fólk stigið fram og sagt sögur sínar af rasisma og fordómum. Fyrir­lesturinn þeirra byggir á viðtals­rannsókn á reynslu samkyn­hneigðra karla af asískum uppruna. En í rannsókn þeirra virðist rasismi og öráreiti vera gegnum­gangandi þemu í frásögnunum, þar sem greint er frá jaðar­setningu og útilokun á grund­velli tungumáls og þess að vera ekki hvítur.

Í erindinu var áhersla lögð á að draga fram hvers kyns rasismi og hvernig hann á sér undirrót í kerfis­lægum þáttum sem ýta undir forréttinda­stöðu hvítra. Þá gerðu þeir grein fyrri fyrir hugtökum á borð við hinsegin þjóð­hverfu (e. homonationalism) og (hinsegin) hvítleika (e. queer whiteness) og þau notuð til að varpa ljósi á og greina gögnin.

Fyrr­nefnda hugtakið lýsir því hvernig ákveðnir hópar innan hinsegin samfélagsins – hvítt samkyn­hneigt fólk úr milli­stétt – hafa fengið viðurkenningu sem hluti af þjóðinni. Það síðarnefnda dregur svo fram hvernig veruleiki hinsegin fólks af öðrum uppruna mótast af hvítum viðmiðunum og gildum sem svo ýta undir forréttinda­stöðu þeirra sem teljast vera hvítir.

Í fyrir­lestrinum kom fram hvernig tungu­málið virðist viðhalda tilteknum valda­afstæðum en viðmælendur virtust gera sér grein fyrir því að tilvera þeirra mótast af tungu­málinu, íslensk­unni, bæði á grund­velli kynhneigðar og uppruna. Vegna útlits og erlends uppruna höfðu viðmælendur reynslu af framkomu sem skýra má sem örógildingu jafnframt sem þeir upplifðu fórdóma á grund­velli kynþáttar síns. Lýsa þeir því hversu erfitt það getur verið að vera öðruvísi í hinsegin samfélaginu á Íslandi eða eins og titill erindisins bendir til: „Þú þarft að vera hvítur til að vera gay á Íslandi.“

Hjörvar Gunnarsson er kennari við Brekku­bæjarskóla og byggir erindið á loka­verkefni hans til M.Ed.-prófs við mennta­vísindasvið Háskóla Íslands undir leiðsögn Jóns Ingvars. Jón Ingvar Kjaran er prófessor í hinsegin menntunar­fræðum og félags­fræði menntunar við Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands. Rann­sóknir hans fjalla um málefni hinsegin ungmenna, innflytjendur, ofbeldi í víðum skilningi, krítísk fræði og fjöl­menningu. Um þessar mundir vinnur hann að bók um hinsegin aðgerðar­sinna í Indónesíu og Malasíu ásamt dr. Mohammad Naeimi.

Hægt er að hlusta á fyrir­lesturinn í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá