Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Siggi Gunnars ráðinn til Rásar 2: „Útvarp Reykjavík. Nú verðar sagðar fréttir“

Siggi Gunnars.
Siggi Gunnars. Mynd: podtail.com

Útvarps­maðurinn Sigurður Þorri Gunnarsson eða Siggi Gunnars eins og hann er kallaður, hefur nú verið ráðinn tónlistar­stjóri Rásar 2.

Akureyringurinn Siggi Gunnars hefur undan­farin ár unnið sem tónlistar- og dagskrár­stjóri útvarps­stöðvarinnar K100 en einnig var hann með Loga Bergmanni í Síðdegis­þættinum á K100. Siggi tilkynnti ráðninguna í færslu á Facebook í dag en þar segir hann meðal annars að nú sé kominn tími á nýjar áskoranir á nýjum stað, eftir átta góð ár á K100. Segir hann nýja starfið vera sann­kallað drauma­starf þar sem hann fær tækifæri til að kynna helstu strauma og stefnur í tónlist sem og vinna með íslensku tónlistar­fólki.

Hér er tilkynningin í öllu sínu veldi:

„Útvarp Reykjavík. Nú verðar sagðar fréttir.

Eftir tæp átta ár af krefjandi en dásamlega skemmtilegu uppbyggingar­starfi með frábæru fólki á K100 er kominn tími á nýjar áskoranir á nýjum stað. Sá staður er RÚV okkar allra þar sem ég mun fljótlega taka við starfi tónlistar­stjóra Rásar 2.Litli-Siggi var bara sex ára þegar hann fékk að fylgjast með Gesti Einari að störfum á RÚVAK en þaðan sendi hann út þáttinn Hvíta máva að loknum hádegis­fréttum. Eftir það var ekki aftur snúið, útvarps­bakterían var komin til að vera. Almanna­útvarp hefur verið mér hugleikið lengi, en bæði BA ritgerðin mín og MA verkefnið mitt fjölluðu einmitt um hlutverk almanna­útvarps og í meistara­náminu í Bretlandi lagði ég sérstaka áherslu á að kynna mér vel útvarps­hluta BBC.Nema hvað, tuttugu og sjö árum eftir að hafa fylgst með Gesti Einari tala við þjóðina, hef ég störf á RÚV og verð einmitt í loftinu á sama tíma og fyrir­myndin var á árum áður – á milli kl. 12:40 og 14. Sann­kallað drauma­starf að koma að rekstri vinsælustu útvarps­stöðvar landsins, vinna með íslensku tónlistar­fólki og fá tækifæri til að kynna helstu strauma og stefnur í tónlist. Magnað hvernig örlaga­dísirnar eiga það til að snúast á sveif með manni.Hjartans þakkir fyrir samstarfið kæru vinir í Hádegismóum! Við getum verið stolt og glöð af árangri síðustu ára. Mér þykja kveðju­stundir alltaf erfiðar en á sama tíma er ég ótrúlega spenntur fyrir næstu verkefnum.RÚV – hér kem ég!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá