Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Hann forðaðist að fara út úr húsi: „Pabbi hefur verið barinn af löggunni áður“

Rapparinn Ezekiel Carl ræddi við Lóu Björk Björns­dóttur í Lestinni á Rás 1 um rasisma á Íslandi. Mikið hefur verið rætt um rasisma á Íslandi upp á síðkastið og tók Júlía Margrét Einars­dóttir, vefstjóri RÚV saman viðtalið við Ezekiel.

Eins og flestum er kunnugt baðst Sigurður Ingi Jóhannsson afsökunar á ummælum sínum um Vigdísi Häsler framkvæmda­stjóra Bænda­samtakanna sem látin voru falla á Búnaðar­þingi. Skömmu síðar var grein um vara­þingmann Pírata, Lenyu Rún Taha Karim, fjarlægð af vef Kjarnans vegna rasískra ummæla sem hrönnuðust upp í kommenta­kerfum.

Í síðustu viku bárust fréttir af sextán ára unglings­pilti sem hafði tvisvar verið handsamaður af lögreglunni sem þá var að leita að tvítugum stroku­fanga með svipaðan húðlit og drengurinn.

Forðaðist að fara út

Ezekiel talar um það að á meðan stroku­fangans var leitað, forðaðist hann að fara út úr húsi. Því hann er af sama kyni og hann og með áþekkt litarhaft.

„Ef maður fór í Bónus var horft extra vel. Ég veit ekki hvort ég flokki það undir rasisma, ég var ekki hand­tekinn. En ég var alveg að forðast það að fara út þegar þetta var í gangi.“

Hann tók líka eftir því í kommenta­kerfum um mál stroku­fangans að fólk lét rasísk ummæli falla og spurði spurninga eins og: er þessi með ríkis­borgararétt? jafnvel þó hann sé íslenskur og fæddur hér á landi eins og Ezekiel.

Hann hefur sjálfur lent í slíkum fordómum. „Þessi strákur er ekki útlend­ingur, hann á íslenska mömmu en það er búist við því að útlendingar séu glæpamenn eða komi til að stunda glæpa­starfsemi. Mér finnst sérstak­lega að eldra fólk haldi að allir útlendingar séu einhverjir glæpamenn.“

Faðir hans keyrður í gólfið

Ezekiel rifjar upp álíka reynslu en hann segir frá því þegar hann var að horfa á sjón­varpið heima hjá sér í æsku, eftir að faðir hans hafði skammað drengina sína tvo fyrir að fikta við að reykja í herberginu sínu, þegar lögreglan réðst inn vegna meints heimilis­ofbeldis. Faðir hans var saklaus keyrður í gólfið en svo fannst enginn þolandi enda ekkert ofbeldi í gangi.

„Þeir banka og segjast ætla að brjóta hurðina upp,,“ segir Ezekiel. Faðir hans opnar hurðina en er þá strax keyrður í gólfið og færður í handjárn. Strákarnir fylgdust gáttaðir með.

Lögreglan kemur inn og skoðar sig um en finna enga konu og engin ummerki um heimilis­ofbeldi. Þá kemur í ljós að nágranni hafði hringt og tilkynnt hávaða, „og segir: það er einhver útlend­ingur þarna að berja konuna sína. Það er það sem ég er að fjalla um í byrjun lagsins.“

Í seinna versi lagsins fjallar Ezekiel um hvernig hann lögregla hefur stöðvað hann á fullorðins­árum fyrir engar sakir og hann látinn skila þvagprófi, á því sem hann segir engum forsendum. „Pabbi hefur lent í fullt af öðru með lögregluna, verið barinn af löggunni áður,“ segir hann.

„Maður er bara: ég fæddist hérna, ég á íslenska mömmu og íslenska fjöl­skyldu. Hin fjöl­skyldan mín er nígerísk en ég er alveg jafn­íslenskur og allir aðrir sem eru hérna,“ segir hann.

HÉR má lesa og hlusta á viðtalið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá