Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Níðingur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni

Héraðs­dómur Reykjaness dæmdi karlmann í þriggja ára fang­elsi fyr­ir kyn­ferðis­brot gegn stjúp­dótt­ur sinn þann 27. apríl síðastliðinn. Að auki var maðurinn dæmdur til að greiða stúlkunni 2,5 milljónir króna, auk vaxta, í miska­bætur sem og sakar­kostnað uppá rúmlega 1,9 milljónir króna.

Á árunum 2016-2019 þegar stúlkan var ellefu til þrettán ára gömul fór maðurinn tvisvar til þrisvar sinnum í viku inn í herbergið hennar þegar hún svaf. Hann á hafa „staðið yfir rúmi stúlkunnar eða lagst upp í rúm til hennar, og ítrekað káfað á kynfærum, brjóstum og líkama hennar innanklæða og ítrekað fróað sjálfum sér á meðan, sett hönd hennar ítrekað á getnaðarlim sinn og látið hana fróa sér, í eitt skipti látið hana eiga við sig munnmök og í eitt skipti girt niður um hana buxur og nærbuxur,“ eins og segir í ákæru.

Barnahús tók skýrslu af stúlkunni og þar lýsir hún brotum stjúpföður síns og hvernig hann hafi reglulega komið inn í herbergi sitt um nætur og brotið á sér. Í máli hennar kom sérstak­lega fram að stjúpfaðirinn hefði iðulega þvotta­poka með sér þegar brotin áttu sér stað.

Varla vitað af tilhneigingu stjúpföður síns

Maðurinn lýsti yfir sakleysi sínu og sagðist alltaf kíkja reglulega inn í herbergi stúlkunnar til að gá hvort að hún væri sofnuð enda væri hún ein í herbergi og vildi sofa með lokaðar dyr. Þá setti hann stundum síma hennar í hleðslu þegar hún væri sofnuð ef hann tæki eftir því að það hefði gleymst auk þess sem hann vekti stúlkuna yfirleitt á morgnanna.

Í vitnis­burði móður stúlkunnar kom fram að þegar hún og hinn ákærði stunduðu kynlíf þá fengi hann yfirleitt sáðlát í þvotta­poka eða þvotta­stykki eða þá að hann fengi sáðlát á maga konunnar og þrifi síðan sæðið með þvotta­pokanum/stykkinu.

Í dómi kem­ur fram að framb­urður vitna og sál­fræðinga styrki frá­sögn stúlk­unn­ar og dóm­ur­inn telji hafið yfir skyn­sam­leg­an vafa að maður­inn hafi gerst sek­ur um þá hátt­semi sem hon­um er gef­in að sök í ákæru. Þannig hafi stúlkan varla vitað af tilhneigingu stjúpföður síns til að nota þvotta­poka með þeim hætti sem áður hefur verið lýst.

Við ákvörðun refs­ing­ar var til þess litið að brot manns­ins beind­ust gegn stjúp­dótt­ur hans og eru al­var­leg en með þeim brást hann trúnaðar­skyld­um sín­um gagn­vart henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá