Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Steinunn segir sína sögu: „Fötluð börn einna mest útsett fyrir ofbeldi“

Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Mynd. Skjáskot/Reykjavíkurborg
Steinunn Ása Þor­valds­dóttir. Mynd. Skjáskot/Reykja­vík­ur­borg

„Það sem skiptir miklu máli er að þetta er ekki okkar skömm heldur þeirra sem gera svona lagað. Ég get sagt það að ég var með skömm í hjartanu í mörg ár og ég vanmat mig sjálfa mig og reif mig niður,“ segir Steinunn Ása Þorvalds­dóttir um útgáfu bæklings í samtali við ritstjórn ráðhúss Reykja­víkur hjá Reykja­víkurborg.

Steinunn segir að; „Fólk noti stundum orð eins og þroska­heftur, vangefinn og fáviti til að niður­lægja. Þessi orð eru úrelt og eiga að vera það. Ég meina það í alvöru. Þessi orð særa og meiða og ég hef oft verið kölluð þetta. Ég segi oft við foreldra að kenna börnum sínum að segja ekki svona orð lesandi góður.“

Bæklingurinn er um sögu Stein­unnar Ásu Þorvalds­dóttur, þar sem farið er inn á fordóma og ofbeldi gegn fötluðu fólki. Sagan er hluti af verk­efninu Saman gegn ofbeldi sem er samstarfs­verkefni Borgarinnar, lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu, Kvenna­athvarfsins og Heilsu­gæslunnar á höfuð­borgar­svæðinu.

Fötluð börn einna mest útsett fyrir ofbeldi

Steinunn segir sína sögu á einlægan hátt útskýrir frá reynslu sinni af fordómum og ofbeldi um leið og aðrir sem upplifa að á sér sé brotið eru hvattir til að skila skömminni og leita aðstoðar.

Rann­sóknir hafa leitt í ljós að fatlað fólk er í meiri hættu á að vera beitt ofbeldi en ófatlað fólk og eru fatlaðar konur og fötluð börn einna mest útsett fyrir ofbeldi í samfélaginu.

Með reynslu­sögu Stein­unnar Ásu fær lesandi innsýn í reynslu­heim fatlaðrar konu og þá fordóma og ofbeldi í samfélaginu sem fatlað fólk verður fyrir.

Steinunn bendir á fordóma í samfélaginu og nauðsyn þess að fatlað fólk fái að taka þátt í atvinnu­lífinu, fái aukna fræðslu og verði full­gildir meðlimir samfélagsins. Að lokum er bent á ýmsar leiðir fyrir brotaþola til að fá aðstoð.

Bæklingurinn sem gefin er út af mann­réttinda- og lýðræðis­skrifstofu Reykja­víkurborgar er bæði á íslensku og ensku. Honum verður fylgt eftir með fræðslu næsta haust.

Hægt er að hafa samband við:, [email protected], ef þið viljið fá fræðslu eða eintök send á ykkar starfs­stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá