Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Svavari Pétri komið rækilega á óvart á Rás 2: „Eitthvað rosalegasta eintak sem ég hef meðhöndlað“

Líkt og Mannlíf sagði frá í dag á Svavar Pétur Eysteinsson eða Prins Póló eins og hann er stundum kallaður, afmæli í dag. Sagði hann blaða­manni Mannlífs að frúin hans væri að fara með hann í óvissu­ferð í tilefni dagsins. Svo virðist sem partur af þeirri ferð hafi verið að fara í óvænt viðtal á Rás 2.

Andri Freyr Viðarsson og Hrafnhildur Halldórs­dóttir, þátta­stjórnendur Síðdegis­útvarpsins á Rás tvö voru að fjalla um afmælis­barnið og höfðu nýlokið að spila lagið Niðrá strönd með Prins Póló er Svavar var leiddur inn í stúdíóið af vini sínum, Benna Hemm Hemm og virtist hinn hissasti. „Maður er bara leiddur hingað inn í musterið, alveg fyrirvara­laust!“ Sagði Svavar Pétur stein­hissa og Andri svaraði: „Fáðu þér sæti, sæti.“

Eftir að þátta­stjórnendurnir höfðu óskað honum til hamingju með afmælið, sagðist Andri hafa búist við honum með kórónu á hausnum en Prins Póló er þekktur fyrir að ganga með kórónu: „En svo kemurðu bara með Elvis Costello hatt!“ sagði Andri stríðinn. „Já ég kom bara með djasshatt sem ég keypti hjá Guðsteini um daginn,“ svaraði Svavar. „Hann fer þér vel,“ bætti Hrafnhildur með. Aðspurður hvort þetta væri nýtt aldurs­merki svaraði Svavar að „þegar það er farið að þynnast þarna uppi þarf maður að hafa eitthvað til að hlýja sér.“ „Segðu Bubba Morthens það,“ skaut þá Andri Freyr inn í.

Með Svavar Pétri í för var tónlistar­maðurinn Benni Hemm Hemm sem hefur spilað með Prins Póló í fjöldi ára en Benni var með leyni­legan poka í hönd. „Hvað, ertu með köku í pokanum,“ spurði Andri Freyr forvitinn. „Nei, mig langar að plögga hérna eina plötu. Er það í lagi?“ spurði Benni vin sinn Svavar. „Jú, þú átt allan tímann minn,“ svaraði Svavar grunlaus um það sem var í vændum. „Eitt af því sem við Svavar höfum gert var það að við vorum einu sinni í íslensk-kanadískri hljómsveit, Embassy Lights. Og við vorum á Messenger fyrir dálitlu síðan og vorum að ræða að Svavar ætti bráðum afmæli. Og við gerðum saman eitt eintak af Coverlagaplötu með lögum eftir Prinsinn,“ sagði Benni og dróg upp úr pokanum glæsilega plötu og rétti Svavari sem var vægast sagt hissa. „What?!“ heyrðist í afmælis­barninu og hélt hann áfram: „Hérna eru bara lög, eftir Prinsinn sem búið er að þýða yfir á engil­saxnesku og hljóðrita á glæran vínil!“ Spennan í rödd Svavars var heyranleg enda stórkostleg afmælis­gjöf. „Þetta er eitthvað rosalegasta eintak sem ég hef meðhöndlað.“

Aðeins er ein plata til, sem Svavar Pétur fékk en hægt er að hlusta á plötuna á Spotify en hún heitir Songs for my Prins og er með The Prins Póló International Appreciation Society

Hér má hlusta á plötuna:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt