Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lækjartorg tekur stakkaskiptum: „Tákn fyrir nýja tíma – almannarýmið eitt mikilvægasta verkefnið“

Tillaga vinningshafa. Skjáskot/mynd af vef Reykjavíkurborgar.
Tillaga vinn­ings­hafa. Skjáskot/mynd af vef Reykja­vík­ur­borgar.

„Mér fannst svo snjallt að stilla þessu upp sem púsli en þetta púsl hefur einfald­lega vantað. Þarna kemur svo margt saman. Mér finnst þessi magnaða umbreyting borgarinnar vera líka tákn fyrir nýja tíma,“ sagði Dagur B. Eggertsson á fundi í Ráðhúsi Reykja­víkur í morgun þegar Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra veitti verðlauna­höfum viðurkenningar ásamt Degi, borgar­stjóra. Þetta kemur fram á vef Reykja­víkurborgar.

Lækjar­torg mun taka stakka­skiptum á næstu misserum samkvæmt tillög­unni Borgara­lind eftir Sp(r)int Studio og Karrens en Brands, sem bar sigur úr býtum í hönnunar­samkeppni um Lækjar­torg og aðliggjandi gatnarými.

Samkeppnis­svæðið náði yfir Lækjar­torg, Lækjar­götu frá Hverfis­götu að Austur­stræti, Austur­stræti frá Lækjar­götu að Ingólfs­torgi og Banka­stræti frá Þing­holtsstræti að Austur­stræti.

Reykja­víkurborg og Félag íslenskra landslags­arkitekta (FÍLA) efndu til hönnunar­samkeppninnar árið 2021 og var auglýst eftir tillögum sem hefðu rými fyrir fólk að leiðar­ljósi í hönnun. Samkeppnin var hönnunar­samkeppni með forvali og var í tveimur þrepum. Markmið samkeppninnar var að fá fram frjóar og áhuga­verðar hugmyndir um hönnun Lækjar­torgs og nærliggjandi gatna. Ellefu umsóknir bárust í forvali og voru þrjár tillögur valdar til þátttöku á síðara þrepi.

Mikilvægt að rækta almannarýmið

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra ávarpaði fundinn eftir kynninguna og sagði að; „Almanna­rýmið væri eitt mikil­vægasta verkefnið sem við eigum saman. Þar komum við öll saman alveg óháð því hver við erum og hvaðan við erum að koma. Þetta er rými þar sem við mætumst og kynnumst öðru fólki. Almanna­rýmið hefur átt undir högg að sækja í borgum víða um heim. Þess vegna er svo mikilvægt að við ræktum almanna­rýmið og tryggjum nánd þess við stofnanir samfélagsins,“ sagði hún.

„Ég stend hér sem nágranni Lækjar­torgs,“ sagði hún. „Ég hlakka mjög til að sjá þróun þessarar hugmyndar þar sem unnið er með að umhverfið sé lífvænlegt, að það sé mannlegt og þarna geti fólki liðið vel en þarna geti fólk líka komið saman og sagt sína skoðun,“ sagði hún.

Djörf, hlýleg og rómantísk tillaga

Það var einróma álit dómnefndar að tillagan „uppfylli flestar áherslur samkeppnis­lýsingarinnar og gefi torginu og aðliggjandi gatna­rýmum nýja vídd og nýtt og spennandi hlutverk í hjarta borgarinnar“.

Tillagan þykir vera allt í senn djörf, hlýleg og rómantísk. „Hún ber með sér hugmynda­auðgi, sterka fagur­fræðilega sýn, og næmni fyrir umhverfi og staðar­anda og lyftir Lækjar­torgi upp á spennandi og áhuga­verðan hátt. Tillagan nær að flétta saman nútímann og söguna samhliða því að styrkja hlutverk Lækjar­torgs sem vettvang fjöl­breyttra athafna og mannlífs. Sveigjanleiki, leikgleði og vel útfærð rými á torginu fela í sér ótal möguleika og tækifæri fyrir marg­víslega viðburða á á öllum árstímum,“ segir í umsögn dómnefndar.

Tengir saman Stjórnarráðið, Lækjartorg og Bankastræti

Það var vel við hæfi að úrslitin væru kynnt á samgöngu­fundi Reykja­víkurborgar með yfir­skriftinni Léttum á umferðinni 2022 þar sem Borgarlínustöð verður á Lækjar­torgi og ávarpaði dómnefndin þetta í áliti sínu.

„Heildar­yfirbragð tillög­unnar nær á sann­færandi hátt að tengja saman Stjórnar­ráðið, Lækjar­torg og Banka­stræti sem þjónað er af meginæð Borgar­línu sem kemur til með að liggja eftir Lækjar­götu.“

Þar segir enn fremur að gróðri og dvalar­svæðum sé fléttað þarna saman á áhuga­verðan hátt. Áhersla var lögð í samkeppninni á góðar tengingar og útfærslur sem styrkja samspil Lækjar­torgs við fyrir­hugaða Borgarlínustöð og aðstöðu henni tengdri.

Dómnefnd á seinna þrepi skipuðu:

Björn Axelsson, skipulags­fulltrúi, formaður dómnefndar.

Hjálmar Sveinsson borgar­fulltrúi.

Orri Steinarsson, arkitekt og skipulags­fræðingur.

Hlín Sverris­dóttir, landslags­arkitekt, FÍLA og skipulags­fræðingur SFFÍ.

Heba Hertervig, arkitekt, AÍ.

Verkefnis­stjóri og ritari samkeppninnar var:

Rebekka Guðmunds­dóttir, borgar­hönnuður.

Trúnaðar­maður dómnefndar var Hermann Georg Gunnlaugsson, landslags­arkitekt, FÍLA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá