Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Skömmustulegur Will Smith: „Ég skammast mín“

Will Smith.
Will Smith. Mynd: skjáskot

„Ofbeldi í öllum myndum er eitrað og eyði­leggjandi. Hegðun mín á Óskars­verðlauna­hátíðinni var bæði óviðunandi og óafsakanleg.“ Þetta segir leikarinn Will Smith í afsökunar­beiðni sem hann sendi frá sér á Instagram-reikningi sínum í gær.

Eins og frægt er orðið sló Will Smith uppi­standarann Chris Rock utan undir eftir að sá síðarnefndi hafði gert grín að Jödu Pinkett Smith, eiginkonu Will Smith. Grínið beindist að því að Jada væri krúnu­rökuð, en hún hefur glímt við sjálfs­ofnæmis­sjúkdóminn Alopecia undan­farin ár, sem veldur hárlosi.

Mikið hefur verið fjallað um kinn­hestinn og virðist Óskars­verðlauna­hátíðin sjálf að einhverju leyti hafa fallið í skuggann á uppákomunni. Will Smith hreppti sjálfur styttuna sem besti leikari í aðal­hlutverki fljótlega eftir atvikið.

Nú hefur leikarinn sent frá sér yfir­lýsingu á Instagram þar sem hann biðst afsökunar á hegðun sinni.

„Grín á minn kostnað er hluti af starfinu, en brandari um sjúkdóm Jödu var meira en ég réði við og ég brást við á tilfinninga­legan hátt. 

Mig langar til þess að biðja þig afsökunar, Chris. Ég gekk of langt og var í órétti. Ég skammast mín og gjörðir mínar endur­spegla ekki þann mann sem ég vil vera. Það er ekkert pláss fyrir ofbeldi í heimi ástar og góðvildar. 

Ég vil líka biðja Akademíuna, fram­leiðendur hátíðarinnar, alla viðstadda og áhorf­endur um allan heim afsökunar. Ég vil biðja Williams-fjöl­skylduna afsökunar sem og King Richard-fjöl­skylduna mína. 

Mér þykir mjög miður að hegðun mín hafi svert eitthvað sem annars var dásamlegt ferðalag fyrir okkur öll. Ég er verk í vinnslu. Einlæglega, Will.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt