Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ómálefnaleg mismunun: „Ég fæ ekki betur séð en verið sé að misnota íslenskuna“

Eiríkur Rögnvaldsson
Eiríkur Rögn­valds­son

„Á seinustu árum hafa iðulega birst fréttir um að erlent starfs­fólk í ýmsum þjónustu­störfum verði fyrir aðkasti vegna skorts á íslensku­kunnáttu. Það er vitanlega óvið­un­andi – þótt íslensku­kunnátta sé mikilvæg má barátta fyrir íslensk­unni aldrei snúast upp í þjóðrembu og íslenskuna má aldrei nota til þess að útiloka fólk á ómálefnalegan hátt eða gera með einhverju móti lítið úr því. Vissulega getur í sumum til­vik­um verið málefnalegt að gera kröfur um íslensku­kunn­áttu „til að tryggja skilvirk sam­skipti við viðskipta­vini, þar á meðal í störf­um í þjón­ustu­geiranum“ eins og segir í nýlegum úrskurði Kæru­nefndar jafnréttis­mála.“

Þetta skrif­ar Ei­rík­ur Rögn­valds­son, fyrr­ver­andi pró­fess­or í ís­lenskri mál­fræði við Há­skóla Íslands, á síðu sinni. Þar vís­ar hann til aug­lýs­ing­ar á fimmtán störf­um á skrif­stofu Efl­ing­ar í síðustu viku, þar sem ís­lensku­kunn­átta er gerð að kröfu í öll­um til­fell­um.

„Til framkvæmda­stjóra og verkefna­stjóra upplýsinga­tæknimála er ekki gerð nein krafa um tungu­mála­kunnáttu en í öllum öðrum störfum er gerð krafa um íslensku- og ensku­kunnáttu, ýmist mjög góða (2), góða (9) eða án nánari skilgreiningar (2). Þetta er athyglis­vert, í ljósi þess að rúmur helmingur félaga í Eflingu er af erlendum uppruna og nærri ⅔ þeirra sem leituðu til Kjaramála­sviðs félagsins á síðasta fjórðungi ársins 2020 voru af erlendum uppruna. En engin krafa er gerð um t.d. pólsku­kunnáttu þrátt fyrir hátt hlutfall Pólverja meðal Eflingar­félaga.“

Í nýrri bók sinni „Alls konar íslenska“ eru 25 heilræði um íslenska málrækt. Meðal þeirra er: „Íslensk málrækt felst í því að láta skort á íslensku­kunnáttu aldrei bitna á fólki eða nota hann til að mismuna því á ómálefnalegan hátt.“ Nú legg ég áherslu á að mér finnst mikilvægt að fólk sem býr hér og starfar læri íslensku sem best. Það er mikilvægt bæði fyrir fólkið sjálft og fyrir stöðu íslensk­unnar. En það tekur tíma að læra íslensku, hvað þá að ná fullu valdi á henni, og mikilvægt að gefa fólki góðan tíma til þess en nota ekki ófull­komna íslensku­kunnáttu til að halda því niðri.

Í ljósi þess sem áður segir mætti ætla að á skrif­stofu Eflingar væri full þörf fyrir starfs­fólk sem hefur vald á ýmsum tungu­málum öðrum en íslensku og ensku og fram hefur komið í fréttum að á skrif­stofunni hefur unnið fólk sem ekki hefur gott vald á íslensku en talar hins vegar ýmis önnur tungumál sem nýtast í starfinu. Með auglýsingu af þessu tagi er verið að útiloka það fólk, þrátt fyrir að starfs­fólk sem sagt var upp hafi verið hvatt til þess að sækja um að nýju. Ég fæ ekki betur séð en þarna sé verið að misnota íslenskuna. Það er ekki gott.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá