Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Herdís er tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna: „Var svo hræðilega óánægð í lögfræðináminu“

Herdís Stefánsdóttir
Herdís Stef­áns­dóttir

„Það er ótrúlega gaman að fá svona viðurkenningu. Ég er búin að vinna mikið erlendis og það er gaman að vera einhvern veginn séður og viðurkenndur hérna heima á Íslandi. Svo er þetta svo mikil uppskeru­hátíð og gaman að hitta tónlistar­samfélagið og fagna saman,“ segir Herdís Stef­ánsdóttir tónskáld sem er tilnefnd til Íslensku tónlistar­verð­launanna fyrir plötu ársins og upptöku­stjórn ársins fyrir sjónvarps­þættina Y: The Last Man og fyrir titil­lagið við Verbúðina ásamt Kjartani Holm. Þess má geta að Herdís var einnig tilnefnd í fyrra og hittifyrra.

Hvað vill Herdís segja um tónlistina sem hún samdi fyrir sjónvarps­seríuna Verbúðina?

„Það eru næstum því tvö ár síðan við Kjartan Holm byrjuðum að semja tónlistina fyrir Verbúðina. Við vorum búin að lesa handritið og það var ennþá verið að skjóta þættina og vorum að átta okkur á um hvað þetta væri og hver stemmingin væri. Persónan Jón heldur í öðrum þætti epíska ræðu á Alþingi sem við kölluðum „launa­þræla“ þar sem hann sem maður fólksins talaði fyrir bættum kjörum verka­lýðsins. Eftir því sem maður kynntist honum og seríunni og sá alla spillinguna þá var þetta nátt­úrlega fólkið með peningana sem var að hugsa um sjálft sig en notaði þetta tæki eins og verka­lýðurinn og almenna fólkið skipti engu máli. Við hugsuðum með okkur hvað Jón myndi vera að hugsa og hvernig tónlist hann myndi vilja hafa þegar hann væri að sannfæra fólk um að hann væri talsmaður verka­lýðsins og væri með fólkinu í liði. Þá kom hugmyndin að semja verkalýðs­innblásið lag og horfa til klassískra, íslenskra sönglaga eins og til dæmis Maístjörnuna. Við veltum fyrir okkur íslenskri söng­lagahefð og verkalýðs­lögum og svo horfðum við líka til Shostakovich og stórra útsetninga sem voru mikið í tísku á Sovét­tímanum. Þannig að við vorum með alls konar pælingar og það einhvern veginn varð svo kjarninn í tónlistinni.“

Við erum með milljón útsetn­ingar af þessum hljómum.

Og úr varð titil­lagið. „Þegar við vorum búin að semja það þá byggðist öll tónlistin í Verbúðinni á þessu þema. Við erum með milljón útsetningar af þessum hljómum; af þessu þema. Við erum með þetta þema með hvala­hljóðum. Við erum með þetta þema með sinfóníu. Við erum með þetta þema með kór sem við tókum upp á Akureyri. Við erum með þetta þema í píanó­útsetningu sem og í brassi og elektróník. Þannig að við gerðum enda­lausar útgáfur og það í raun og veru varð tónlistin í Verbúðinni.“

Eigin hljóð

Herdís er spurð hvað einkenni tónlist hennar almennt.

„Hvað sem ég geri þá er ég alltaf að reyna að gera eitthvað sem er spennandi og nýtt fyrir mér. Ég reyni að hugsa og prófa ný hljóð og prófa nýja hluti. Ég vil alltaf vera ég og gera eitthvað sem ég er. Ég get ekki sagt að ég sé að reyna að gera eitthvað ákveðið í minni tónlist annað en að gera eitthvað sem mér finnst vera geggjað og spennandi. Ég geri alltaf eitthvað ólíkt. Í grunninn kem ég úr raftónlist; ég er alltaf með einhverjar hljóð­pælingar og ég bý til og safna mínum eigin hljóðum, sérstak­lega í kvikmynda­verkefnum þar sem verkefnin eru svo mismun­andi. Ég gert allt frá strengja­kvartett yfir í mjög elektró­nískt skor. Að því leyti fer þetta eftir því í hvaða verkefni ég er. Ég hef aldrei gert sömu samsetningar af hljóð­færum. Það er alltaf eitthvað nýtt.“

Herdís og eigin­maður hennar, Dustin O’Halloran, píanó­leikari og tónskáld, eru nýbúin að klára að semja tónlist við sex þátta bresk-bandaríska sjónvarps­seríu, The Essex Serpent. „Þetta er fyrsta verkefnið okkar saman og verða þættirnir sýndir í maí á Apple TV.“ Þess má geta að Dustin var á sínum tíma tilnefndur til BAFTA, Óskars- og Golden Globe-verðlauna fyrir tónlistina í kvik­myndinni Lion.

Herdís seg­ist oft einmitt semja dimma tón­list. Drunga­lega.

„Það var bara geggjað,“ segir Herdís um samvinnu þeirra. „Við erum ólík tónskáld en það er samt mikil tenging á milli okkar. Þegar við vorum komin langt af stað í verk­efninu þá vissi ég stundum ekki hvað ég hafði samið og svo hvað hann hafði samið. Það var eins og við værum ein rödd. Þetta gekk ótrúlega vel og var gaman. Við erum ólíkir karakterar; ég ímyndaði mér að ég myndi semja tónlistina við atriði sem væru dimm og erfið en hann myndi taka fallegu melódíurnar en svo endaði það á hinn veginn.“ Herdís segist oft einmitt semja dimma tónlist. Drunga­lega. „Það er erfitt að útskýra af hverju maður gerir eitthvað eða hvað það er sem heillar mann en af einhverjum ástæðum hefur þetta komið auðveldlega frá mér. Það hefur stundum verið fyndið að ég fæ stundum „feedback“ frá leik­stjórum um að tónlistin sé of „scary“ en þá finnst mér það kannski verið geggjað eða fallegt. Það er svo afstætt hvernig maður upplifir og túlkar tónlist.“

Fram undan er verkefni sem Herdís segir að sé stærsta verkefni sitt til þessa. Hún vill hins vegar ekki segja hvað það er. Hún má það ekki.

Ég var svo hræðilega óánægð

Herdís byrjaði átta ára gömul að læra á píanó hjá píanó­kennara sem bjó í sömu götu og þetta gerði hún af og til til 17 ára aldurs. Hún fór aldrei í tónlistar­skóla og lærði aldrei tónfræði eða hljóm­fræði. Hún var á náttúru­fræði­braut í Mennta­skólanum í Reykjavík og skráði sig svo í lögfræði við Háskóla Íslands.

Mér leið ekki vel og vissi ekki hver ég var eða hvað ég átti að gera.

„Ég var svo hræðilega óánægð í lögfræði­náminu. Það átti svo illa við mig. Mér leið ekki vel og vissi ekki hver ég var eða hvað ég átti að gera. Ég fór svo að spila á píanóið þegar heim kom úr skólanum og fór að búa til mín eigin lög. Mér fannst það vera fjarstæðu­kennt að ég gæti samið tónlist; mér fannst það ekki vera raun­verulegt. En svo fór ég virkilega að hafa áhuga á því. Með fram lögfræði­náminu fór ég í einaktíma í hljóm­fræði og svo fór ég að útsetja fyrir kór og strengja­kvartett.“

Það endaði með því að Herdís hætti í lögfræði­náminu. Hún útskrifaðist frá tónsmíða­deild Lista­háskóla Íslands árið 2013 og lauk síðan árið 2017 meistara­námi í tónsmíðum með áherslu á kvikmynda­tónlist frá New York University. Hún bjó svo um tíma í Los Angeles en flutti svo heim til Íslands árið 2020.

Þau Dustin búa í Reykjavík ásamt þriggja ára dóttur sinni sem er músíkölsk eins og mamma og pabbi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá