Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Trýna komin í öruggt skjól: „Alveg búin að fá nóg af því að vera á flakki, greyið“

Trýna komin í bílinn sem fer með hana heim til eiganda síns.
Trýna komin í bíl­inn sem fer með hana heim til eig­anda síns.

Tíkin Trýna sem hafði verið týnd síðan í fyrradag er fundin og á leið heim til sín. Sjálfboða­liði hjá samtökunum Dýrfinnu, sem stóðu að leitinni, segir móður og dætur hennar tvær hafa fundið tíkina og náð að lokka hana til sín.

Trýna er 11 ára gamall sveita­hundur sem týndist í Grafar­holti, í umhverfi sem hún þekkir ekki. Hún fældist og varð fyrir bíl, og því var óttast að hún gæti verið slösuð. Í fyrri frétt Mannlífs var því komið á framfæri að Dýrfinna óskaði eftir sjálfboða­liðum í leitina en sem betur fer gerist þess ekki þörf lengur.

Þær Rut Hermanns­dóttir, Emilía Rós Ómars­dóttir og Indíana Rós Ómars­dóttir voru á gangi með Schäfer-tíkina Lunu, þegar þær sáu tilkynningu á leitar­spjalli Dýrfinnu um að tveir aðilar hafi séð Trýnu nálægt þeim stað sem þær voru staddar á.

„Þær sneru þá við og sáu tíkina,“ segir Anna Margrét, sjálfboða­liði hjá Dýrfinnu í samtali við blaðamann Mannlífs. „Þær fanga athygli hennar og prófa að kalla: „Trýna, nammi!“ og þá kemur hún trítlandi til þeirra, tilbúin til að fara heim. Alveg búin að fá nóg af því að vera á flakki, greyið.“

Trýna með bjarg­vættum sínum.

Anna Margrét segir Trýnu virðast hafa verið búna að gefast upp. „Stundum endar þetta svona, að hundurinn einhvern veginn bara ákveður að koma. Þá er hann búinn að komast yfir áfallið af því að vera týndur eða lenda fyrir bíl, eða hvað það er sem gerist. Við mælum almennt með að kalla ekki á þá, en þær fönguðu athygli hennar með því að prófa að segja „nammi“ og stundum virkar það. En daginn áður hafði hún hlaupið í burtu frá þeim sem kölluðu. Ég er alveg rosalega ánægð með að þetta virkaði,“ segir hún.

Eigandi Trýnu hafði sjálfur ekki heilsu í leitina og varð því að treysta á aðstoð Dýrfinnu og annarra sjálfboða­liða. Dýrfinna eru fremur ný samtök sem aðstoða fólk við leit að týndum gæludýrum. Þegar hafa samtökin orðið til þess að fjölmörg dýr hafa komist aftur heim í faðm eigenda sinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá