Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Björn Steinbekk vill umbun frá ríkinu sem áhrifavaldur: „Finnst ég eiga það skilið“

Áhrifavaldurinn Björn Steinbekk vill fá umbun frá íslenska ríkinu fyrir alla þá land­kynningu sem hann hefur staðið fyrir undan­farin ár. Hið sama vill hann að aðrir áhrifa­valdar hljóti sem hafa tekið þátt í að markaðs­setja Ísland.

Björn vill að áhrifa­valdar fái í raun svipaða ívilnum og til að mynda kvikmynda­iðnaðurinn hefur hlotið hér á landi. Skoðun sína setti hann fram í pistli þar sem hann fjallar um mikilvægi áhrifa­valdanna.

„Áhrifa­valdar eru jafn misjafnir og þeir eru margir en það er óumdeilt að þeir hafa, flestir, áhrif. Þetta er oft fólk sem skrapar saman aur til að ferðast. Persónu­lega hef ég reynslu af því að kynna landið mitt og finnast ég eiga skilið einhverja umbun fyrir. Dróna­skapur minn við eldgosið í Geldinga­dölum barst fólki um allan heim og fór ég í fjöldann allan af viðtölum við erlenda fjölmiðla og miðlaði efni mínu, oft án endur­gjalds til stórra miðla um allan heim,“ segir Björn og ítrekar að fyrir vinnu sína hafi hann fengið lítið fyrir.

„Áætlað virði umfjöllunar um gosið erlendis er meira en 50 milljarðar. Samt er það svo að ég hef aldrei heyrt frá Visit Reykjanes sem notið hefur þess að hafa eldgos á svæðinu, fyrr en í vikunni þar sem ég er beðinn um að útbúa myndefni, frítt, fyrir þau að birta, til að fagna því að eitt ár er liðið frá því að gosið hófst.“

Björn hefur viðrað hugmyndina um ívilnanir fyrir áhrifa­valda við Lilju Alfreðs­dóttur viðskipta­ráðherra. Hann vill að Ísland verði fyrsta landið í heiminum til að umbuna áhrifa­völdum með ríkis­styrkjum.

„Ég tók þetta upp við hana Lilju vinkonu mína um daginn og henni leist bara mjög vel á þetta. Við eigum að vera fyrsta landið í heiminum sem segir bara: Þið eruð bara velkomin. Við viljum vinna með þessu fólki. Þetta fólk hefur vægi. Með þessu er hægt að stórefla umfjöllun og taka í leiðinni í burtu hluta af þessu óþolandi betli andskotans áhrifavaldana sem eru að selja íslenska drauminn,“ segir Björn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá