Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Eftir Skuggabörn: Einar Örn sprautaði sig í æð með verkjalyfjum: „Kipptu bara handleggnum af“.

„Mín mis­tök voru að segja ekki nei; maður sprautar ekki verkja­lyfjum í sig, sér­stak­lega ekki róandi töflum,“ segir Einar Örn Ásdís­ar­son, sem fékk snemma við­ur­nefnið Einsi Glæpur. Einar var edrú þegar vinnsla Skugga­barna stóð og sagði sögu sína í þeirri von að verða þannig öðrum víti til varn­aðar.

Eins og kemur fram í mynd­inni féll Einar og var kom­inn aftur í víta­hring neyslu og glæpa.

Hann er edrú í dag og hefur verið í kjöl­far hræði­legrar atburða­rásar sem leiddi til þess að hann missti hægri hand­legg­inn á Spáni árið 2017.

Einar hafði verið að hjálpa ungu pari með að finna sér hús­næði á Spáni. Hann neytti kanna­bis­efna með fólk­inu. Að hans sögn hefur hann þróað með sér ofnæmi fyrir efn­inu sem veldur honum maga­verkjum. Hann neytti svo róandi lyfja ofan í kanna­bis­efnin með þeim afleið­ingum að fór í óminn­is­á­stand en á meðan því stóð ágerð­ust verkirnir sem hlut­ust af ofnæm­inu sem leiddi til þess að hann leysti upp verkja­töflur og spraut­aði þeim í hand­legg­inn á sér.

„Á þessu tíma­bili var ég ekk­ert að sprauta mig, bara að drekka bjór. Áfengi er alveg ban­eitrað stöff líka ef maður fer ekki vel með það. Hann stakk upp á því þessi drengur hvort ég eigi að prófa að sprauta í mig verkja­lyfjum; hann er með sprautu sjálfur því hann var að sprauta sig með sterum.  Í blakkát­inu þá virð­ist ég bara hafa sett bómul­inn ofan í spraut­una og bara sogað þetta upp. Hann reyndi að segja við mig ekki gera þetta, ekki gera þetta, ég man eftir því sko en það þýðir ekk­ert að tjónka við mig þegar ég er svona rugl­aður. Ég bara þrykkti þessu í mig.“

Þetta end­aði með skelf­ingu fyrir Einar sem lenti á sjúkra­húsi. Hann fór þaðan án þess að fá bót meina sinna. Það kost­aði hann hand­legg­inn.

„Svo rauk ég bara út af spít­al­anum, kol­rugl­aður á því. Ég man ekk­ert hvað það liðu margir tímar eða dagar eða hvað. Það næsta sem ég man er að ég er aftur á leið­inni upp á sjúkra­hús með sjúkra­bíl og þá tekur á móti mér annar læknir sem að tal­aði örlitla ensku og þá var hendin á mér orðin bleik og blá og fjór­föld. Og lækn­ir­inn segir við mig: Einar, við verðum að taka af þér hend­ina eða þú verður dauður innan tólf tíma. Ég hugs­aði mig um í ein­hver örfá sek­úndu­brot og sagði bara: Kipptu hand­leggnum af.“

Árið 2005 komu sam­hliða út bókin og heim­ild­ar­myndin Skugga­börn. Myndina fjallar um gerð bók­ar­innar en hana gerðu Jóakim Reyn­is­son og Lýður Árnason í sam­starfi við Þórhall Gunn­ars­son. Efn­is­tökin voru fíkni­efna­neysla hér­lendis á þessum tíma og meðal ann­ars skyggnst inn í líf ein­stak­linga sem voru í neyslu.

Nú tæpum 20 árum síðar skyggn­umst við inn í líf sumra þeirra ein­stak­linga sem komu fram í upp­runa­legu útgáf­unni í þátt­unum Hvað varð um Skugga­börn og að því til­efni sýnum við mynd­ina í fullri lengd.

Myndina má sjá hér.

Þáttinn má sjá í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvað varð um Skuggabörn

42:43
InnlentHvað varð um Skuggabörn

Lalli Johns um dvöl­ina á Breiðu­vík: „Maður var eig­in­lega alltaf á varð­bergi með sjálfan sig“

Fæstir kveikja á per­unni þegar þeir heyra nafnið Lárus Björn Svav­ars­son en flestir þekkja hann sem Lalla Johns. Lalli er edrú í dag en hann var einn fræg­asti úti­gangs­maður lands­ins í ára­tugi. Lalli var eitt þeirra barna sem vistað var á Breiðu­vík og leiðir hann líkum að því að dvölin þar hafi orðið til þess að hann hafi leiðst út...
42:43
MenningHvað varð um Skuggabörn

Saga Skugga­barna: Lalli Johns leidd­ist út í neysl­una eftir vistun á Breiðu­vík sem barn

Fæstir kveikja á per­unni þegar þeir heyra nafnið Lárus Björn Svav­ars­son en flestir þekkja hann sem Lalla Johns. Lalli er edrú í dag en hann var einn fræg­asti úti­gangs­maður lands­ins í ára­tugi. Lalli var eitt þeirra barna sem vistað var á Breiðu­vík og leiðir hann líkum að því að dvölin þar hafi orðið til þess að hann hafi leiðst út...
50:39
InnlentHvað varð um Skuggabörn

Margrét missti barn­föður sinn ungan úr neyslu: „Ég kem heim sé ég tólf ósvöruð sím­töl“

„Hún hringir akkúrat þegar ég er að kíkja á sím­ann, ég svara og það var hún sem sagði mér að hann væri dáinn. Ég man að það fyrsta sem ég sagði var „nei, hann er ekk­ert dáinn, ég var að tala við hann í gær“ en hún sagði „jú, hann er dáinn“,“ segir Margrét Finn­boga­dóttir í nýjum hlað­varps­þætti Skugga­barna. Margrét...
50:39
MenningHvað varð um Skuggabörn

Saga Skugga­barna – Marri, tví­tugur barns­faðir Mar­grétar, tók eigið líf: „Jú, hann er dáinn.“

Margrét Finn­boga­dóttir kom fram í bók­inni Skugga­börn en hún missti barns­föður sinn, Marra, þegar hann tók eigið líf aðeins tví­tugur að aldri. Margrét og Maríus, sem almennt var kall­aður Marri, fóru að vera saman þegar þau voru fjórtán ára að aldri. For­eldrar þeirra lögðu blessun sína yfir það að þau fengu að gista hvert hjá öðru en það atvik­að­ist þannig...
51:55
InnlentHvað varð um Skuggabörn

Endaði ein­hentur eftir blackout á Spáni: „Fíkni­efna­djöf­ull­inn hann hrifsar allt frá þér“

Einar Örn Sig­urðs­son eða Einsi glæpur eins og hann oft kall­aður segir frá sögu sinni þegar hann missti hand­legg­inn 8. nóv­em­ber 2017 og átaka­legum atburðum í ein­lægu við­tali hjá Reyni Trausta­son. Leiðir Einars og Reynis lágu saman árið 2005 við gerð bók­ar­innar Skugga­börn þar sem saga og þátt­taka Einars spil­aði viða­mik­inn þátt. Þætt­irnir Hvað varð um Skugga­börn eru aðgengi­legir á...
39:44
MenningHvað varð um Skuggabörn

Kristín rang­lega sökuð um morð á sam­býl­is­manni sínum: „Að mér sé kennt um að svona hafi farið“

Árið 2005 komu sam­hliða út bókin og heim­ild­ar­myndin Skugga­börn. Myndina fjallar um gerð bók­ar­innar en hana gerðu Jóakim Reyn­is­son og Lýður Árnason í sam­starfi við Þórhall Gunn­ars­son. Efn­is­tökin voru fíkni­efna­neysla hér­lendis á þessum tíma og meðal ann­ars skyggnst inn í líf ein­stak­linga sem voru í neyslu. Nú tæpum 20 árum síðar skyggn­umst við inn í líf sumra þeirra ein­stak­linga sem...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Fimm ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur á Bústaðarvegi.
Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Menning

Menning

Ris og fall Krumma

Einn besti tónlistarmaður landsins á 21. öldinni
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi