Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

„Gúrkusali“ ræðir við Guðna: Jarðaberjaræktun stopp eftir að húsin fuku í fárviðri

Gunnlaugur Karlsson, sem sjálfur hefur tekið sér titilinn „gúrkusali“, en ber opinber­lega titil framkvæmdar­stjóra Sölu­félags Garðyrkju­manna er gestur Guðna Ágústs­sonar að þessu sinni.

Gunnlaugur var strax sem barn farinn að stunda garðyrkju ásamt móður sinni og fjöl­skyldu á Flúðum. Hann nam svo Iðnrekstrar­fræði en lauk svo í fram­haldinu alþjóða markaðs­fræði. Þegar hann tók við starfi sínu hafði hann fyrir­hugað að stoppa þar aðeins í stuttan tíma en hefur nú í ár starfað hjá fyrir­tækinu í tuttugu ár.

Í viðtali sínu við Guðna vekur hann athygli á þeim sorglegu atburðum sem urðu þegar húsa­kostur einna fremstu jarða­berja­ræktenda í Norður-Evrópu hreinlega gaf sig í ofsaveðri nú í vetur. Um ræðir Jarða­berjaland í Reykholti í Biskups­tungum sem rekið er af Hólmfríði Geirs­dóttur og eigin­manni hennar Steinari Jensen.

Segja má að þau hafi verið nánast búin að fullkomna ræktunina þegar tjónið varð og eftir bakþanka hafa þau þó tekið ákvörðun um að halda rekstrinum áfram en þau ljón eru í veginum að ekki hefur fengist aðili til að steypa undir­stöðurnar að nýjum húsakosti með þeim afleiðingum að uppbyggingin hefur stöðvast með öllu.

Segja má að Íslenskir grænmetis­bændur hafi verið frumkvöðlar á matvæla­sviði árið 2002 þegar þeir tóku í notkun vöru­merkið „Þú veist hvaðan það kemur“. Á þeim tíma voru áherslurnar erlendis mestmegnis á verð­lagningu, og í einhverjum tilfellum vörumerki einstakra fram­leiðenda, en í dag skiptir rekjanleiki vörunnar neytendur gríðar­legu máli sem endur­speglast í breyttri fram­setningu fram­leiðenda.

Gunnlaugur tekur undir það með Guðna að þessi hugsun og nálgun á markaðs­setningu eigi við í allri íslenskri matvæla­framleiðslu. Neytendur dagsins í dag gera kröfu á að geta rakið matvæli sín bæði með merkingum á umbúðum og jafnvel sótt sér frekari upplýsingar með strika­merkjum og QR kóða auk þess sem kolefnis­fótspor vörunnar skiptir neytendur miklu máli.

Í tengslum við Sölufélag Garðyrkju­manna hefur verið stofnað fyrir­tækið Matar­tíminn sem sérhæfir sig í því að dreifa hollum gæða mat til íslenskra grunn­skóla. Þarna er ekki eingöngu sýslað með grænmeti heldur bera þau á borð kjöt og fisk að auki og er allt hráefnið íslenskt.

Gunnlaugur telur að það séu gríðarleg sóknar­færi í aukinni matvæla­framleiðslu á Íslandi þar sem við búum yfir bæði þekkingu og þeim auðlindum sem þarf til að vinna gæða afurðir en í tilfelli garðyrkju­stöðvanna þurfi að skoða reglu­gerðir á borð við flutnings­gjöld á rafmagni þar sem þær kveða á um það í dag að tekið sé mið af fjölda ábúenda svæðisins þegar kemur að ákvörðun gjaldtöku og dæmi séu þess að þar sem garðyrkjustöð og byggðar­kjarni nýta sama rafstreng greiði stöðin hærra gjald af þessum sökum.

Matvæla­framleiðsla okkar hérlendis tryggir okkur bæði fæðu­öryggi og jafnframt dregur úr þörf á að afla gjald­eyris til að kaupa aðflutt matvæli og aðföng.

Það eru mikil sóknar­færi í ræktun á t.d. korni en Gunnlaugur gerði sér það að leik að reikna andvirði þess strand­reyrs sem Flúða­sveppir nota við sína ræktun byggt á því verði sem reyrinn fyrir utan braggann fræga í Öskju­hlíðinni í Reykjavík fékkst á og komst að þeirri niður­stöðu að þar lægi andvirði 20 milljarða. Hvort það sé eiginlegt gangverð á stráum skal ósagt látið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt