Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Starfsmaður Eflingar sakar stjórnina um lygar: „Vanvirðing við okkur starfsfólkið er fordæmalaus“

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir.

Vala Arna­dóttir er starfs­maður Eflingar en hún hefur verið í veikinda­leyfi síðan hún lenti í slysi síðastliðið sumar. Hún fékk uppsagnar­bréf frá lögmanni Eflingar eins og aðrir starfs­menn, klukkan tvö um nótt. Hún skrifaði færslu um málið á Facebook.

Í færslunni sakar hún Sólveigu Örnu og stjórn Eflingar um að leggja niður félags- og þróunar­svið sem hún starfaði hjá, til þess að búa til stöðu fyrir Viðar Þorsteinsson. Það hafi verið gert með því að stofna skrif­stofu félaga­mála sem þjónaði sama tilgangi og sviðið sem lagt var niður. Þá segir hún Sólveigu Önnu ekki hafa staðið með þolendum eineltis af hendi Viðars, heldur sagt upp þeim sviðs­stjóra sem þau töldu að ætti upptökin af kvörtununum.

Hér má sjá færsluna í heild sinni:

„Ég er starfs­maður Eflingar í veikinda­leyfi eftir að ég lenti í slysi síðasta sumar.

Í nótt kl 2 fékk ég uppsagnar­bréf frá lögmanni úti í bæ, en ég er í veikinda­leyfi og var búin að tilkynna að ég kæmi ekki aftur til starfa.

Mánuði eftir slysið mitt var mér tilkynnt að félags- og þróunar­svið sem ég starfaði hjá sem teymis­stjóri félaga­mála hefði verið lagt niður „vegna skipulags­breytinga” og mér var boðið starf á öðru sviði, sem ég afþakkaði.

Stuttu eftir að sviðið sem ég starfaði hjá var lagt niður var “skrif­stofa félaga­mála” stofnuð og Viðar Þorsteinsson settur þar yfir, skrif­stofa hans og starfs­fólk þess þjónaði sama tilgangi og „félags- og þróunar­svið” gerði áður svo „skipulags­breytingin” var nánast engin, nema til þess fallin að losa sig við sumt starfs­fólk og setja Viðar yfir einingu sem hann myndi geta sætt sig við eftir að fjölda kvartanna í hans garð gerðu honum erfitt um vik að starfa áfram sem framkvæmda­stjóri.Ég studdi þær konur sem kvörtuðu undan framkomu og eineltis­tilburðum Viðars og ég bað Sólveigu Önnu um að standa með þeim líka fyrir ári síðan, en þá hafði hún í stað þess að taka kvartanir þeirra alvarlega sagt upp þeim sviðs­stjóra „sem þau töldu að ætti upptök af þeim kvörtunum.“

Ég reyndi að biðla til hennar að standa með þeim konum sem alltaf hefðu staðið með henni, konur sem komu til starfa hjá Eflingu til að styðja við hennar baráttu og ég trúði því ekki að hún myndi bregðast þeim, en allt kom fyrir ekki.

Ekki var þarna um einhverja „starfs­menn fyrri stjórnar” að ræða eins og þau Viðar hafa viljað halda fram, þau réðu sjálf þessar konur, ekki var um eitthvað „plott fyrrum trúnaðar­manns Eflingar” að ræða eins og þau hafa einnig haldið fram og ekki var um að ræða einhverja „leifar af gamalli vinnustaða­menningu Eflingar”.

Þetta er allt einfald­lega lygi og hefur það margoft komið í ljós bæði í viðtölum við starfs­menn og í úttekt sálfræði­stofu á vinnustaða­menningunni.

Ég hef vegna minna veikinda og vegna fjölskyldu­tengsla við Sólveigu Önnu ekki viljað tjá mig, enda er ekkert upp úr því að hafa nema leiðindi fyrir mig og mína.En nú er nóg komið, ég starfaði fyrir Eflingu í þrjú ár fyrir slysið og leiddi með þeim baráttuna fyrir betri kjörum Eflingar­félaga, ég heimsótti hundruðir vinnu­staða, var m.a. með umsjón yfir trúnaðar­manna­kosningum og verkfalls­aðgerðum og kynntist fjölda félaga vel. Félaga sem ég svo mældi með til trúnaðar­starfa hjá Eflingu, bæði í trúnaðarráð og stjórn, margt af þeim gegna þar embætti núna.

Þessir félagar skulda mér ekki neitt, en ég á mjög erfitt með að þau skuli mörg hver trúa því upp á okkur, starfs­menn Eflingar að við höfum á einhvern hátt átt annan þátt í þessarri atburðarrás en að kvarta undan óboðlegri framkomu yfirmanns (framkvæmda­stjóra) og vonað að Sólveig Anna myndi taka kvartanir alvarlega og standa með sínu starfs­fólki sem sannarlega hafði staðið með henni.

Það græðir enginn á þeim farsa sem hófst í lok október í fyrra, ekki starfs­menn og ekki félags­menn Eflingar.

Ef einhver vinnu­staður annar hefði tilkynnt um hópuppsagnir til að svo endurráða starfs­fólk á lægri kjörum þá værum við hjá Eflingu fyrst til að verja þau og þeirra réttindi, ef einhver annar vinnu­staður hefði ráðist á trúnaðar­menn sína og starfs­menn í fjöl­miðlum þá værum fyrst til að fordæma það og taka upp hanskann fyrir það starfs­fólk.

Ég er djúpt vonsvikin með stjórn og trúnaðarráð Eflingar og öll þau sem í blindni trúa eftirá­skýringum sem standast ekki skoðun.

Ég var stolt af því að starfa fyrir Eflingu og trúði því að okkar barátta væri réttlát og árangursrík fyrir félags­menn.

Vanvirðing við okkur starfs­fólkið er fordæma­laus.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá