Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Jakob valdi tónlistina fram yfir nautgripina: „Horfi nú á landbúnað og andbúnað hlið við hlið“

Stuð­maðurinn orðfimi, Jakob Frímann Magnússon fagnar í dag 69 ára afmæli sínu. Jakob Frímann, sem nú starfar sem þingmaður Flokks fólksins, deilir deginum með konu sinni, Birnu Rún Gísla­dóttur sem er 49 ára í dag.

Afmælis­barn dagsins þarf vart að kynna en hann er einn af stofn­endum Stuðmanna en einnig hefur hann gert garðinn frægan sem Jack Magnet. Þá var hann á tímabili miðborgar­stjóri Reykja­víkur en hefur nú söðlað um og er hann nú kominn á þing fyrir Flokk fólksins.

Mannlíf heyrði í Jakobi Frímanni og spurði hann út í afmælis­daginn. Eins og fyrri daginn vafðist Jakobi ekki tunga um tönn heldur lét hann gamminn geysa og gladdi þannig blaða­manninn mikið því fátt er bagalegra en viðmælandi sem ekkert segir.

„Afmælis­fagnaðurinn hófst klukkan 8 í morgun við morgun­verðar­borðið með fjöl­skyldunni. Dásamlegt stund áður en börnin fóru í skólann. Svo gengum við til okkar starfa, hjónin en við deilum einmitt deginum, ég og konan mín. Við hittumst einmitt á þessum drottins degi árið 2001. Við eigum 21 árs sambands­afmæli í dag og níu ára brúðkaups­afmæli. Við fetuðum saman námsbraut í Háskólanum í Reykjavík 2004 til 2006. Svo eignuðumst við okkar fyrsta barn 2007 og seinna barnið árið 2012. Ári seinna, 2013, gengum við í heillagt hjónaband. Þá fögnuðum við stór­afmælum okkar beggja auk þess að ganga í hjónaband. Það var skrifað í skýjin fjórða maí, 2013 á laugardags­kvöldi og þarna var komin fjögurra manna vísitölu­fjölskylda, sem gaf tilefni til þess að fagna í víðusta samhengi. Þannig að þetta er mikill hátíðisdagur í okkar fjöl­skyldu eins og gefur að skilja. Svo er eldri dóttir okkar, hún Jarún Júlía í sama stjörnu­merki og við en hún verður 15 ára 19. maí. Og það eru ótrúlega margir vinir og kunningjar sem deila með okkur þessu stjörnu­merki, nautinu. ÉG tengi það ekki saman en hugur minn hneigðist ungur til búskapar og ég tók að kynna mér búskapar­hætti, sérstak­lega naut­griparækt, á Hvít­árbakka, á ættar­óðalinu í Borgar­firði. Fór ég síðan að kynna mér búskapar­hætti í Danmörku, Þýska­landi og Skotlandi og ákvað að endingu að gerast ekki nautgripa­bóndi heldur geisladiska­bóndi.“

Aðspurður hvort hann sjái nokkuð eftir þeirri ákvörðun kvaðst hann ekki gera það.
„Nei alls ekki, þó að geisladiska­útgáfa teldist seint ábóta­samur atvinnu­vegur í dag. En ég horfi nú á landbúnað og andbúnað hlið við hlið. Land­búnaðar­störfin einkenndu æsku mína og afmælis­daga en andbúnaðurinn varð þarna ofan á en það er víðtækari búgrein að ýmsu leyti. Þar eru afurðirnar ekki eins áþreifanlegar endilega enda huglægar frekar en hlutlægar. En fyrst og fremst verður þetta afmælis­barn að teljast ákaflega hamingju­samt í lífi og starfi og fagnar þessum degi sem öðrum af heilum hug.“

Blaða­maður Mannlífs spurði Jakob þvínæst hvað sé framundan hjá honum á næstunni.
„Ég var nú með tónleika í Reykholti um helgina, Stuðmenn eru með nokkra tónleika bókaða núna í sumar og Jack Magnet, vinur minn sömuleiðis. Maður þarf að rækta garðinn og treysta samband sitt við tónlistagyðjuna, svo það rofni ekki því hennar föruneyti er afar dýrmætt. Og hefur verið mér ómetanlegt í lífi og starfi. Og nú er ég á leið til Akureyrar að hitta kjósendur mína og styðja við Brynjólf Ingvarsson og aðra fram­bjóðendur í Flokki fólksins í komandi sveita­stjórnar­kosningum.“

Mannlíf óskar Jakobi og frú til hamingju með afmælið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá