Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Íslenskt heilsufyrirtæki þróar byltingarkennda tækni fyrir sykursjúka

Frá vinstri: Rafn Benediktsson, yfirlæknir göngudeildar innkirtla- og efnasjúkdóma, Ægir Þór Steinarsson, vörustjóri RetinaRisk, Haraldur Orri Hauksson, tölvunarfræðingur HUT, Stefán Einarsson, tæknistjóri RetinaRisk, Kristján Sturlaugsson, verkefnastjóri HUT, og Birkir Friðfinnsson, þjónustustjóri skimana, göngudeild innkirtla- og efnasjúkdóma.
Frá vinstri: Rafn Bene­dikts­son, yfir­læknir göngu­deildar inn­kirtla- og efna­sjúk­dóma, Ægir Þór Stein­ars­son, vöru­stjóri Ret­inaRisk, Haraldur Orri Hauksson, tölv­un­ar­fræð­ingur HUT, Stefán Ein­ars­son, tækni­stjóri Ret­inaRisk, Kristján Stur­laugs­son, verk­efna­stjóri HUT, og Birkir Frið­finns­son, þjón­ustu­stjóri skim­ana, göngu­deild inn­kirtla- og efna­sjúk­dóma. Mynd: Þorkell Þorkelsson / Landspítali háskólasjúkrahú

Íslenska heilsu­fyrirtækið RetinaRisk hefur þróað byltingar­kennda tækni vegna augn­skimana fyrir skjólstæðinga Land­spítalans með sykursýki. Tæknin byggist á rann­sóknum vísinda­manna við HÍ og samstarfs­fólks. Tæknin metur nákvæmlega líkurnar á sjón­skerðandi augnbotna­sjúkdómum hjá fólki með sykursýki og tryggir að fólk með aukna áhættu fái meiri eftir­fylgni til þess að koma megi í veg fyrir sjón­skerðingu og jafnvel blindu.

Innleiðingin er afrakstur af samvinnu RetinaRisk, göngu­deildar innkirtla- og efnaskipta­sjúkdóma, göngu­deildar augn­lækninga og heil­brigðis- og upplýsinga­tæknisviðs Land­spítalans (HUT) í gegnum Stafrænt heilbrigðis­stefnumót sem hófst sumarið 2020. Það að taka í notkun nýskapandi lausnir í heilbrigðis­þjónustu hefur mikil áhrif á bæði líf og heilsu fólks og rekstrar­kostnað stofnana og eru báðir aðilar mjög ánægðir með útkomuna úr heilbrigðis­stefnu­mótinu.

RetinaRisk stýrir þannig fjölda augn­skimana fyrir hvern skjólstæðing spítalans sem er með sykursýki, byggt á einstaklings­bundinni þörf en ekki hópnálgun eins og verið hefur fram að þessu. Þessi nálgun tryggir að öll fái þá heilbrigðis­þjónustu sem þau þurfa, byggt á nákvæmu áhættu­mati og einstaklings­miðaðri þörf hvers og eins. Samstarf Land­spítala og RetinaRisk hefur vakið mikla athygli og hafa fjölmargir aðilar erlendis sýnt þessari lausn mikinn áhuga og stendur innleiðing yfir í nokkrum löndum.

RetinaRisk er afrakstur umfangs­mikils vísinda­starfs núverandi og fyrrverand starfs­fólks Land­spítalans og Háskóla Íslands. Fyrir­tækið stofnuðu Einar Stef­ánsson og Thor Aspelund, prófessorar við Háskóla Íslands, ásamt Örnu Guðmunds­dóttur innkirtla­lækni og er áhættu­reiknirinn sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum. Fyrir­tækið hefur m.a. samið við bandarísku sykursýki­samtökin um að gera reikninn aðgengi­legan almenningi í Banda­ríkjunum.

Land­spítalinn og RetinaRisk hafa starfað náið saman undan­farin tvö ár við innleiðingu RetinaRisk hugbúnaðarins í tölvu­kerfi Land­spítala en einnig lagt grunn að vísinda­samstarfi sem mun viðhalda þeirri leiðandi stöðu sem íslenskt hugvit hefur í þróun nýrra aðferða við augn­skimun fólks með sykursýki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá