Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Margrét missti barnföður sinn ungan úr neyslu: „Ég kem heim sé ég tólf ósvöruð símtöl“

„Hún hringir akkúrat þegar ég er að kíkja á sím­ann, ég svara og það var hún sem sagði mér að hann væri dáinn. Ég man að það fyrsta sem ég sagði var „nei, hann er ekk­ert dáinn, ég var að tala við hann í gær“ en hún sagði „jú, hann er dáinn“,“ segir Margrét Finn­boga­dóttir í nýjum hlað­varps­þætti Skugga­barna.

Margrét Finn­boga­dóttir kom fram í bók­inni Skugga­börn en hún missti barns­föður sinn, Marra, þegar hann tók eigið líf aðeins tví­tugur að aldri. Hún og barns­faðir hennar Maríus, eða Marri, hófu sam­band sitt aðeins fjórtán ára gömul en for­eldrar þeirra lögðu blessun sína yfir það að þau fengu að gista hvert hjá öðru.

Bæði komu þau frá brotnum heim­ilum og því segir Margrét að hún hafi snemma fundið sig í hlut­verki aðstand­and­ans. Strax snemma á ung­lings­aldri var Marri far­inn að reykja hass dag­lega en Margrét leiðir að því líkum að það hafi verið til þess að deyfa sig. Neysla hans þró­að­ist svo þangað til hann var far­inn að nota sprautur.

Eftir að þau eign­uð­ust son var Marri enn í neyslu og sam­bandið gekk ekki upp. Þau héldu sam­bandi þrátt fyrir það og hann hringdi reglu­lega í hana ef hann vant­aði eitt­hvað. Margrét man vel dag­inn sem hún fékk frétt­irnar af and­láti Marra en var það stúlka sem hann hafði verið með kvöld­inu áður sem hringdi í hana. Hún hafði talað við Marra kvöld­inu áður og aldrei þessu vant neitað honum um að hitt­ast vegna þess að hún var að læra fyrir próf.
„Ég segi í þetta skiptið nei, ég er að fara í próf á morgun. Ég get ekki staðið í þessu. Síðan fer ég í þetta próf og þegar ég kem heim sé ég tólf ósvöruð sím­töl á sím­anum og þá fæ ég þessar fréttir. Ég vissi að þetta væri satt en ég vildi samt ekki trúa því. Ég man þennan dag og dag­ana á eftir rosa­lega skýrt. Þetta er stærsta sjokk sem ég hef á ævinni fengið.“ Hlað­varps­þátt­inn má hlusta á í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvað varð um Skuggabörn

42:43
InnlentHvað varð um Skuggabörn

Lalli Johns um dvöl­ina á Breiðu­vík: „Maður var eig­in­lega alltaf á varð­bergi með sjálfan sig“

Fæstir kveikja á per­unni þegar þeir heyra nafnið Lárus Björn Svav­ars­son en flestir þekkja hann sem Lalla Johns. Lalli er edrú í dag en hann var einn fræg­asti úti­gangs­maður lands­ins í ára­tugi. Lalli var eitt þeirra barna sem vistað var á Breiðu­vík og leiðir hann líkum að því að dvölin þar hafi orðið til þess að hann hafi leiðst út...
42:43
MenningHvað varð um Skuggabörn

Saga Skugga­barna: Lalli Johns leidd­ist út í neysl­una eftir vistun á Breiðu­vík sem barn

Fæstir kveikja á per­unni þegar þeir heyra nafnið Lárus Björn Svav­ars­son en flestir þekkja hann sem Lalla Johns. Lalli er edrú í dag en hann var einn fræg­asti úti­gangs­maður lands­ins í ára­tugi. Lalli var eitt þeirra barna sem vistað var á Breiðu­vík og leiðir hann líkum að því að dvölin þar hafi orðið til þess að hann hafi leiðst út...
50:39
MenningHvað varð um Skuggabörn

Saga Skugga­barna – Marri, tví­tugur barns­faðir Mar­grétar, tók eigið líf: „Jú, hann er dáinn.“

Margrét Finn­boga­dóttir kom fram í bók­inni Skugga­börn en hún missti barns­föður sinn, Marra, þegar hann tók eigið líf aðeins tví­tugur að aldri. Margrét og Maríus, sem almennt var kall­aður Marri, fóru að vera saman þegar þau voru fjórtán ára að aldri. For­eldrar þeirra lögðu blessun sína yfir það að þau fengu að gista hvert hjá öðru en það atvik­að­ist þannig...
51:55
InnlentHvað varð um Skuggabörn

Endaði ein­hentur eftir blackout á Spáni: „Fíkni­efna­djöf­ull­inn hann hrifsar allt frá þér“

Einar Örn Sig­urðs­son eða Einsi glæpur eins og hann oft kall­aður segir frá sögu sinni þegar hann missti hand­legg­inn 8. nóv­em­ber 2017 og átaka­legum atburðum í ein­lægu við­tali hjá Reyni Trausta­son. Leiðir Einars og Reynis lágu saman árið 2005 við gerð bók­ar­innar Skugga­börn þar sem saga og þátt­taka Einars spil­aði viða­mik­inn þátt. Þætt­irnir Hvað varð um Skugga­börn eru aðgengi­legir á...
51:55
MenningHvað varð um Skuggabörn

Eftir Skugga­börn: Einar Örn spraut­aði sig í æð með verkja­lyfjum: „Kipptu bara hand­leggnum af“.

„Mín mis­tök voru að segja ekki nei; maður sprautar ekki verkja­lyfjum í sig, sér­stak­lega ekki róandi töflum,“ segir Einar Örn Ásdís­ar­son, sem fékk snemma við­ur­nefnið Einsi Glæpur. Einar var edrú þegar vinnsla Skugga­barna stóð og sagði sögu sína í þeirri von að verða þannig öðrum víti til varn­aðar. Eins og kemur fram í mynd­inni féll Einar og var kom­inn aftur...
39:44
MenningHvað varð um Skuggabörn

Kristín rang­lega sökuð um morð á sam­býl­is­manni sínum: „Að mér sé kennt um að svona hafi farið“

Árið 2005 komu sam­hliða út bókin og heim­ild­ar­myndin Skugga­börn. Myndina fjallar um gerð bók­ar­innar en hana gerðu Jóakim Reyn­is­son og Lýður Árnason í sam­starfi við Þórhall Gunn­ars­son. Efn­is­tökin voru fíkni­efna­neysla hér­lendis á þessum tíma og meðal ann­ars skyggnst inn í líf ein­stak­linga sem voru í neyslu. Nú tæpum 20 árum síðar skyggn­umst við inn í líf sumra þeirra ein­stak­linga sem...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Fimm ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur á Bústaðarvegi.
Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum