Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Þór notar hugvíkkandi efni í meðferðum sínum: „Ég var einfaldlega bara suicidal í eitt og hálft ár“

Þór Guðnason
Þór Guðnason Mynd: Guðmann hjá Mink

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en Þór Guðnason. Þór sem er sonur Guðna í Rope yoga, hefur verið lengi lengi í bransanum eins og maður segir. Hann hefur fengist við allskonar einka­þjálfun og ráðgjöf. Hann var sá fyrsti sem náði sér í réttindi hjá kulda­meistaranum Wim Hof sjálfum. Hann er einn af stofn­endum Primal Iceland og svona væri lengi hægt að telja. Maður mikillar reynslu hér á ferð.

Þór Guðnason og Gunnar Wiium

Héðinn Unnsteinsson opnaði á þessa umræðu í þætti Þvotta­hússins nr 69, það er að segja umræðuna um hugvíkkandi efni. Lilja Sif sálfræðingur lýsti akademískri nálgun á undir­búning og eftir­fylgni í þessum efnum þó án þess að fara í athöfnina sjálfa í þætti nr 74. Í þessum þætti er svo ekkert skafið af því, Þór fer með okkur í reynsluna sjálfa og lýsir fyrir okkur hversu sterk og áhrifa­mikil þessi verkfæri geta verið sé þeim beitt á réttan hátt, þá í réttu umhverfi, undir réttri hand­leiðslu, réttu magni og mikil­vægast á réttum forsendum ferðalangsins.

Leitaði að sjálfum sér á furðulegum stöðum

„Ég ferðaðist mikið um heiminn og fór á furðulegustu staðina, Himalajas, búinn að fara til Perú, inn í frum­skóginn og hverju var ég eiginlega að leita að? Ég var að leita að sjálfum mér. Ég var búinn að prófa að fara til Indlands, sitja þar og hugleiða, gera öndunar­æfingar, fara í yogakennaranám, búinn að fara í þetta Wim Hof kennara nám. Þetta eru allt hlutir sem hjálpuðu mér að endur­heimta sjálfan mig,“ sagði Þór um leitina að sjálfum sér.

„Þegar að við opnuðum Primal þá bjó ég í 150 fermetra einbýlis­húsi út í skógi við Elliða­árvatn og ég var búin að opna þetta gym og bara dream had come true en mér hefur bara aldrei liði eins illa á ævi minni. Að labba inn í Primal og horfa framan í fólk var oft bara þjáning. Þegar að fólk skoðaði Instagrammið mitt hélt fólk bara að ég væri í topp málum, ferðaðist út um allan heim, fór á námskeið, nýbúinn að opna þetta flottasta gym á Íslandi en ég var bara mölvaður inn í mér.“

Hugfanginn af hugvíkkandi efnum

Þór hefur síðustu ár verið hugfanginn af mögu­leikum hinna ýmsu hugvíkkandi efna en þá fyrst og fremst af íslenska Psilosobin sveppinum. Hann hefur þó einnig unnið með hin og þessi efni og nefnir í því samhengi Ayahuasca og Mescalin kaktus. Þór hefur ferðast um heiminn í þessum tilgangi og lært shamanískar aðferðir, möguleika og umgengni við þessi þræl­öflugu efni. Í dag veitir hann ráðgjöf, utan­umhald og hand­leiðslu í þessum efnum, ýmist í hóp sem einskonar hópserómóníur eða meira einstaklings­miðað þar sem einstaklingurinn eftir samtal leggur sig í hendur Þórs og innbyrgir sveppi í mismiklu magni, allt upp í 5 grömm, og á sirka 6 tíma glugga situr Þór yfir viðkomandi og leið­beinir í gegnum ferða­lagið sem oft á tíðum getur verið erfitt og krefjandi.

Þór Guðnason Guðmann hjá Mink

„Ég tek til mín fólk í vinnu með þessa plöntu­kennara eins og ég vil kalla það. Öll lyf eru afleiður af náttúru­legum plöntum, af hverju erum við þá ekki bara að éta þessar plöntur? Þetta eru allt mismun­andi verkfæri í verkfæra­kassanum,“ segir Þór um hin og þessi hugvíkkandi efni. 

„Þetta er rosalega öflug verkfæri til að fara inn í sálarlíf fólks og hjálpa fólki að bara melta þennan heim sem við búum í. Það er bara ákveðin gluggi sem upp á 4-6 tíma með Psilosobin og þó að ég myndi taka 20 grömm þá myndi það ekki lengja ferða­lagið, þú ferð þá bara dýpra.“

Hrært í pott­unum.

Ásetningur þessara ferðalaga getur verið margskonar en fyrst og fremst er ásetningurinn að komast í dýpið og vinna þar á afleiðum eða áverkum áfalla, stórra og smárra. Þór heldur því fram að eitt svona vel heppnað ferðalag geti jafnast á við fjöldan allan af sálfræði­tímum því tengsl eru mynduð á afar beinskeittan hátt við undir­vitundina. Ferða­lagið getur verið krefjandi og krefst vissrar uppgjafar að setja sjálfan sig í þetta ferli uppgjafar sem oft á tíðum hlýst af því að gefa eftir spennu sem kannski hefur verið lang­varandi ástand. 

„Já,já, að sjálfsögðu, það er hægt að gera allt á röngum forsendum. Ég meina ef ég myndi bara borða gúrkur þótt að gúrkur séu rosalega hollar þá myndi ég samt bara deyja úr næringar­skorti,“ segir Þór er Gunnar spyr hann hvort hægt sé að nota hugvíkkandi efni á röngum forsendum. „Það opnast allt upp á gátt og það skiptir gríðar miklu máli að þú sért með manneskju sem veit hvað er að gera og hefur reynslu sjálfur á því að ferðast og ég mæli bara með að fólk sé með ábyrgan aðila með sér.“

Sveppir. Þetta eru sveppir.

„MDMA er nátt­úrlega man made substance en samt sem áður gríðar­lega öflugt verkfæri því það eykur samkennd og brýtur niður varnir fólks, egóið leysist bara upp basicly,“ segir Þór er talið berst að MDMA.

Engin þunglyndislyf á markaðnum eftir 5 ár

Þór telur að hugvíkkandi efni eigi jafnvel eftir að gera þunglyndislyf óþörf eftir fimm ár.

„Ég hef átt samtöl við geðlækna sem segja að eftir 5 ár verði bara engin þunglyndislyf á markaðnum, afhverju? af því að þau standast ekki samkeppni við rann­sóknirnar sem eru að koma á þessum hugvíkkandi efnum. Ég sé og man kannski hluti í þessum ferða­lögum sem ég hef ekki hugsað um í 20-30 ár, en þegar ég sé minninguna, sárið, þá skil ég af hverju ég bregst við á ákveðinn hátt sem full­orðinn einstaklingur. Þetta er eins og ég geti gengið inn í sálarlíf mitt með vasaljós og allt í einu get ég beint ljósi inn í the dark corners of my soul, þá sé ég hvað er það sem er að valda skapgerðar­brestum mínum og hvað er það sem er að valda fíkn og annað. Serómónían byrjar þegar hún endar í raun og veru því þú færð þarna innsýn inn í sálarlíf á annan hátt en þú ert vanur, að fara í svona ferðalag er eins og 20 ára sálfræði­meðferð liggur við.“

Í dag er mikil vitundar­vakning í gangi í þessum efnum bæði hérlendis og erlendis. Fólk er farið að nota efni á borð við LSD, mescalin, DMT, Psilosobin, MDMA og ketamín svo eitthvað sé nefnt. Efnin eru ýmist notuð sem svokölluð fulldose trip og þá oft í hóp og í serómónísku umhverfi eða að efnana er neytt í svokölluðu smáskammta­formi. Til dæmis myndi dagskammturinn, 0.1-0.3 gramm af Psilosobin sveppi flokkast sem smáskömmtun og að sögn Þórs algjör­lega hættu­laust samkvæmt mörgum alþjóð­legum rann­sóknum.

„Hann notaði sem sagt LSD til að viðhalda edrú­mennsku sinni. Hann var að upplifa andlegar upplifanir og tengingar í gegnum LSD og ef hann hefði fengið sínu fram væru fíknimál á jörðinni í miklu betri málum,“ segir Þór um sagn­fræðilegar stað­reyndir stofnanda AA samtakana Bill Willson.

Edrú en í stöðugum sjálfsvígshugsunum

Talið barst að lélegum árangri í baráttu við fíkni­sjúkdóma og alkahólisma. Þór endaði mjög ungur í neyslu áfengis og annarra lyfja og í 19 ár stundaði hann hefð­bundna edrú­mennsku með tilheyrandi AA fundar­sókn og 12 spora vinnu. Gunnar minnist á tölfræðina á bakvið langtíma edrú­mennsku sem liggur einhver­staðar í kringum 10% með hjálp nútíma meðferðar­kerfis og 12 spora lausnar. Þór fannst þessi tölfræði ekki vera fjarri lagi, þó frekar há ef eitthvað. Hann sagði frá því að eftir öll þessi ár edrú var hann í stöðugri vanlíðan, á lyfjum við ADHD og síðustu tvö árin áður en hugur hans opnaðist fyrir hugvíkkandi efnum, með stans­lausar sjálfsvígs­hugsanir. Hann sagðist hafa upplifað í raun vissa endur­fæðingu með hjálp þessara efna þar sem hugur hans var opnaður á hátt sem hann hafði aldrei upplifað áður og afleiðing þess var aukin sköpun í hversdags­leikanum ásamt gríðar­lega öflugu verkfæri hvað varðar úrvinnslu á áverkum óafgreiddrar fortíðar. Hann einfald­lega segist hafa upplifað að tauga­kerfið hafi verið endur­forritað, þunglyndi, þráhyggju­hugsanir, fíkni­hegðun og spennu­fíkn er horfin úr lífi hans en í staðinn finnur hann fyrir auknum léttleika, sterku innsæi, sjálfbærni, sköpun og hugrekki. 

„Þegar ég var 12 ára var ég farinn að drekka hverja einustu helgi og ég gerði það í mörg ár, svo koma fíkniefni inn í þetta og þá er ég komin í dagneyslu á fíkni­efnum og ég setti bara basicly allt í mig sem að kjafti kom. Ég var bara hægt og rólega að murrka úr mér lífið en þegar ég er orðinn 22 ára fer ég í meðferð, tek mig á í lífinu og tek út vímu­gjafana en það þýddi ekki það að líf mitt varð eitthvað æðislegt. Ég fór inn í AA samtökin og ég fann mig ekkert rosalega vel inn í þessum samtökum. Að viðurkenna vanmátt minn og að vera með ólæknandi sjúkdóm, ég upplifði rosa mikið dogma inn í AA samtökunum og hjarta mitt bara gat þetta ekki. Ég var einfald­lega bara suicidal í eitt og hálft ár áður en ég kem svo að þessum plöntu­kennurum,“ segir Þór er hann rifjar upp fortíðina.

Þrældómur nútímamannsins

Þór vildi meina að við mennirnir séu á svo miklum villigötum. Hann útskýrði fyrir Gunnari hvernig okkur mönnunum er ætlað að snúa aftur til náttúrulegra úræða sem lausn við hvaða kvillum sem er. Hann vill meina að tengin við náttúruna geti og sé ætlað að lækna hreinlega alla kvilla, hugarfars­lega sem og líkamlega. Það að vinna myrkrana á milli og hlamma sér svo í sófann með popp og kók yfir Netflix milli þess sem maður skrollar samfélags og frétta­miðla sé í raun viss þrældómur sem við erum komin í og algjör­lega óafvitandi. Lausnin við þessu ástandi er að sjálfsögðu að sjá sann­leikann á þeirri aðstöðu sem maður hefur skapað sér og svo í kjölfarið brjóta sér leið út og tengjast nátturunni eins og okkur er ætlað.

Þór, við það að leggj­ast í vík­ing. Guðmann í Mink

„Þetta eru sár sem eru að koma þegar við erum börn en í dag getum við ekkert verið að kenna mömmu okkar og pabba um það sem eftir er ævinnar að við séum svona eða hinsegin, eða að afi hafi verið svona eða amma og blabla. Við erum orðnir full­orðnir einstaklingar og þegar við erum orðin full­orðnir einstaklingar þá er það okkar að heila okkur, ekki mömmu og pabba, ekki ríkið eða heilbrigðis­kerfið heldur við sem einstaklingar sem erum ábyrg fyrir okkar heilsu og well-being. Þegar að við meltum ekki tilfinningar okkar setjast þær fyrir á ákveðnum stöðum í líkamanum og ef við meltum ekki tilfinningarnar þá förum við að breiða yfir þær. Ef ég drekk áfengi, hvað gerist? Það slakar á tauga­kerfinu á mér og þegar það slakknar á tauga­kerfinu á mér þá shiftar blóð­flæðið úr skeletal vöðvunum sem ég nota til að berjast eða verjast með og ég fæ flæði inn í hjartað og ég get upplifað ást og samkennd og þetta er það sem við erum að nota vímuefni í, að stýra taugekerfinu í okkur. Við eigum að vera fjár­hirðar jarðarinnar, við eigum að hugsa um náttúrna, vera í samhljómi með nátt­úrunni og búa í minni samfélögum,“ segir Þór og bætir svo við:

„Því inni í þessari neyslu­hyggju ætla allir að verða hamingju­samir þegar og ef. Þegar ég er búinn að klára háskóla­námið, þegar ég er búinn að eignast barn, þegar ég er búinn að kaupa mér hús og þegar ég er búinn að kaupa mér hús, þá ætla ég að kaupa mér stærra hús og hvað þýðir þetta allt? Það þýðir það að það eru allir komnir með sjónvarp inn í sitthvorn klefann og fólk er hætt að borða mat saman. Við verjum megninu af okkar vökutíma glápandi á símann okkar og svo skilur enginn afhverju hann er ekki hamingju­samur.” Þessi neyslu­hyggja er bara að gera út af við okkur, tauga­kerfið okkar bara ræður ekki við þetta, við erum orðin aðskilin frá nátt­úrunni.“Þessi neyslu­hyggja er bara að gera út af við okkur, tauga­kerfið okkar bara ræður ekki við þetta, við erum orðin aðskilin frá nátt­úrunni. Við gerum okkur enga grein fyrir hversu megnuð við erum.“

Viðtalið má sjá í heild sinni á spil­aranum hér fyrir neðan ásamt því að finnast á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt