Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kim fjarlægir West úr nafni sínu og birtir paramyndir á Instagram: „Á hvaða bíl ætlum við?“

Kim Kardashian.
Kim Kar­dashian. Mynd: Kim Kardashian/Instagram.

Kim Kardashian hefur nú fjarlægt West, eftirnafn fyrr­verandi eigin­manns síns, úr nafni sínu. Kim skildi við Kanye West á síðasta ári en hefur fram að þessu enn borið eftirnafn hans, í það minnsta á öllum sínum samfélags­miðlum. Hún fjarlægði nafnið þaðan í dag.

Þetta er ekki eina nýbreytni Kim á síðasta sólar­hring. Í gær birti hún nefnilega myndir af sér og Pete Davidson saman á Instagram í fyrsta sinn. Þau Pete hafa verið í sambandi síðan síðastliðið haust og verið mikið á milli tannanna á fólki undan­farin misseri, ekki síst vegna þess að Kanye West hefur farið mikinn í rógs­herferð gegn þeim á samfélags­miðlum.

Kim og Pete bregða á leik.

Í ljósi hegðunar Kanye undan­farið verður því að teljast nokkuð táknrænt að raun­veruleika­stjarnan hafi loks stigið skrefið og fjarlægt nafn hans, á svipuðum tíma og hún gefur meiri innsýn inn í líf þeirra Pete sem pars.

Í færslunni má sjá myndir af þeim Pete saman ásamt textaðri stillu úr kvik­myndinni The Town þar sem persóna Ben Affleck segir við persónu Jeremy Renner: „Ég þarf þína hjálp. Ég get ekki sagt þér hvað það er… þú mátt aldrei spyrja mig út í það og við komum til með að meiða fólk.“

„Á hvaða bíl ætlum við?“ er svar persónu Jeremy Renner. Það er sömuleiðis sú setning sem Kim skrifar undir mynda­seríuna af þeim turtildúfum. Nú getur fólk skemmt sér við að lesa í það – eða ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt