Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Þetta er fólkið sem lifði og dó í árás Rússa á blokkina: „Ég get ekki lifað án þeirra“

Rústir blokkarinnar
Rústir blokk­ar­innar Mynd: Clodagh Kilcoyne / Reuters / Scanpix / LETA

Þann 14 janúar sprengdi rússneski herinn níu hæða íbúða­blokk í úkraínsku borginni Dnipro þar sem minnst 45 manns lét lífið, þar af sex börn. Hér eru sögur nokkurra þeirra, en þær birtust meðal annars á rússneska „útlaga­miðlinum“ Meduza.

Anastasia Shvets

Eftir hina mannskæðu loft­árásina í Dnipro, birtist ljósmynd af Anastasiu Shvets víða á internetinu og í fjöl­miðlum. Ljós­myndin er sláandi en hún sýnir Anastasiu sitja í rústunum við hlið baðkars og part úr vegg sem áður hafði verið flísa­lagður. Þegar flug­skeytið skall á blokkina var Anastasia heima með foreldrum sínum. Á meðan foreldrarnir kveiktu á kertum til heiðurs úkraínska hersins, var Anastasia að hvíla sig fyrir nætur­vaktina í herbergi sínu. Seinna sagði hún að hurðin hafi skýlt henni í rúminu í sprengingunni og þess vegna hafi hún sloppið „næstum því í heilu lagi.“ Foreldrar hennar létust í árásinni.

Sterk en erfið ljós­mynd

Næsta dag skrifaði hún færslu á Instagram, en hún vissi á þeim tíma­punkti ekki hvort foreldrar hennar hefðu lifað af eða ekki. Færslan fjallaði um það er kærasti hennar dó á stríðs­vellinum nokkrum mánuðum áður. „Mér leið eins og hann myndi vernda mig,“ skrifaði hún. Sagði hún einnig að það eina sem hún hefði hugsað þegar hún sat í rústum heimilis síns, hafi verið að hún vonaði að foreldrar henni fyndust. „Ég varð fræg [vegna ljós­myndarinnar], þó ég hafi ekki vitað af því; næstum allir samfélags­miðlarnir voru að birta myndina af mér. Og ég vil bara fá foreldra mína. Ég þjáist. Er ég í raun og veru til?“

Mykhailo Korenovsky

Mykhailo Korenovsky er einn af þeim sem lést í árásinni en hann var boxþjálfari héraðs­liðs Dnipropetrovsk. Samkvæmt eiginkonu hans fór hún út að labba með dætrum þeirra hjóna daginn sem árásin var gerð, en Mykhailo ætlaði að koma aðeins seinna. Fyrst ætlaði hann að fá sér að borða en hann hafði nýlega lokið boxkeppni. Hann var enn heima þegar árásin var gerð.

Ljósmynd af ljósgulu eldhúsi fjöl­skyldunnar birtist í fjöldi miðla eftir árásina.

Önnur sterk ljós­mynd

Kateryna Zelenska

Hin 27 ára Kateryna Zelenska bjó í Dnipro-blokkinni ásamt eigin­manni sínum og eins árs gömlum syni þeirra. Vegna þess að hún er heyrna­skert, heyrði hún ekki þegar viðbragðs­aðilar lýstu yfir algjörri þögn svo hægt væri að heyra í eftir­lifendum árásarinnar. Að lokum heyrðu þeir grátur hennar en henni var þó ekki bjargað úr rústunum fyrr en morguninn eftir árásina. Hún var því um 20 klukku­stundir föst undir leifum íbúðarinnar. Þegar hún loks komst á spítala mældist líkams­hiti Katerynu ekki nema 31 gráður.

Katerynu bjargað úr rúst­unum

Eigin­maður Katerynu og sonur þeirra, eru ófundnir. Samkvæmt frænda hennar, Nikolai Ivashin, létust þeir báðir að öllum líkindum. „Ég er bygginga­verkamaður og ég og mínir menn erum að vinna í rústunum núna; við erum í stöðugum samskiptum. Og ég veit að [björgunar­menn] sáu barn. Strákurinn var undir rústunum og lifði ekki af … hvað varðar eiginmann Katerynu, þá er engin von heldur … Ég var á staðnum þegar árásin var gerð og sá allt sem gerðist … Tveir dagar hafa liðið. Allir sem var hægt að finna á lífi eru nú þegar fundnir,“ sagði hann í samtali við blaðamenn 16. janúar.

Figurny fjölskyldan

Daginn fyrir árásina ferðuðust hjónin Marina Figurna og Andriy Osynskyi frá Odesa til Dnipro til að heimsækja ættingja sem þau höfðu ekki séð frá því að stríðið hófst en frá þessu sagði vinkona Marinu, Arina Medvedeva á Instagram. Marina, Andriy og fimm aðrir fjölskyldu­meðlimir voru í íbúð í blokkinni þegar flug­skeytið hæfði blokkina. Aðeins einum var bjargað úr rústunum.

Hjónin.

„Dagurinn í dag er hræðilegasti dagur ævi minnar. Fjöl­skylda mín, Anna, mín elskulega systir sem er bara 15 ára gömul; Marina og Andriy, sem komu frá Odesa og frænka mín Yana og frændi minn Sasha, komu öll hingað til að heimsækja ömmu okkar og afa en flug­skeyti hæfði bygginguna. Við höfum engar upplýsingar, þau voru sjö and þeir hafa bara fundið ömmu okkar sem er á gjörgæslu. Afi okkar dó. Ég þjáist mjög. Ég get ekki lifað án þeirra,“ skrifaði Ksenia, ættingi sem ekki var í byggingunni er árásin var gerð, á Instagram.

Hægt er að lesa um fleiri fórnar­lömb árásarinnar í Dnipro á Meduza.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs