Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kim segir frá því hvað fékk hana til að yfirgefa Samönthu: „Í staðinn fyrir ólögráða strák“

Kim Cattrall
Kim Cattrall

Leikkonan Kim Cattrall, sem er líklega hvað þekktust fyrir túlkun sína á Samönthu Jones í Sex and the City þáttunum og kvik­myndunum, hefur staðfest það að hún komi aldrei til með að bregða sér í hlut­verkið aftur.

Meðleikkonur Cattrall, þær Sarah Jessica Parker, Kristin Davis og Cynthia Nixon hafa undan­farið birst á skjánum í endur­vakningu þáttanna, And Just Like That. Cattrall hafði áður hafnað því að taka þátt í þriðju kvik­myndinni um vinkonurnar fjórar frá New York og fyrir gerð þáttanna var ekki óskað eftir þátttöku hennar.

„Það er mikil viska fólgin í því að vita hvenær er komið nóg,“ segir Cattrall um ákvörðun sína um að taka ekki þátt í þriðju kvik­myndinni árið 2017, í nýju viðtali við Variety. „Ég vildi heldur ekki skemma það sem þátturinn var fyrir mér. Leiðin áfram virtist skýr.“

Á sínum tíma sagði höfundur þáttanna, Darren Star, að væri „ómögulegt að ímynda sér þáttinn án hennar.“ Það virtust því eiga að vera endalok Sex and the City, eftir ótal þætti og tvær kvik­myndir.

Meðleikkonur hennar þrjár tóku þó af skarið með höfundum og sköpuðu nýja þáttaröð af beðmálunum, eins konar endur­vakningu árum síðar, þar sem Samantha Jones er ekki með. Hún er vissulega til, en birtist ekki á skjánum. Þættirnir And Just Like That voru frum­sýndir við mikla kátínu aðdáenda í desember síðastliðnum.

Cattrall segist hafa komist að tilvist þáttanna á sama hátt og allir aðrir, með því að lesa um þá á frétta- og samfélags­miðlum. Cattrall var ekki látin vita þar sem hún var aldrei beðin um að taka þátt. Hún segist alls ekki hissa á því. „Ég kom sjónar­miðum mínum skýrt á framfæri eftir að áætlanir um þriðju myndina voru uppi.“

Í viðtalinu við Variety segir Cattrall frá því hvað það var sem endanlega hafði gert henni ljóst að hún vildi ekki klæða sig í hlutverk Samönthu oftar. Henni þótti persónan einfald­lega vera að staðna og ekki að þróast eins og hún hefði viljað sjá. Hún hafi elskað það í fari Samönthu hve sjálfstæð hún var en með tímanum hafi henni verið breytt í „cougar“, eldri einhleypa konu sem sótti í yngri menn og virtist ekki lengur hafa sjálf­stæði kvenna í hávegum.

Það tók endanlega steininn úr þegar Cattrall komst að því hver saga Samönthu ætti að vera þegar þriðja kvik­myndin var á frum­stigum á teikniborðinu. Hún átti að fá óumbeðnar, kynferðislegar mynda­sendingar frá Brady, 14 ára gömlum syni Miröndu, vinkonu hennar í þáttunum. Þetta þótti Cattrall ömurlegt.

Hún sagðist sjálf hafa haft betri hugmyndir fyrir persónuna, eitthvað sem innihélt raun­verulega flækju og þróun. „Samantha, sem átti sitt eigið almanna­tengils-fyrirtæki, gæti hafa lent í því að þurfa að selja það vegna fjárhags­vandræða?“ Hún segir það hafa verið eina af hugmyndunum sem einn af samstarfs­mönnum hennar kom með. „Mér fannst það frábær hugmynd. Það eru átök. Í staðinn fyrir ólögráða strák og…“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt